Fréttablaðið - 21.04.2012, Page 16

Fréttablaðið - 21.04.2012, Page 16
16 21. apríl 2012 LAUGARDAGUR greinar@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 Aðalfundur Árbæjarsóknar verður haldinn sunnudaginn 29. apríl 2012 og hefst kl. 12.15 að lokinni messu kl. 11.00 Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf Önnur mál. Sóknarnefnd Aðalsafnaðarfundur Árbæjarsóknar FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Atli Fannar Bjarkason (dægurmál) atlifannar@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir, ritstjórnarfulltrúi, sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is SPOTTIÐ ÞORSTEINN PÁLSSON AF KÖGUNARHÓLI ÞORSTEINS PÁLSSONAR Sumarið 1982 létu þeir Albert Guðmundsson og Eggert Haukdal af stuðn-ingi við ríkisstjórn Gunn- ars Thoroddsens. Ástæðan var efnahagssamvinnusamningur við Sovétríkin sem þeir töldu sýna að „kommúnistar“ réðu of miklu í stjórninni. Röksemd þeirra naut öflugs stuðnings Morgunblaðsins. Hjörleifur Guttormsson var einn áhrifaríkasti ráðherrann á þessum tíma. Nú er hann eins og þá virkur móthaldsmaður frekari Evrópusam- vinnu í þeim armi VG sem krefst uppgjörs í stjórnarsam starfinu og viðræðuslita við Evrópu sambandið. Síðasta tilefnið er sú ákvörðun framkvæmda- stjórnar að nýta réttarfarsheim- ildir til að koma sjónarmiðum sínum á fram- færi fyrir EFTA- dómstólnum. Andstaðan v ið Evrópu- sambandið nýtur jafn öflugs stuðnings Morgun blaðsins nú eins og móthaldið gegn efnahagssam- vinnu við Sovétríkin fyrir þrjá- tíu árum. Þá fannst mönnum að „kommúnistar“ réðu of miklu í utanríkismálum. Nú þykja sömu menn ráða of litlu um þau mál í stjórnarsamstarfinu. Ekki er ljóst hvort þessi mál- efnalega rökleysa hefur áhrif á stjórnina. En dæmin sýna að veikar ríkisstjórnir þola illa drag- súg af þessu tagi. Ríkisstjórn Gunnars Thoroddsens fór hins vegar ekki frá fyrr en tæpu ári eftir að leiknum var lokið. Núverandi ríkisstjórn var í póli- tískri sjálfheldu fyrir. Hún kýs fremur að sitja þar en að brjótast út úr vítahringnum með því að efna til kosninga. Nú ráða „kommúnistar“ of litlu! Sagan segir að pólitískar æfingar eins og þessar geti lamað ríkisstjórnir. Hitt er annað að þau mál- efni sem deilt er um standa slík veður gjarnan af sér. Þannig sá ný ríkisstjórn sem mynduð var 1983 enga ástæðu til að rifta samn- ingnum við Sovétríkin. Hagsmunir þjóðarinnar voru að skipta um rík- isstjórn en ekki að þrengja efna- hagssamvinnuna. Sama á við nú. Þó að framkvæmdastjórn Evrópu sambandsins komi sjónar- miðum sínum að í máli eftirlits- stofnunar Íslands, Noregs og Liechtenstein gegn Íslandi breytir það engu um að niðurstaða málsins veltur á dómi um réttarreglur en ekki á hnefarétti. Það er einmitt í þessu sem styrkur smáþjóða í alþjóðasam- starfi er fólginn. Framkvæmda- stjórn Evrópusambandsins er í stöðugum málarekstri við aðildar þjóðirnar. Það er háttur siðaðra manna þegar leysa þarf réttarágreining. Þess vegna er Evrópusamvinnan til. Að sönnu er ekki sjálfgefið að smáþjóðir vinni öll mál fyrir dómstólum. Stundum er því hyggilegra að semja. Einmitt það sjónarmið réði mestu um að ríkisstjórnin og Sjálfstæðisflokkurinn sam- einuðust um síðustu úgáfu af Icesave- samningnum. Þessi breiði meirihluti á Alþingi taldi hagsmuni Íslands betur varða í tvíhliða samningi við Breta og Hollendinga. Á hitt borðið réru forseti Íslands, Framsóknarflokk- urinn, Hreyfingin, vinstri væng- ur VG og minnihluti þingflokks sjálfstæðismanna. Þau höfðu for- ystu um að það samkomulag var fellt í þjóðaratkvæðagreiðslu. Sú ákvörðun opnaði fyrir að- komu Evr ópu sam bandsins. Það var skýrt og vel upplýst val. Þeir sem beittu sér fyrir þeim mála- lokum geta ekki hneykslast nú á þeirri stöðu sem málið er í. Þetta er sá dans sem þeir buðu upp í. Þjóðaratkvæðagreiðslan leysti ekki Icesave-deiluna. Hún flutti hana aðeins úr farvegi tvíhliða samninga og opnaði þar með leiðina að EFTA-dómstólnum. Ríkisstjórnir lamast en málin lifa Evrópusambandið leggur fullan þunga á lögfræði-leg sjónarmið sín í mál-inu. Það er sannarlega áhyggjuefni. En eftir að þjóðin hafnaði tvíhliða samningum er fráleitt að þetta réttarfarsúrræði gefi tilefni til úrsagnar úr EES eða