Fréttablaðið - 21.04.2012, Side 74
21. apríl 2012 LAUGARDAGUR46
Hvað ætlið þið að kenna gestum
á Barnamenningarhátíð? Við
ætlum að kenna börnum, full-
orðnum og öllum sem vilja læra
breikdans. Við ætlum að fara
yfir grunninn og grunnspor
og passa að allir dansi við tón-
listina. Og auðvitað ætlum við að
passa að allir skemmti sér.
Er ekki erfitt að breika? Já og
nei. Það eru sum trikk sem eru
erfið en það er líka mjög mis-
munandi hvernig hver og einn
dansar. Engir tveir dansa eins,
hver og einn er með sinn eigin
stíl. Sumir eru til dæmis mikið í
að gera alls konar fimleikabrögð
eða snúa sér á höfðinu á meðan
að aðrir halda sig við það að
rokka eins og þeir gerðu í New
York þegar dansinn
varð til.
Geta allir lært að
snúa sér á höfð-
inu og hoppa á
höndunum?
Ef þú trúir á
sjálfan þig
þá geturðu
gert allt sem
þú óskar þér.
Þetta er líka
spurning um æfingu, það nær
enginn að snúa sér á höfði í
fyrstu tilraun. Æfingin skapar
meistarann. Ef þú dettur, þá
stendurðu upp og reynir aftur.
Hvað hafið þið í Area of Stylez
verið að gera frá því þið tókuð
þátt í Dans
Dans Dans?
Dans Dans
Dans hefur
opnað
margar dyr
fyrir okkur
og við erum
allir rosa-
lega þakk-
látir fyrir
það. Eftir
Dans Dans
Dans
höfum
við
fengið margar sýningar og það
er búið að bjóða okkur vinnu við
að kenna krökkum breikdans. En
við höfum samt ekki misst okkur
í allri athyglinni, við erum ennþá
sömu orkumiklu strákarnir sem
mættu í áheyrnar prufurnar í
Dans Dans Dans.
Hver kenndi þér að dansa? Ég
byrjaði að dansa þegar ég var
2 ára gamall á tánum hennar
ömmu en ég veit ekki hvort
það telst með. Ég byrjaði í sam-
kvæmisdansi hjá Dansskóla
Jóns Péturs og Köru þegar ég
var yngri, en það var einn af
bestu vinum mínum sem kom
mér inn í breikið.
Hvaða áhugamál hefur þú,
önnur en dansinn? Áhugamál
mitt er bara dansinn en þegar
að ég er ekki á dansæfingu þá
er þrennt sem kemur til
greina. Spila
tölvu-
leiki, elda mér eitthvað að borða
eða að teikna.
Áttu þér einhverja fyrirmynd í
dansinum? Já, margar! Það eru
tveir í uppáhaldi hjá mér núna,
Roxrite frá Bandaríkjunum og
Hong 10 frá Suður Kóreu. Ég
hef fylgst með Hong 10 síðan ég
byrjaði í breikdansinum.
Verður Area of Stylez enn þá til
þegar þið verðið orðnir gamlir
karlar? Það er aldrei að vita.
En mér finnst mjög ólíklegt að
við verðum að gera það sem við
erum að gera núna þegar að við
erum allir orðnir
gamlir.
Fáðu þér góða
mjólkurskvettu!
www.ms.is
krakkar@frettabladid.is
46
Þú getur sent brandara til krakkar@frettabladid.is
Þennan leik er hægt að leika hvort heldur
sem er úti og inni.
Einn grúfir en aðrir þátttakendur standa að baki
honum, nokkuð langt frá, annað hvort við vegg
eða innan einhverra marka sem telst vera borg.
Sá sem grúfir segir hátt, hægt og skýrt: „Einn,
tveir, þrír, fjórir, fimm, Dimmalimm.“ Á meðan
hraða hinir krakkarnir sér af stað í áttina til hans.
En um leið og hann hefur sleppt síðasta orðinu
lítur hann við og þá eiga krakkarnir að standa
grafkyrrir eins og myndastyttur. Ef einhver er á
hreyfingu verður sá að snúa við og byrja aftur.
Sá sem grúfir snýr sér aftur upp að veggnum og
endurtekur rununa og krakkarnir halda áfram að
nálgast hann. Þannig gengur þetta þar til ein-
hver er kominn svo nærri þeim sem grúfir að
hann getur klukkað hann. Þá þjóta allir aftur
að hinum veggnum (eða í borgina) og sá sem
grúfði reynir að ná þeim. Sá fyrsti sem hann nær
að klukka á að grúfa næst. Ef hann nær engum
verður hann að grúfa aftur.
Einn tveir þrír fjórir fimm
Jón: „Af hverju er litla systir
þín að gráta?“
Gunna: „Vegna þess að
ég vildi ekki gefa henni af
namminu mínu.“
Jón: „Er nammið hennar
búið?“
Gunna: „Já, hún var líka
hágrátandi á meðan ég
borðaði það.“
Hafið þið heyrt um minka-
búið sem minnkaði og
minnkaði þangað til að það
var búið?
Hvers vegna læðast fílarnir
alltaf fram hjá apótekinu?
Til þess að vekja ekki svefn-
töflurnar.
Hvað fær fé bóndans án
þess að borga?
Refurinn.
ENGIR TVEIR DANSA EINS
Kristófer Aron Garcia byrjaði að dansa á tánum á ömmu sinni þegar hann var
tveggja ára og hefur ekki hætt síðan. Í dag klukkan 15 verður hann á Barnamenn-
ingarhátíð í Iðnó ásamt félögum sínum í Area of Stylez og kennir gestum að breika.
FJÓRAR tíu ára stelpur sem skipa Rokkhljómsveit Íslands koma fram á
lokahátíð Barnamenningarhátíðar í Laugardalslaug á morgun. Tónleik-
arnir hefjast klukkan 13 en á þeim spila líka Pollapönk og White Signal.
KRISTÓFER Á
HVOLFI Allir þeir sem
eru duglegir að æfa sig og
hafa trú á sjálfum sér geta lært að
breika, segir Kristófer Aron.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN