Fréttablaðið - 21.04.2012, Blaðsíða 6
21. apríl 2012 LAUGARDAGUR6
DAGSKRÁ
Setning fundar
Friðrik Pálsson, formaður stjórnar
Ávarp utanríkisráðherra
Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra
Litið yfir árið
Jón Ásbergsson, framkvæmdastjóri
Þrautseigja lítilla þjóða
David Gardner, ritstjóri alþjóðamálefna
hjá Financial Times
Fundarstjóri er Vilborg Einarsdóttir,
framkvæmdastjóri Mentors og fulltrúi í stjórn
Íslandsstofu
Að loknum framsöguerindum kl. 12.30
verður boðið upp á veitingar.
Vinsamlega tilkynnið þátttöku í síma 511 4000,
eða með tölvupósti á islandsstofa@islandsstofa.is
MÓTMÆLI Nokkur fjöldi mót-
mælenda kom saman við Hörpu í
gær vegna komu Wen Jiabo, for-
sætisráðherra Kína. Wen snæddi
þar kvöldverð með íslenskum ráða-
mönnum í gær.
Vinir Tíbets og Íslandsdeild
Amnesty International voru meðal
þeirra sem hvöttu fólk til mót-
mæla í gær. Íslandsdeild Amnesty
skoraði á Jóhönnu Sigurðar dóttur
forsætisráðherra að mótmæla
mannréttindabrotum í Kína á fundi
ínum með Wen. Þá fóru þau líka
fram á að Jóhanna ræddi afstöðu
Kínverja til alþjóðasamnings um
vopnaviðskipti, sem nú er unnið að
á vettvangi Sameinuðu þjóðanna.
„Samtökin hafa nokkrar áhyggj-
ur af afstöðu kínverskra stjórn-
valda til samningsins, en þau hafa
m.a. lagst gegn því að samningur-
inn byggi á alþjóðlegum mannrétt-
inda- og mannúðarlögum“, segir í
bréfi Amnesty til forsætisráðherra.
Þar eru einnig tíundaðar
áhyggjur Amnesty af dauða-
refsingum í Kína sem og meðferð á
föngum og andófsfólki frá Xinjiang
Uighur og Tíbet. Loks er því haldið
til haga að samtökin hafi ítrekað
beðið um að kínversk stjórnvöld
láti fara fram óháða rannsókn á
atburðunum á Torgi hins himneska
friðar árið 1989. - þj / - þeb
Mannréttindasamtökin Amnesty International skora á forsætisráðherra:
Mótmæla mannréttindabrotum
SJÁVARÚTVEGUR Icelandic Group
hefur fengið vottun Marine Stew-
ardship Council (MSC) fyrir
allar afurðir úr þorski og
ýsu frá Íslandi. Í kjöl-
farið mun allur þorsk-
og ýsuafli af Íslands-
miðum fá heimild
til að bera vottunar-
merki MSC.
Um er að ræða
177.000 tonn af þorski
og 45 þúsund tonn af ýsu á
yfirstandandi fiskveiðiári. Ice-
landic Group hefur þá ákveðið
að bjóða öðrum útflytjendum og
framleiðendum sjávarafurða aðild
að vottuninni til að nýta
á eigin afurðir, en
þegar hafa nokkrir
útflytjendur óskað
eftir aðild eins
og kemur fram í
fréttatilkynningu.
Ástæðan fyrir
því að Icelandic
Group hafði frumkvæði
að MSC vottun voru kröfur
lykilviðskiptavina á mikilvægum
mörkuðum, segir forstjóri fyrir-
tækisins, Lárus Ásgeirsson, og
að niðurstöður vottunar MSC hafi
því mikla þýðingu fyrir félagið og
aðra sem kjósa að nýta sér hana.
Icelandic Group er einnig stofn-
aðili að Iceland Responsible Fis-
heries vottunarkerfinu sem stað-
festir uppruna fisks sem veiddur
er í íslenskri lögsögu undir ábyrgri
fiskveiðistefnu. Hins vegar
hafa íslenskir hagsmunaaðil-
ar í sjávar útvegi löngum gagn-
rýnt MSC vottunina harðlega og
er alls enginn samhljómur innan
greinarinnar um ágæti MSC-vott-
unarinnar. Þar hefur Landssam-
band íslenskra útvegsmanna farið
fremst í flokki. - shá
Marine Stewardship Council vottar allar afurðir úr þorski og ýsu við Ísland:
Icelandic fær sjálfbærnivottun
JAPAN Birnir sem sluppu úr búrum
sínum í dýragarði í Japan hafa
drepið tvær konur í Akita-héraði.
Um fjörutíu dýr eru í garðinum og
eru flest þeirra birnir.
