Fréttablaðið - 21.04.2012, Side 78

Fréttablaðið - 21.04.2012, Side 78
21. apríl 2012 LAUGARDAGUR50 50 menning@frettabladid.is Jónsmessa nefnist nýtt leikverk eftir Hávar Sigurjónsson, sem frumsýnt verður í Þjóðleikhúsinu í október næstkomandi. Forvinna er hafin með leikhópi en verkið verður fullæft í haust. Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðleikhúsinu er verkið tragí- kómískt og fjallar um íslenska fjölskyldu í nútímanum sem kemur saman í sumarbústað fjölskyld- unnar til að fagna hálfrar aldar brúðkaupsafmæli foreldranna. Saga fjölskyldunnar endurspegl- ar það samfélag sem hún hefur hrærst í, ættföðurnum er áfram um að endursemja þá sögu og gefur afkomendum sínum ekkert eftir í baráttunni um yfirráð yfir minningum, völdum og eignum. Kristbjörg Kjeld og Arnar Jóns- son fara með hlutverk foreldranna; Þorsteinn Bachmann og Atli Rafn Sigurðsson leika synina; Edda Arnljótsdóttir og Maríanna Clara Lúthersdóttir leika tengda- dæturnar og Þórunn Arna Krist- jánsdóttir leikur sonardótturina. Leikstjóri er Harpa Arnar- dóttir, sem vakti athygli fyrir upp setningu sína á Súldarskeri og leikstýrir hér sínu fyrsta verki í Þjóðleikhúsinu. Þjóðleikhúsið hefur áður sýnt tvö leikrit eftir Hávar, Pabba strákur (2003) og Grjótharðir (2005) en verk hans Englabörn (2001) og Halla og Kári (2008) voru sýnd í Hafnarfjarðarleikhúsinu. Þjóðleikhúsið frumsýnir Bækur ★★★ Korter Sólveig Jónsdóttir Mál og menning Þetta líf, þetta líf Þegar kápa fyrstu skáld- sögu Sólveigar Jónsdóttur er skoðuð er ekki laust við að maður telji sig á kunnuglegum slóðum. Teiknaðar myndir af fjórum konum prýða kápuna, ein er rauðhærð, önnur ljóshærð og svo eru tvær dökkhærðar með mismunandi hár- greiðslur. „Ætli þessi rauð- hærða sé fremur kaldlyndur lögfræðingur, sú ljóshærða lauslát en fyndin, sú dökk- hærða sómakær kona sem lætur sig dreyma um barneignir... o.s.frv?“ kemst maður ekki hjá því að hugsa. „Og ætli þær hittist alltaf á kaffihúsum til að tala um karlmenn á milli þess sem þær kaupa sér Prada?“ Skvísubókmenntirnar / sjónvarpsþættirnir eru velþekkt form og bókin Korter virðist smellpassa inn í þá hefð (og er þar að auki gefin út í hinni svo- kölluðu „Handtöskuseríu“ Forlagsins). En ekki skyldi maður dæma bókina eftir kápunni einni saman. Jú, víst fjallar Korter um fjórar konur, en þær eru ekki vinkonur, þó að sögur þeirra skarist á nokkrum stöðum og kaffihúsið sem bókin er kennd við komi við sögu þeirra allra. Konurnar eru allar nálægt þrítugu; Hervör, sem vinnur á kaffihúsinu, Karen, atvinnulaus djammari, Silja er læknir og Mía starfar í fataverslun. Sjónarhorninu er skipt nokkuð jafnt á milli og lesendur fá að kynnast konunum í köflum sem bera nöfn þeirra. Allar eiga konurnar það sameigin- legt að hafa orðið fyrir einhvers konar missi, tengdum karlmönnunum í lífi þeirra. Með einni undantekningu eru það karlarnir sem halda fram hjá og/ eða yfirgefa þær og sagan gengur út á að leyfa lesendum að fylgjast með því hvernig þær „vinna úr sínum málum“ eins og það er kallað. Korter er samtímasaga úr Reykjavík og vissulega er komið inn á margt sem ungar konur þekkja. Raunar allar manneskjur, ef út í það er farið. Tengsl við fjölskyldur og vini, veikindi og dauði, atvinnuleysi og skítadjobb, baráttan við LÍN og ópraktískt háskólanám, ástin og ástarsorgin... Þetta líf, þetta líf. Við lestur Korters kom mér svolítið á óvart hversu lítil kvennasamstaðan er í sögunni. Skvísubækur segja nefnilega gjarnan (eins og ég minntist á hér að ofan) frá nokkrum vinkonum sem næra og styðja hver aðra með sam- ræðum og góðum verkum, en í þessari sögu eru vinir kvennanna karlkyns vinnufélagi, bræður, afi og amma – og gamall maður sem stundar kaffihúsið Korter. Vinkonur eru næstum alveg teknar út úr jöfnunni og aðrar konur birtast söguhetjunum helst sem ógn, þar sem þær stela kærustum og eru (í augum þeirra) hinar mestu skækjur. Ég klóraði mér heilmikið í höfðinu þegar ég áttaði mig á því að þær íslensku skvísubækur sem ég hef lesið (Dís, Lýtalaus og Korter) greina allar frá nánu sambandi aðalpersónanna við sér óskyld gamalmenni. Eitt atriði í Korteri er raunar svo líkt öðru í annarri bók (ég er að reyna að segja ekki of mikið) að það er beinlínis pínlegt. Sagan er alltaf fremur áhugaverð og aldrei leiðinleg. Hún er líka að flestu leyti dýpri en sambærilegar bækur og telst að mínu mati fyrirtaks byrjenda- verk, þótt tilþrif í stíl og persónusköpun séu ekki mikil. Dramað er meira en fyndnin, en góðan slatta af hvoru tveggja má finna í bókinni. Þar sem sögur kvennanna skarast, oft á óvæntan máta, er fagmannlega að verki staðið. Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir Niðurstaða: Korter er ansi hreint skemmtileg bók og dýpri en flestar úr skvísugeiranum en passar þó fullkomlega inn í formið; saga úr sam- tímanum, sem greinir frá glímu ungra kvenna við ástina og lífið. Sagan og framtíðin Málþing um ferðamál á Kirkjubæjarklaustri Ferðamálafélag Skaftárhrepps boðar til málþings í félagsheimilinu Kirkjuhvoli,dagana 26. og 27. apríl 2012, í tilefni af 20 ára afmæli félagsins. Dagskrá: Fimmtudagur 26.04.2012 13.30 Skráning í félagsheimilinu Kirkjuhvoli 14.00 Setning: Sveinn Hreiðar Jensson formaður Ferðamálafélags Skaftárhrepps 14.05 Ávarp: Fulltrúi frá Skaftárhreppi 14.15 Ávarp: Elías Gíslason forstöðumaður Ferðamálastofu 14.25 Upphaf ferðaþjónustu í Skaftárhreppi: Jón Helgason í Seglbúðum, áhugamaður um ferðamál í Skaftárhreppi 14.50 Saga Ferðamálafélags Skaftárhrepps: Ólafía Jakobsdóttir forstöðumaður Kirkjubæjarstofu 15.05 Afmæliskaffi Ferðamálafélagsins og opnuð sýning um sögu fþess 15.30 Vatnajökulsþjóðgarður: Snorri Baldursson Þjóðgarðsvörður 15.50 Katla Jarðvangur: Vilborg Arna Gissurardóttir rekstrarstjóri 16.10 Opinn Landbúnaður: Berglind Hilmarsdóttir bóndi 16.25 Friður og frumkraftar: Jón Grétar Ingvason formaður 16.45 Markaðsstofa Suðurlands: Davíð Samúelsson framkvæmdastjóri 16.55 Fyrirspurnir og umræður 17.30 – 19.00 Gönguferð um nágrenni Kirkjubæjarklausturs með ferðaþjónustufyrirtækinu Slóðum. 20.00 Fordrykkur á Hótel Klaustri 20.30 Hátíðarkvöldverður og kvöldvaka á Hótel Klaustri Föstudagur 27.04.2012 09.45 Menning og ferðaþjónusta: Guðrún Helgadóttir prófessor við Háskólann á Hólum 10.20 Sjálfbærni í náttúrutengdri ferðamennsku: Rannveig Ólafsdóttir dósent við Háskóla Íslands 10.55 Kaffihlé 11.10 Mat á fjölda ferðamanna og dreifing þeirra í tíma og rúmi: Rögnvaldur Ólafsson forstöðumaður Stofnunar rannsóknarsetra Háskóla Íslands 11.45 Vinnuhópar starfa og hádegisverðarhlé Umsjón með vinnuhópastarfi: Sigurborg Kr. Hannesdóttir hjá ILDI þjónustu og ráðgjöf. 13.15 Erindi: John Swarbrooke prófessor við Manchester Metropolitan Háskólann í Englandi. Hann er einn af þekktustu fræðingum á sviði markaðsfræði í vistvænum og náttúrutengdum ferðamálum í heiminum í dag. 13.45 Niðurstöður vinnuhópa: Sigurborg Kr. Hannesdóttir hjá Ildi þjónustu og ráðgjöf 14.00 Málþingsslit: Sveinn Hreiðar Jensson formaður Gestir málþingsins eru beðnir um að skrá þátttöku í síma 487 4900 eða á netfanginu ferðamalafelag@gmail.com fyrir kl. 12.00 á hádegi miðvikudaginn 25.apríl nk. Nánari upplýsingar eru á www.klaustur.is og í síma 892 9650. Hafnarborgin nefnist sýning á nýjum verkum eftir myndlistar- manninn Hrafnkel Sigurðsson, sem opnar í Hafnarborg í dag. Efni viður sýningarinnar er að mestu leyti sóttur í slippi þar sem skip eru dregin á land til viðhalds og endurbóta. Stál, tjara og málning skapa stemningu sem vart verður komist hjá að tengja við athafnasvæði karlmanna. Á sýning- unni mynda myndbandsinnsetning, ljósmyndir, stórt veggverk úr fundnum efniviði og textíll heild sem bæði hefur sterk tengsl við þennan uppruna en einnig við fyrri verk Hrafnkels. Á sýningunni er einnig að finna verk þar sem litur, lykt og áferð eru áþreifanlegri en í fyrri verkum Hrafn- kels, meðal annars verk unnið úr notuðum tuskum. Sýningin opnar í Hafnarborg klukkan 15 í dag. Hafnarborgin í Hafnarborg BARNAMENNINGARHÁTÍÐ LÝKUR Barnamenningarhátíð í Reykjavík lýkur með buslugangi í Laugardagslaug í dag. Pollapönk tekur lagið á sundlaugarbakkanum, sem og Rokkhljómsveit Íslands og unglingahljómsveitin White Signal. Sirkus Íslands og fimleikadeild Ármanns sýna listir sínar og afhjúpað verður ógurlegt blöðruskrímsli. Dagskráin hefst klukkan 13. Frítt fyrir 18 ára og yngri.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.