Fréttablaðið - 21.04.2012, Side 68
21. apríl 2012 LAUGARDAGUR40
timamot@frettabladid.is
BRODDI JÓHANNESSON skólastjóri (1916-1994) var fæddur þennan dag.
„Tíska og tímahvörf eru máttug og bindandi í lífi okkar og starfi.“
Merkisatburðir
753 F.Kr. segir sagan að Rómúlus og Remus hafi stofnað Róm.
1648 Snjór var í mitti þennan dag á sléttlendi á Suðvesturlandi,
segir í Setbergsannál.
1800 Sex bátar fórust úr Staðarsveit og Bjarneyjum og með
þeim 37 manns í miklu norðanveðri.
1965 Nafnskírteini voru gefin út til allra Íslendinga, 12 ára og
eldri. Um leið voru tekin upp svonefnd nafnnúmer.
1971 Handritamálið: Fyrstu handritin komu heim frá Danmörku
og voru það Flateyjarbók og Konungsbók Eddukvæða.
1982 Bretar hófu aðgerðir til að endurheimta Suður-Georgíu frá
Argentínu með því að senda þangað sérsveitarmenn.
1989 Um 100 þúsund kínverskir mótmælendur söfnuðust
saman á Torgi hins himneska friðar í Peking í Kína.
Alþingi Íslendinga samþykkti frum-
varp til laga þennan dag árið 2009
sem gerðu það refsivert að greiða
fyrir vændi. Lögin tóku þegar gildi.
Eftir það mátti sá sem staðinn var að
kaupum á vændi eiga von á sekt eða
allt að eins árs fangelsisvist. Skálað
var í kampavíni á skrifstofu Stígamóta
af þessu tilefni og Guðrún Jónsdóttir,
talskona samtakanna, sagði lögin hafa
afar mikilvæga og táknræna þýðingu.
„Við hrósum þessari femínísku ríkis-
stjórn í hástert,“ sagði hún og benti
á að skoðanakönnun Capacent frá
árinu 2007 hefði sýnt að sjötíu prósent
þjóðarinnar væru hliðholl þessari
breytingu.
Með þessum lögum urðu Íslend-
ingar þriðja þjóðin til að fara hina
svokölluðu sænsku leið. Svíar stigu
fyrstir þetta skref og Norðmenn urðu
aðrir í röðinni.
ÞETTA GERÐIST: 21. APRÍL 2009
Kaup á vændi gerð refsiverð
Tvö af öndvegisverkum Mozarts verða
flutt á hátíðatónleikum í Hallgríms-
kirkju í dag og á morgun og hefjast
báða dagana klukkan 17. Tilefnið er að
Mótettukórinn og Listvinafélag Hall-
grímskirkju verða þrítug á þessu ári.
Reyndar verða líka tuttugu ár í haust
frá því pípuorgelið í kirkjunni var
vígt, svo mörgu er að fagna.
Verkin á tónleikunum eru Messa í C-
moll, sem Mozart samdi á hátindi ferils
síns sem þakklætisvott til almættisins
fyrir bata unnustu sinnar, Konstanze
Lange, eftir erfið veikindi. Hitt er
Requiem sem er eitt dáðasta verk allra
tíma. Mótettukórinn flutti það fyrir
fullu húsi á fyrstu tónleikum sínum í
nývígðri Hallgrímskirkju 1986.
Inga Rós Ingólfsdóttir er fram-
kvæmdastjóri Listvinafélags Hall-
grímskirkju. Hún segir mann sinn,
Hörð Áskelsson organista, hafa
gengist fyrir stofnun félagsins haustið
1982, þegar hann var nýtekinn til
starfa. „Kirkjan var hálfkláruð en
metnaðurinn var mikill og framtíðar-
sýnin háleit í kringum þetta glæsi-
lega hús,“ rifjar hún upp. „Kirkjan
hafði ekki peninga til að leggja í tón-
leikahald og myndlistarsýningar og
því var safnað saman listvinum sem
hafa verið bakhjarlar listastarfsins í
kirkjunni.
Mótettukórinn var stofnaður á sama
tíma með þá hugsjón að það yrði til
öflugur og vandaður kór þegar kirkjan
yrði vígð sem var svo fjórum árum
seinna. Kórinn hefur starfað af fullum
krafti allar götur síðan og fengið nýjan
innblástur við hvern stórviðburðinn af
öðrum. Í honum eru alltaf í kringum 50
manns en ég giska á að um 500 manns
hafi komið við í honum á þessum þrjá-
tíu árum. Þegar hann byrjaði var
takmarkið að í honum væri fólk á
aldrinum 16-40 ára en síðan hafa efri
mörkin færst ofar. Hörður hlær nú að
því að hann hafi tekið mið af sjálfum
sér, hann var svo ungur þegar hann
byrjaði. Svo eldist fólk með honum.
