Fréttablaðið - 21.04.2012, Síða 38

Fréttablaðið - 21.04.2012, Síða 38
FÓLK| slök, og oft og tíðum skipta söngmelódía eða hæfileikar minna máli en dansspor og glæstir búningar. Keppnin er því sambland af tónlist, fegurðarsamkeppni, tískusýningu og óvæntum uppákomum, og sá fjölbreytileiki gerir hana einmitt skemmtilega.“ ROKKAR MEÐ GOÐSÖGN ÚR URIAH HEEP Eiríkur er á stöðugu ferðalagi um heiminn. Í vikunni söng hann á tvennum Freddie Mercury-tónleikum í Hörpu og á tónleikum Svanfríðar í Austurbæ, þar sem hann leysti Pétur heitinn Kristjánsson af hólmi. „Það er alltaf jafn yndislegt að standa í sporum Péturs og hann var sannarlega með okkur þetta kvöld. Pétur var einfaldlega þannig karakter að alltaf þegar við komum saman í hans nafni skín andi hans og einlæg gleði yfir.“ Eiríkur segist alsæll yfir að komast svo oft heim til Íslands, en hann hefur búið í árafjöld í Fredrikstad í Noregi. „Mér finnst ég heima í báðum löndum, en bíð alltaf eftir að flugfreyjurnar segi „Velkomin heim“ við lendingu í Keflavík. Sú notalega og fallega kveðja, sem ekkert annað flugfélag í Evrópu notar, hlýjar manni virkilega um hjartarætur,“ segir Eiríkur sem er reyndar svo títt hér heima að hann er oftsinnis stoppaður á götu og spurður hvort hann sé fluttur heim. „Ég er á stöðugu ferðalagi og líkar það vel,“ segir Eiríkur sem er á leið í tónleikaferðalag um Evrópu með tónlistargoðsögninni Ken Hensley sem var heimsþekktur á sjöunda áratugnum með rokkbandinu Uriah Heep og samdi vel flesta smelli þeirra, eins og Easy Living, Look at Yourself og Lady in Black. „Það er stórskemmtilegt samstarf og með bandinu syng ég meðal annars lög sem ég kunni utan að þegar ég var þrettán ára,“ segir Eiríkur og hlær. „Rokkið er lifibrauð mitt og uppeldisfræðin hobbý,“ segir Eiríkur, sem er menntaður kennari og dettur inn í forfallakennslu þegar stund gefst frá rokkinu. „Mér finnst alltaf jafn gaman að kenna krökkum, en rokkið eldist aldrei af mér og ég mun syngja þar til ég dett niður.“ ■ þlg Útskriftarsýning nemenda mynd- listardeildar og hönnunar- og arkitektúrdeildar Lista háskólans verður opnuð í Listasafni Reykjavíkur í Hafnarhúsi í dag klukkan 14. Þar má sjá skýjavél, rafmagns-kappakstursbíl, salt- framleiðslu í nýju formi, mál- verk séð úr Hörpunni, hljóðverk, gjörninga, vídeóverk, veftímarit um upprennandi listamenn og hönnuði, letur í beinum og það nýjasta úr tískunni svo dæmi séu nefnd. Verk nemendanna á sýn- ingunni eru afrakstur þriggja ára náms við Listaháskólann. Útskriftarsýningin vekur jafnan verðskuldaða athygli og fær góða aðsókn. Í fyrra sóttu 18.000 gestir sýninguna í þær tvær vikur sem hún stóð yfir. Sýningin í ár stendur til 6. maí og er opin frá 10 til 17 nema á fimmtu- dögum þegar opið er til 20. NÝ KYNSLÓÐ LISTAMANNA VEL SÓTT Í fyrra sóttu 18.000 gestir útskriftarsýningu LHÍ. Hér má sjá verk vöruhönnuðarins Helgu R. Jósepsdóttur, sem út- skrifaðist í fyrra. Mind Xtra 1990 • 2990 • 3990 Einnig stelpufatnaður fyrir 4-12 ára. Vorum að taka upp mikið úrval af stelpufatnaði 4-12 ára 3 VERÐ á 2. hæð. Með seinustu fyrirlestrum Dr. Michel Odent, einstakt tækifæri! Hinn 28 apríl næstkomandi mun Dr. Michel Odent halda fyrirlestur hér á landi. Titill fyrirlestrarins er „Childbirth: Are we at the bottom of the abyss?“ Ráðstefnan verður haldin klukkan 9.00 til 16.00 á Hótel Reykjavík Natura. Miðaverð er 17.900 krónur. Innifalið í verði er fyrirlestur Dr. Michel Odent, hádegisverður og léttar veitingar í hléum. Nánari upplýsingar: http://9manudir.is/odent Hægt er að nálgast miða og frekari upplýsingar hjá Fríðu Nicholls Hauksdóttur á netfangið odentaislandi@9manudir.is og í síma 8462392. Laugavegi 63 s: 551 4422 • laxdal.is LEÐURJAKKAR RÚSKINNSJAKKAR GÆÐI – GLÆSILEIKI laxdal.is ROKK OG EUROVISION Eiríkur segir áhuga Norð- manna á Eurovision gífur- legan, en þó sé áhugi Svía og gömlu austantjaldslandanna enn meiri. MYND/STEFÁN ■ FRAMHALD AF FORSÍÐU „Norð mönnum þykir íslenska lagið með þeim allra bestu í keppninni, en þeir eru alltaf hliðhollir Íslend- ingum. Okkar sigur væri að komast upp úr forkeppninni; allt annað er bónus.” HELGIN FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður auglýs- endum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is s 512 5473 Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is s 512 5432 Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.