viðræðuslita við Evrópu sam- bandið. Ekkert jafnvægi væri í slíkum viðbrögðum. Eðlilega eru skiptar skoðanir um hugsanlega Evrópusambands- aðild. Eftir sem áður á fólkið í landinu rétt á að meta hverjir framtíðarhagsmunir Íslands eru í því alþjóða samstarfi. Sá réttur verður ekki frá því tekinn með útúrsnúningum. Staða Íslands í samfélagi þjóð- anna helgast af langtímasjónar- miðum. Sú þjóð er ekki tekin alvar- lega sem lætur slíkt heimatilbúið moldviðri snúa stefnu landsins í hring. Það væri beinlínis andstætt íslenskum hagsmunum að útiloka aðildarkostinn af þessu tilefni. Ef það væru rétt rök að ákvörðun framkvæmdastjórnar Evrópu- sambandsins ætti að hafa áhrif á aðildar viðræðurnar ætti hún öllu frekar að hafa áhrif á veru Íslands í EES. Málið snýst nefnilega um stofnanir þess samnings og sam- eiginlegt regluverk þeirra þjóða sem eiga aðild að honum. Eins og málum er komið sjá menn ekki fyrr en á dómsdegi hvor kosturinn var betri: Samningurinn sem var hafnað eða dómurinn sem það val leiddi til? Þá má rífast um það. Valið skýrist á dómsdegi I nnanríkisráðherra hefur ákveðið að fallið skuli frá áætlunum um styttingu hringvegarins á Norðurlandi vestra og með því fallist á sjónarmið samtaka sveitarfélaga þar. Breytt lega hringvegarins hefði falið í sér að ekki væri farið í gegn um Blönduós og Varmahlíð. Nú þarf ekki endilega að vera að varðstaða um sjoppurekstur og aðra þjónustu við ferðamenn sé rót andstöðunnar við fyrirætlanir Vegagerðarinnar. Tilfærslan var raunar ekki á áætlun næstu tólf ára, líkt og vegamálastjóri upp- lýsti hér í blaðinu á fimmtudag. „Sveitarstjórnirnar hafa ekki getað gengið frá sínum aðalskipu- lagstillögum vegna óska okkar um að þetta verði inni. Því hefur verið þrýst mjög á um að þetta verði afgreitt,“ sagði Hreinn Haraldsson vegamálastjóri og benti á að almennt færu sveitarstjórnir með skipulagsvaldið. „Þær gefa leyfi fyrir öllum nýjum framkvæmdum og hafa þannig í hendi sér hvað þær heimila og hvað ekki.“ Málið vekur hins vegar spurningar um til hvaða þátta eigi að horfa þegar teknar eru ákvarðanir um skipulag sem hefur jafnvíð- tæk þjóðfélagsleg áhrif. Í þingsályktunartillögu sem fyrir áramót var lögð fram á Alþingi um svonefnda Svínavatnsleið, sem ráðherra hefur nú slegið út af borðinu, er bent á að stytting hringvegarins hafi mjög mikil áhrif á kostnað við flutninga og þar með væntan- lega á verð á vörum og þjónustu á landsbyggðinni. Er þá ótalinn eldsneytissparnaður allra annarra sem aka leiðina og umhverfis- ávinningur sem fæst af minna vegsliti, minni mengun og minni eldsneytisnotkun, fyrir utan svo ávinning af auknu umferðaröryggi. Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiða- eigenda, lýsir enda þeirri skoðun sinni í blaðinu í gær að sjónarmið og hagsmunir einstakra sveitarfélaga eigi ekki að ráða framtíðar- vegstæði hringvegarins. „Þá gætum við séð fram á að núverandi vegstæði þjóðvegar eitt verði fært til þess að koma hringveginum í gegnum Sauðárkrók. Það er eitthvað sem fæstir myndu telja eðli- legt,“ sagði hann. Tilfellið er að vald sveitarfélaga er mjög mikið þegar kemur að skipulagsmálum og spurning hvort ekki sé tími kominn á endur- skoðun á hvernig þeim málum er fyrir komið. Vitanlega er eðlilegt að sveitarfélög og þar með íbúar þeirra ráði miklu um sitt eigið nærsamfélag og uppbyggingu þess. En um leið fær vart staðist að þröngir hagsmunir misvelstæðra sveitarfélaga séu teknir fram yfir hagsmunamál sem snerta þjóðina alla. Þarna undir eru ekki einvörðungu vegamál heldur einnig auð- lindanýting og hvers konar stórframkvæmdir. Þannig getur lítið sveitarfélag bæði sett framkvæmdum stólinn fyrir dyrnar, svo sem varðandi lagningu á raflínum til stóriðju, eða heimilað stórfelldar virkjanaframkvæmdir sem áhrif hafa á nærliggjandi sveitar- félög, hvort heldur það er vegna jarðskjálfta og útblásturs frá jarð- varmavirkjunum, eða sandfoks frá uppistöðulónum. Þegar kemur að hlutum sem áhrif hafa víðar en innan sveitar þá ættu minni hagsmunir að víkja fyrir meiri. Stokka þarf upp fyrirkomulag skipulagsmála. Meiri hagsmunir víkja fyrir minni SKOÐUN Óli Kristján Ármannsson olikr@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.