Alltaf eru margir háskólanemendur
í kórnum og stundum hætta þeir um
tíma vegna veru erlendis eða annarra
aðstæðna en koma aftur seinna. Sumir
hafa verið með eiginlega frá stofnun,
með örstuttum hléum. Svo er líka fal-
legt að sjá að margir fyrrverandi kór-
félagar sækja vel viðburði í kirkjunni
og hafa jafnvel gengið í Listvina-
félagið, þó þeir séu ekki í kórnum.“
Inga Rós segir um 400 manns
í Listvinafélaginu og kveðst mjög
þakklát fyrir þann öfluga hóp sem
borgi árgjald og tryggi þannig
grunn rekstrar fé fyrir starfsemina í
kirkjunni. Þeir komi víða að, þvert á
borgarmörk og landamæri og mæti á
viðburði þegar þeir geti. „Fólk sýnir
Listvinafélaginu tryggð og það skapar
umgjörð utan um starfið. Það er stór-
kostlegt og þakkarvert,“ segir hún og
getur þess líka að í Mótettu kórnum
sé fólk úr öllum stéttum sem oft gefi
vinnu sína þegar eitthvað þurfi að
gera. Slíkt verði aldrei metið til fjár.
„Þetta er auðvitað ákveðin hugsjón
að halda uppi öflugu listalífi þrátt
fyrir allan samdráttinn, maður gefur
vinnuna sína hægri vinstri því það er
svo mikil ánægja fólgin í því ef allt
gengur vel.“ gun@frettabladid.is
LISTVINAFÉLAG HALLGRÍMSKIRKJU OG MÓTETTUKÓR: FAGNA ÞRÍTUGSAFMÆLI
Hugsjón að halda uppi listalífi
LISTAFÓLK Inga Rós ásamt einsöngvurum á tónleikunum, þeim Magnúsi Baldvinssyni, Þóru Einarsdóttur, Auði Guðjohnsen, Herdísi Önnu Jóns-
dóttur og Elmari Gilbertssyni svo og Herði Áskelssyni, stjórnanda Mótettukórsins. FRÉTTABLAÐIÐ/HAG
Vaktsími:
581 3300 & 896 8242
www.utforin.is
Allan sólarhringinn
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir Hermann Jónasson
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
Innilegar þakkir færum við þeim sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
móður okkar, tengdamóður, ömmu
og langömmu,
INGU SIGURLAUGAR
ERLENDSDÓTTUR
Sillu frá Vatnsleysu,
Rauðalæk 55.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Skjóls 3. hæð fyrir hlýja og góða
umönnun.
Tómas Hjálmarsson
Kristín Hjálmarsdóttir Valgeir Þórðarson
Birna Reynisdóttir
Linda Heide Reynisdóttir Sigfús Jónsson
Heiðbjört, Hjálmar Jón, Hlynur Jón.
Okkar innilegustu þakkir til þeirra fjölmörgu
sem sýnt hafa okkur vináttu og samhug við
fráfall okkar ástkæra
EYJÓLFS RÚNARS SIGURÐSSONAR
Miðvangi 57, Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk deildar 11 G
á LSH fyrir einstaka umönnun og sérstaka
hlýju. Starfsfólk Setbergsskóla í Hafnarfirði,
sem fylgt hefur okkur eftir og aðstoðað í veikindum og við fráfall
Eyjólfs, fær einstakar þakkir frá okkur.
Rannveig Vigfúsdóttir
Vigfús Almar Eyjólfsson
Inga María Eyjólfsdóttir Sigurður Kristinn Ómarsson
Inga María Eyjólfsdóttir Sigurður Hallur Stefánsson
Huldar Örn Sigurðsson Sólveig Ósk Jónsdóttir
Innilegar þakkir til allra þeirra sem
auðsýndu okkur samúð og vinarhug við
andlát og útför hjartkærrar móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
HÓLMFRÍÐAR SIGURÐARDÓTTUR
Dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi.
Starfsfólki Dvalarheimilis aldraðra í
Borgarnesi eru færðar alúðarþakkir
fyrir einstaka umönnun og hlýju.
Ása Baldursdóttir Sveinn Gunnar Hálfdánarson
Erlendur Sigurður Baldursson Kristrún Ísaksdóttir
Kristín Ingibjörg Baldursdóttir Flemming Jessen
ömmu- og langömmubörn.
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem
sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við
andlát og útför eiginkonu minnar, móður,
tengdamóður og ömmu,
SIGRÚNAR GUÐNADÓTTUR
Sléttuvegi 23.
Vigfús Ólafsson
Ólafur Vigfússon María Anna Clausen
Vigfús Már Vigfússon Ingunn Sigurðardóttir
Þórhallur Vigfússon Þuríður Guðjónsdóttir
Valgerður Vigfúsardóttir
og barnabörn.
70 ára afmæli
Jóhannes Á.
Jónasson
verður sjötugur 26. apríl.
Í tilefni 70 ára afmælis míns býð ég
ætting jum og vinum að samgleðjast
mér í Víkingasal Hótel Loftleiða á
morgun, sunnudaginn 22. apríl, milli
kl. 15-18.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
KRISTÍN HALLDÓRSDÓTTIR
áður Fannborg 8,
andaðist á Hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð,
mánudaginn 16. apríl.
Jarðarförin fer fram frá Kópavogskirkju
fimmtudaginn 26. apríl kl.15.00.
Fyrir hönd vandamanna,
Haukur Högnason
Hildur Högnadóttir
Hildigunnur Davíðsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.