Fréttablaðið - 21.04.2012, Page 2

Fréttablaðið - 21.04.2012, Page 2
21. apríl 2012 LAUGARDAGUR2 Lúðvík, eru íþróttir fyrir alla? „Jú, fyrir bæði kerlingar og karla!“ Lúðvík Geirsson er þingmaður. Lúðvík hefur lagt fram fyrirspurn til mennta- málaráðherra varðandi það hvort tryggja eigi í lögum að stórviðburðir í íþróttum verði sýndir í opinni dagskrá. PAKISTAN Enginn komst lífs af þegar Boeing farþegaþota flugfélagsins Bhoja Air fórst í aðflugi að alþjóðaflugvellinum við borgina Islamabad í Pakistan í gærdag. 121 manns var um borð í vélinni; farþegar og áhöfn. Flugmálayfirvöld í landinu telja að orsakir slyssins megi rekja til veðurs, en mikill vind- ur og rigning voru á svæðinu. Lýsingar erlendra fréttamiðla eru nötur- legar en brak og líkamshlutar dreifðust um stórt svæði þar sem björgunarlið og íbúar frá nálægum íbúðarhverfum leituðu í gær. Þegar í gær höfðu 110 lík verið flutt á brott frá slysstaðnum. Flugritinn, eða svarti kassinn svokallaði, er fundinn en hann er lykilgagn við að komast að því hvað olli því að þotan skall til jarðar eftir rúmlega þriggja tíma flug frá borginni Karachi til höfuðborgarinnar. Að minnsta kosti fjögur þorp eru í nálægð við slysstaðinn og enn hefur ekki verið úti- lokað að fólk hafi farist á jörðu niðri, að sögn yfirvalda í landinu. Fjölmiðlar greindu frá því í gær að aðstandendur þeirra sem voru um borð í vélinni hafi safnast saman á flugvellinum og beðið frétta í örvæntingu. - shá SPURNING DAGSINS frá Adler á góðum kjörumBaðvog AD 8116b kr. stgr. Eldhúsvog AD 3138b kr. stgr. FJÖLMIÐLAR Fjölmiðlanefnd telur ekki tilefni til að bregðast við vegna fyrirspurnar sem Ást- þór Magnús- son forseta- frambjóðandi sendi nefnd- inni. Óskar hann eftir áliti nefndarinnar á nokkrum atriðum, fyrst og fremst varðandi Ríkis- útvarpið. „Að gefnu tilefni vill fjölmiðla- nefnd koma því á framfæri að athugasemdir Ástþórs Magn- ússonar, vegna forsetakosning- anna, voru teknar fyrir á fundi nefndarinnar 13. apríl sl. Fimm dögum síðar var honum sent svar þar sem meðal annars er bent á að nefndin hafi ekki eftirlit með lögum um Ríkis útvarpið,“ segir í tilkynningu. Einnig kemur fram að nefndin gefi ekki út almennt álit vegna athugasemda sem ekki feli í sér kvörtun um tiltekin brot á lögum um fjölmiðla. - óká Fjölmiðlanefnd svarar Ástþóri: Ekki tilefni til að bregðast við ÁSTÞÓR MAGNÚSSON HEILBRIGÐISMÁL Meðferðardeildin á Stuðlum verður lokuð allan júlí vegna sumarleyfis starfsfólks. Er þetta í fyrsta sinn sem þetta er gert og var ákvörðunin tekin til að hagræða og bæta meðferðina. Þórarinn V. Hjaltason, forstöðu- maður á Stuðlum, segir stefnt að því að ljúka meðferð barnanna á eðlilegum tíma. Eina hugsan- lega áhyggjuefnið sé að börnum í neyðar vistun muni fjölga á meðan, en sú deild verður áfram opin. „En við bregðumst bara við því ef til þess kemur,“ segir hann. „Þetta er í fyrsta sinn sem þetta er gert og við munum bara mæta því sem til kemur og endurskoða eftir þörf- um.“ Allar líkur verða á því að gott aðgengi verði að plássum á með- ferðardeild Stuðla strax í ágúst þrátt fyrir mánaðarlokun. „Það gefur augaleið að almenn meðferð minnkar á meðan á lokuninni stendur, en undanfarin ár hefur dregið verulega úr starf- seminni á sumrin þó deildin sé opin,“ segir Þórarinn. Undanfarin ár hefur sú leið verið farin að fækka börnum yfir sumarið og mæta leyfum starfs- fólks með afleysingarfólki. Þá hefur nýting meðferðardeildar verið slök fram að hausti, er segir í tilkynningu frá Barnaverndar- stofu. - sv Meðferðardeildin á Stuðlum lokar í mánuð í sumar vegna hagræðinga og fría: Neyðarvistunum gæti fjölgað STUÐLAR Forstöðumaður Stuðla segir mögulegt að neyðarvistunum fjölgi á meðan á lokun stendur. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR UMHVERFISMÁL Hópur áhugamanna um að koma upp hreindýrastofni á Vestfjörðum vill fá úr því skorið með rannsóknum hvort flutningi dýranna frá Austurlandi fylgi smithætta sauðfjársjúkdóma. Yfirdýralæknir útilokar flutning dýranna milli landshluta einmitt með þeim rökum, auk þess sem hann telur um dýraverndunarmál að ræða. Sigmar B. Hauksson, fyrr- verandi formaður Skotvíss, er einn áhugamanna um flutning hreindýra frá Austurlandi til Vest- fjarða. Hann bendir á, fyrst af öllu, að meginrök yfirdýra læknis hafi aldrei verið sönnuð með rann- sóknum. „Rökin eru að hreindýr gætu borið með sér sauðfjársjúk- dóma. Það stendur ekkert að baki þessum fullyrðingum. Okkar vinna gengur því út á að fá úr því skorið hvort þetta sé gerlegt, og fjölmörg rök benda í þá átt.“ Halldór Runólfsson, yfir- dýralæknir, segir að sín skoðun varðandi flutning dýranna hafi ekkert breyst hvað varðar sjúk- dómahættuna. „En þetta byggir einnig á dýraverndarsjónar- miðum, því almennt held ég að menn telji að Vestfirðir henti ekki hreindýrum. Það er því dýraverndarmál að flytja dýrin á svæði þar sem þau ekki þrífast.“ Spurður um rannsóknaþáttinn telur Halldór að marktæk rann- sókn á sjúkdómum í hrein dýrum yrði dýr og tímafrek aðgerð, þar sem það taki langan tíma að koma í ljós hvort sjúkdómarnir séu fyrir hendi í dýrunum. Í dag sækja 4.000 skotveiði- menn um að fá að fella þúsund hreindýr á Austurlandi, þannig að eftirspurnin er mikil. „ Kostirnir við að fjölga hreindýrum eru því ekki síst að slík aðgerð væri atvinnuskapandi,“ segir Sigmar. „Hvert dýr skilar í beinar og óbeinar tekjur um 300.000 krónum og helmingi meira ef um erlenda veiðimenn væri að ræða. Þetta myndi því styrkja ferða- þjónustu á til dæmis Vestfjörðum í um tvo mánuði utan hins hefð- bundna ferðamannatíma.“ Sigmar, sem hafnar því að Vestfirðir henti ekki hrein- dýrum, segir um aðferðafræði rannsóknarinnar að sýnum yrði safnað í sumar, en upplýsingar um gróðurfar liggi að hluta til fyrir. Síðan yrði að flytja nokkur dýr vestur þar sem þau yrðu sett í einangrun. „Þegar sannað væri að þau væru heilbrigð yrði þeim sleppt og nýjasta tækni notuð til að ganga úr skugga um hvernig þeim reiðir af í náttúrunni. Þetta yrðu fyrstu skrefin.“ svavar@frettabladid.is Smithætta frá hrein- dýrum aldrei sönnuð Yfirdýralæknir útilokar að flytja hreindýr á Vestfirði vegna smithættu. Hópur áhugamanna segir fullyrðingar um smithættu ósannaðar og hyggur á rann- sóknir. Gríðarleg tækifæri eru talin fylgja nýjum hreindýrastofni vestra. ÓNÝT AUÐLIND? Áhugamenn um flutning hreindýra til Vestfjarða ætla að setjast niður í Kvenfélagshúsinu á Hólmavík klukkan tvö í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Farþegaþota Bhoja Air fórst í aðflugi að alþjóðaflugvellinum í Islamabad: Talið að 121 hafi látist í flugslysi í Pakistan FRÁ SLYSSTAÐ Í GÆRKVÖLDI Farþegaþotan splundr- aðist þegar hún skall til jarðar í gær. NORDICPHOTOS/AFP Rökin eru að hrein- dýr gætu borið með sér sauðfjársjúkdóma. Það stendur ekkert að baki þessum fullyrðingum. SIGMAR B. HAUKSSON FYRRVERANDI FORMAÐUR SKOTVÍSS SVÍÞJÓÐ Gert er ráð fyrir að framkvæmdastjórn Evrópu- sambandsins, ESB, leggi fram tillögu í haust um bann við bragðefnum í tóbaki. Um er að ræða efni sem samkvæmt munn tóbaksframleiðandanum Swedish Match eru nauðsynleg fyrir munntóbakið, að því er sænskir fjölmiðlar greina frá. Heilbrigðisráðherra Sví þjóðar, Maria Larsson, segir að nikó- tínmagnið hafi verið minnkað í sænska munntóbakinu og bragð- efnin sett í staðinn. Haft er eftir ráðherranum að sænsk stjórnvöld muni berjast gegn öllum tillögum sem ógna sænska munntóbakinu. - ibs Ný tillaga ESB: Svíar óttast um munntóbakið KÍNA Neyslumynstur ríkra Kín- verja er að breytast. Lúxus- varningur er ekki lengur efst á óskalistanum, heldur eyða fleiri kínverskir auðmenn fé í ferða- lög, ræktun líkamans og menntun barna sinna, að því er kemur fram á vef Dagens Industri. Þar segir að 63.500 einstak- lingar í Kína eigi jafngildi 2 mill jarða íslenskra króna. Dagens Industri vitnar í skýrslu frá Hurun Report Research Insti- tute og kínverska bankans Ind- ustrial Bank þar sem segir að vin- sælustu fjárfestingarkostirnir séu fasteignir og hlutabréf. - ibs Kínverskir auðmenn: Lúxus ekki efst á óskalistanum FÓLK Það voru pollrólegir en mjög ánægðir vinningshafar sem mættu til Getspár í gær- morgun. Húsbóndinn hafði keypt fimm raða Víkingalottó- miða í Olís á Akureyri og vann stærsta happdrættisvinning sem hefur unnist á Íslandi. Hjónin unnu tæplega 108 millj- ónir og ákváðu þegar að leyfa börnunum sínum að njóta góðs af vinningnum. Börnin, sem öll eru upp- komin, fá því hluta vinnings- ins og treysta þar með fjárhag sinn verulega og ætluðu varla að trúa foreldrum sínum er þau sögðu þeim frá vinningnum góða og að þau fengju að njóta hluta hans með þeim, að því er segir í tilkynningu frá Íslenskri getspá. Hjónin ætla að borga niður sínar skuldir auk þess að hjálpa börnunum. Þau sögðu að besta hugsunin væri að vera skuld- laus. Heppin hjón á Akureyri: Ætla að greiða upp skuldirnar

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.