Óljóst er hve margir sluppu út
en veiðimenn skutu nokkra birni í
gær. Konurnar tvær sem fundust
látnar eru taldar vera starfsmenn
í garðinum. Garðurinn er lokaður
yfir vetrartímann og nú liggur
snjór yfir öllu svæðinu.
Íbúum í nærliggjandi bæjum
hefur verið skipað að halda sig
innandyra.
Birnir sluppu úr dýragarði:
Réðust á tvær
konur og drápu
Fylgist þú með fréttaflutningi af
réttarhöldunum yfir fjölda-
morðingjanum Anders Behring
Breivik?
JÁ 36,7%
NEI 63,3%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Ferð þú með dósir og flöskur í
endurvinnslu?
Segðu þína skoðun á Vísir.is.
UTANRÍKISMÁL Sex samningar og
samkomulög voru undirrituð að
loknum fundi íslenskra og kín-
verskra stjórnvalda í Þjóðmenning-
arhúsinu í gær. Meðal annars skrif-
uðu íslenska ríkið og kínverska
fyrirtækið BlueStar undir viljayfir-
lýsingu um byggingu allt að 65 þús-
und tonna kísilmálmvinnslu.
Viðskipti og málefni Norður-
slóða voru meðal helstu umræðu-
efna í opinberri heimsókn Wen
Jiabao, forsætisráðherra Kína, til
Íslands, en hann kom til landsins í
gær. Ísland er fyrsti áfangastaður
Wen á ferð hans um Evrópu. Næst
er ferð hans heitið til Þýskalands,
þá Svíþjóðar og loks til Póllands.
Fjölmargir ráðherrar fylgdu Wen
hingað til lands, en Össur Skarp-
héðinsson utanríkisráðherra hitti
meðal annars Chen Deming, við-
skiptaráðherra Kína, á fundi þar
sem ræddar voru yfirstandandi
fríverslunarviðræður Íslands og
Kína. Þá barst talið að auknum
viðskiptum milli landanna síðustu
ár, en útflutningur íslenskra fyrir-
tækja til Kína jókst um tæp 60 pró-
sent milli áranna 2010 og 2011.
Auk viljayfirlýsingar um kísil-
málmsmiðju undirrituðu fram-
kvæmdastjóri Íslandsstofu og
forstjóri Þróunarbanka Kína sam-
komulag um ráðgjöf við fjárfest-
ingar. Þá skrifuðu fyrir tækin
Orka Energy Holding ehf. og China
Petrochemical Corporation undir
samstarfsyfirlýsingu um jarð-
varmanýtingu til húshitunar og
raforkuframleiðslu.
Þá var einnig rætt um málefni
norðurslóða og fagnaði kínverski
ráðherrann frekari viðræðum við
Ísland um málið. Utanríkisráð-
herrar beggja ríkjanna undirrituðu
rammasamning um norðurslóða-
samstarf. Þá skrifuðu utanríkis-
ráðherra Íslands og ráðherra haf-
mála í Kína samkomulag um aukið
samstarf á sviði sjávar- og norður-
slóðarannsókna. Þriðja undirritun
Össurs Skarphéðinssonar utan-
ríkisráðherra var samkomulag um
jarðhitasamstarf í þróunarríkjum,
sem ráðherra auðlinda- og landnýt-
ingar í Kína skrifaði einnig undir.
Þá fundaði Wen Jiabo með Ólafi
Ragnari Grímssyni forseta Íslands
í gærkvöldi. Ræddu þeir að sögn
jarðvarmanýtingu, norðurslóðir
og mannréttindamál.
Heimsókn Wen er fyrsta opin-
bera heimsókn starfandi kínversks
forsætisráðherra hingað til lands.
Wen hrósaði Íslandi fyrir árangur
sinn í uppbyggingu eftir hrunið og
bauð forsætisráðherra landsins í
opinbera heimsókn við fyrsta tæki-
færi. thorgils@frettabladid.is
thorunn@frettabladid.is
Sex samningar við
Kínverja undirritaðir
Wen Jiabo, forsætisráðherra Kína, kom til landsins í gær. Íslenskir og kínverskir
ráðamenn funduðu í Þjóðmenningarhúsinu. Að loknum fundi var skrifað undir
sex samninga, meðal annars um norðurslóðir og uppbyggingu kísilmálmsmiðju.
MÓTMÆLT Vinir Tíbets og Amnesty International voru meðal þeirra sem mótmæltu
fyrir utan Hörpu í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/HAG
TEKIÐ Á MÓTI RÁÐHERRA Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, og Össur
Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, voru meðal þeirra sem tóku á móti kínverska for-
sætisráðherranum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
KJÖRKASSINN