Fréttablaðið - 21.04.2012, Page 4

Fréttablaðið - 21.04.2012, Page 4
21. apríl 2012 LAUGARDAGUR4 Á síðu 4 í Fréttablaðinu á fimmtu- dag birtist frétt með fyrirsögninni „Sérstakur saksóknari fær gögn frá Lúxemborg um Aurum“. Að gefnu til- efni er rétt að árétta að fyrirtækið sem vísað er til í fyrirsögninni er hið breska Aurum Holding, ekki íslenska skartp- gripafyrirtækið Aurum ehf. Hið síðar- nefnda tengist ekki rannsókn sérstaks saksóknara með nokkrum hætti. HALDIÐ TIL HAGA Niðurlag greinar Almars Guðmunds- sonar og Margrétar Guðmundsdóttur, Verðbólgan og meint auðsöfnun innflytjenda erlendis, sem birtist í blaðinu í gær vantaði. Einnig vantaði skýringarmynd sem átti að fylgja greininni. Greinina má lesa í fullri lengd með skýringarmynd á Vísi. Beðist er velvirðingar á þessu. ENDURVINNSLA Áform Endur- vinnslunnar um að hætta sam- starfi við Sorpu um móttöku á endur vinnanlegum drykkjar- umbúðum myndu skerða þjónustu við neytendur og gengju gegn hugmyndum um að draga úr notkun á einka bílum, segir Oddný Sturludóttir, borgarfulltrúi Sam- fylkingarinnar og stjórnar for- maður Sorpu. Eins og fram kom í Fréttablaðinu í gær telja forsvarsmenn Endur- vinnslunnar að fyrirtækið tapi tugum milljóna króna á ári vegna þess að neytendur komist upp með að oftelja fjölda umbúða sem skilað er til Sorpu. „Að fækka móttökustöðvum úr sjö í þrjá yrði ofboðsleg þjónustu- skerðing,“ segir Oddný. Hún vonast til þess að Endurvinnslan endurskoði ákvörðun sína um að slíta samstarfi sínu við Sorpu. Endurvinnsla á dósum og flöskum er gjarnan það sem dregur fólk á stöðvar Sorpu, en þá notar það gjarnan ferðina til að fara með fleira sem hefur safnast upp, segir Oddný. Hún óttast að verði af þessari breytingu geti það dregið úr endurvinnslu. Hætti Sorpa að taka á móti dósum og flöskum mun það hafa neikvæð áhrif á fjárhag fyrir- tækisins, segir Oddný. Þá minnki einnig þörf fyrir starfsmenn, enda móttaka umbúðanna atvinnu- skapandi. Spurð hvort Sorpa geti brugðist við umkvörtunum Endurvinnsl- unnar um oftalningu umbúða segir Oddný að eflaust sé hægt að finna leiðir til að bregðast við því. Hvað sem því líði sé ákvörðun stjórnenda Endurvinnslunnar afar óheppileg og mikil afturför í þjónustu við íbúa höfuðborgarsvæðisins. - bj Stjórnarformaður Sorpu harmar áform um að færa endurvinnslu drykkjarumbúða í sérstakar móttökustöðvar: Yrði mikil þjónustuskerðing við neytendur TÆKNIVÆÐING Móttökustöð Endur- vinnslunnar við Knarrarvog gæti orðið fyrirmynd annarra endurvinnslustöðva verði samstarfi við Sorpu slitið. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 21° 18° 16° 13° 12° 12° 12° 12° 21° 13° 21° 21° 27° 8° 12° 24° 9°Á MORGUN Strekkingur með SA- strönd annars hægari. MÁNUDAGUR Strekkingur með SA- strönd annars hægari. 8 7 4 43 8 7 4 2 2 6 6 6 5 2 23 2 4 -1 0 3 7 8 6 4 4 5 12 6 4 4 2 12 BJARTIR DAGAR eru framundan og þá sérstak- lega sunnan- og vestanlands þó allir landshlutar fái einhvern skerf af sólskini. Hitastigið verður víða á bilinu 1 til 10 stig, hlýjast á Suðvesturlandi. Það má því að segja að sum- arið byrji ágætlega þetta árið. Ingibjörg Karlsdóttir veður- fréttamaður UMHVERFISMÁL Umhverfisstofnun minnir á að frost er nú víða farið úr jörð og landið viðkvæmt fyrir utanvegaakstri, jafnvel þó snjó- hula liggi yfir. Á vef stofnunarinnar eru ferðamenn beðnir að hafa sér- staka gát á þessu. „Jafnframt bendir stofnunin á að ýmis svæði eru lokuð fyrir alla umferð vél- knúinna farartækja, þar með vél- sleða, svo sem Hornstrandafrið- landið,“ segir þar. Þá eru einnig svæði á borð við Þjórsárver þar sem tímabundið er lokað fyrir alla umferð. „Á tímabilinu 1. maí til 10. júní er öll umferð um varplönd heiðargæsa bönnuð.