Fréttablaðið - 21.04.2012, Page 19

Fréttablaðið - 21.04.2012, Page 19
LAUGARDAGUR 21. apríl 2012 19 arionbanki.is – 444 7000 Skráning á arionbanki.is Fjármálafræðsla fyrir ungt fólk með Jóni Jónssyni í Reykjavík og á Selfossi Jón Jónsson hagfræðingur, tónlistarmaður og fótboltakappi heldur áfram að fræða ungt fólk um fjármál á skemmtilegan hátt. Næstu fundir verða þriðjudaginn 24. apríl í Arion banka, Borgartúni 19 og miðvikudaginn 25. apríl í Sambíóunum Selfossi. Húsin opna kl. 19:00 og hefjast fundirnir kl. 19:30. Helstu atriði sem Jón fer yfir eru: Hvað eru peningar? Hvernig á að spara? Allir 12-16 ára krakkar eru sérstaklega velkomnir ásamt foreldrum sínum. Að læra að velja og hafna Peningar og hamingja Boðið verður upp á gos og pítsu og í lok fundar tekur Jón nokkur lög. Miðað við umræður undan-farið virðist sem allir séu orðnir sérfræðingar um sjávar- útveg. Margir virðast sjá róman- tík í því að fara út á trillu og sækja allan afla Íslendinga í sól og blíðu, syngjandi og trallandi. Allt á þetta rétt á sér, togarar, línuskip, uppsjávarskip, smá- bátar o.s.frv. og er fjölbreytnin án nokkurs vafa einn af kostum íslensks sjávarútvegs. Ákveðinn hópur fólks virðist hins vegar vera kominn í víga- hug þegar það heyrir minnst á togara, stærri skip og stórar útgerðir. Ætli síðan einhver að reyna að tala um fyrir þessu fólki og leiðrétta ákveðinn mis- skilning vegna van þekkingar þess á greininni, er sá hinn sami orðinn talsmaður LÍÚ eða útgerðarmannsins sem hann vinnur hjá. Ekki að hann sé að reyna verja starf sitt og lífsvið- urværi, fólk má ekki gleyma að það eru einstaklingar sem starfa hjá útgerðunum. Steingrímur J. Sigfússon á sér greinilega þann draum, miðað við frumvarpið, að verða stærsti útgerðarmaður landsins. Hann ætlar sér að búa til pott og ausa út fiski eftir sínum geðþótta- ákvörðunum. Hvar á að taka til þess að gefa öðrum? Enn eina ferðina á að ráðast á út gerðina. Breytingar sem hafa orðið í sjávarútvegi upp á síð kastið hafa mikið bitnað á stórum útgerðum t.d. vegna byggða- kvóta, línu ívilnunar og strand- veiða en svo má heldur ekki gleyma kvótaniðurskurði síðustu ára. Sökum þessa hafa útgerð- ir ekki haft undan við að kaupa kvóta einungis til að reyna að standa í sömu sporum og árið á undan og alltaf hafa menn fengið að heyra að þegar betur árar í hafinu munu þær fá að njóta þess með auknum kvóta. En nú skal bæta í segir ríkistjórnin, skatt- leggjum útgerðina til dauða og ef það dugar ekki skal það takast með innköllun kvóta. Ef menn gæfu sér tíma til að lesa þetta nýja frumvarp sæju þeir hversu glórulaust þetta er! Mig langar að biðja sjómenn að íhuga hvernig væntanlegar breytingar munu koma til með að hafa áhrif á stöðu okkar. Þetta frumvarp mun hafa mikil áhrif á okkur alla, nægir þar að nefna að sumir koma til með að missa vinnuna strax, hjá öðrum tekur þetta ferli aðeins lengri tíma en við munum allir finna fyrir tekjuskerðingu. Eins öruggt og það er að sólin komi upp á morgun mun út gerðin ekki takast á við stórauknar álögur vegna auðlindagjalds eða annars kostnaðar án þess að við sjómenn komum til með að taka þátt í því með þeim. Með þessu frumvarpi verður okkur stillt upp við vegg enn eina ferðina á móti útgerðarmönnum. Einmitt núna er það alveg jafn mikið okkar og útgerðar- manna að verja greinina gegn þessu fáránlega frumvarpi. Hagsmunir þessara tveggja hópa fara saman því þegar útgerðinni gengur vel gengur jafnan vel hjá okkur líka. Þegar tekinn er kvóti af út gerðinni missum við tekjur og þegar rekstrargrundvöllur útgerðarinnar er tekinn missum við vinnuna. Frá sjómönnum heyrist samt sem áður aldrei ein einasta stuna, hvorki núna né þegar sjómannaafslátturinn var af okkur tekinn. Eins fáránlegt og það hljómar eru útgerðar menn þeir einu sem eru að verjast þessari árás frá stjórnvöldum og við sjáum hve vel það gengur. LÍÚ er orðið eins og ljóti kallinn í ævintýrunum því ekki er talað um annað en LÍÚ grýluna. Síðan er hægt að spyrja sig hvað í ósköpunum gengur á hjá stéttarfélögum okkar. Þau virðast jafn ónýt og þessi blessaða ríkisstjórn og eitt af mörgu sem þau eiga sameigin- legt er fylgið sem er í frjálsu falli. Ég get ekki ímyndað mér að sjómenn séu sáttir með störf þessara manna því þegar þessi mál eru rædd af sjómönnum skilur enginn hvað félögin eru að gera, af hverju er ekki verið að mótmæla þessum áformum ríkisstjórnarinnar? Ég spyr mig hvort forsvarsmenn þeirra séu enn í 2007 gírnum í áskrift að laununum sínum og slétt sama hvað um okkur verður? Ættu þessir menn, sem eru í vinnu hjá okkur, ekki að gera eitthvað þarfara? Það heyrist ekki eitt einasta múkk í þeim þótt fyrirsjáanlegt sé að hópur sjómanna muni missa sitt lífs- viðurværi. Ég veit ekki í hvaða heimi formaður Sjómannasam- bands Íslands lifir né for maður vélstjórnarmanna, allavega ekki miðað við síðustu fréttir þeirra í fjölmiðlum. Það er eins og þeir séu einungis þarna til að ausa olíu á eldinn og reyna eftir fremsta megni að beina umræðunni frá raunveru legum hagsmunum okkar þessa stundina sem eru að halda okkar vinnu. Ég skora á sjómenn að fara að láta í sér heyra! Allir eru búnir að taka þátt í heitum umræðum um sjávarútvegsmál í borð- salnum og hvernig pólitíkin ætlar að traðka á okkur núna. Við höfum rætt þetta í þaula þar en nú þurfum við að koma okkar sjónarmiðum á framfæri til fólksins í landi svo okkar sjónarmið sökkvi ekki í sæ með næstu öldu. Ég neita að trúa því að við séum þannig menn að við látum eitthvað eins og fávisku stjórnmálamanna, vanþekkingu þeirra á greininni og út hrópanir á inter netinu verða til þess að kippt verður undan okkur fótunum. Við skulum snúa vörn í sókn og láta óánægju okkar í ljós með nýja frumvarpið og mót- mæla, við hreinlega látum ekki bjóða okkur hvað sem er! Þannig er ég viss um að stjórnvöld láti sér segjast, og horfist í augu við raunveruleikann og hverfi frá þessari stórhættulegu og fárán- legu herferð sinni gegn þessari starfsstétt. Sjómenn! Er ekki nóg komið? Sjávarútvegsmál Pálmi Gauti Hjörleifsson afleysingaskipstjóri á Oddeyrinni EA-210

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.