“ - óká Sums staðar má ekki keyra: Land er víða viðkvæmt núna LJÓT FÖR Um helgina verður sérstök gæsla í Hornstrandafriðlandinu og vél- sleðafólki vísað frá. MYND/UMHVERFISSTOFNUN SJÁVARÚTVEGUR Útreikningar sjávar- útvegs- og landbúnaðarráðu- neytisins á áhrifum frumvarps um veiðigjald fyrir árið 2011, sýna að útgerðin í landinu myndi halda eftir rúmlega 53 milljörðum króna í hagnað fyrir skatta og eftir greiðslur veiðigjalds til ríkisins. Veiðigjald útgerðarinnar til ríkisins myndi nema 21,5 milljörðum króna. Skipting hagn- aðar er því 70/30 útgerðinni í vil. Þessi niðurstaða byggir á spá sérfræðinga ráðuneytisins fyrir afkomu sjávarútvegsins fyrir árið 2011 og kemur fram í minnisblaði til atvinnuveganefndar Alþingis. Spáin um afkomu greinarinnar, samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins, er talin frekar nærfærin. Þessi niðurstaða gengur þvert á útreikninga endurskoðunarfyrir- tækisins Deloitte, Íslandsbanka og Landsbankans um gjaldtökuna og áhrif hennar. Eins og komið hefur fram er niðurstaða Deloitte að ríkissjóður hefði tekið til sín 105% af hagnaði sjávarútvegsfyrirtækjanna á árunum 2001-2010. Landsbankinn birti nýlega sína útreikninga þar sem koma fram miklar áhyggjur af þeim afleiðing- um sem samþykkt frum varpanna tveggja hefðu fyrir íslenskan sjávar útveg og samfélag. Gert er til dæmis ráð fyrir fjöldagjald- þrotum minni fyrirtækja. Íslands- banki hafði fyrr birt kolsvarta spá um afleiðingar gjaldtökunnar. Tilefni greiningar ráðuneytisins er ekki síst sú að svara gagnrýni sem fyrirtækin hafa sett fram á síðustu vikum. Ráðuneytið telur jafnframt að margir greiningar- aðilar reikni til skuldir vegna hluta sem eru óskyldir rekstri útgerðanna, til að mynda vegna hlutabréfakaupa og annarra slíkra skulda. Því greini bankarnir ekki ástæður skuldsetningar og við þetta gerir ráðuneytið athuga- semdir. Heimildir Fréttablaðsins greina frá að sérfræðingar ráðuneytis- ins telji sig hafa sýnt fram á að greinin haldi síst minna eftir af hagnaði sínum en á undanförnum árum. Því er ljóst að himinn og haf skilur á milli í útreikningum, allt eftir því hver heldur á reikni- stokknum. svavar@frettabladid.is Reiknar útgerðinni 70% af 75 milljarða hagnaði 2011 Sjávarútvegsfyrirtæki halda eftir 53,5 milljörðum af hagnaði ársins 2011 samkvæmt útreikningum ráðuneytis- ins. Ríkið fær tæp 30% eða 21,5 milljarða. Gengur þvert á útreikninga banka og endurskoðunarfyrirtækis. Á LOÐNUVEIÐUM Arðsemi veiða og vinnslu sjávarútvegsins er með ágætum um þessar mundir. Myndin tengist fréttinni ekki með beinum hætti. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR Sjávarútvegur 2011: Dæmi um veiðigjald ■ Dæmið gerir ráð fyrir að tekjur af veiðum og vinnslu sjávarútvegsins verði um 250 milljarðar króna en rekstrargjöld verði 175 milljarðar. Því er svokallaður EBITHA (hagnaður fyrir greiðslu fjármagnskostnaðar) 75 milljarðar króna. ■ Að tilliti teknu til árgreiðslu (sem er dregin frá vergri hlutdeild hagnaðar til þess að fyrirtækin fái fyrst að halda eftir eðlilegum arði af framleiðslutækjum áður en byrjað er að leggja á auðlindagjald) situr eftir auðlindarenta sem er talin verða 45 milljarðar og myndar gjaldstofn veiðigjaldsins. Ráðuneytið reiknar með 6% vaxtakostnaði útgerðarinnar af skuldum eða 20,4 milljörðum. Veiðigjöld, sérstakt veiðigjald og almennt, af 45 milljörðum reiknast 21,5 milljarðar, og þar af væri sérstaka veiði- gjaldið 17,5 milljarðar nettó. ■ Útgerðin heldur eftir 53,5 milljörðum til að standa straum af fjármagnskostnaði sínum og til þess að greiða hlut- höfum fyrirtækjanna arð. GENGIÐ 20.04.2012 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 228,5814 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 126,00 126,60 203,06 204,04 166,25 167,19 22,346 22,476 22,041 22,171 18,809 18,919 1,5408 1,5498 194,60 195,76 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is 204 STK. PAKKNINGAR 2mg 2.871kr. 5.742kr. 4mg: 3.999kr. 7.998kr.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.