Fréttablaðið - 21.04.2012, Page 84

Fréttablaðið - 21.04.2012, Page 84
21. apríl 2012 LAUGARDAGUR56 Victoria Beckham vonast til að Twitter- og Facebook-síður sínar muni sýna aðdáendum sínum hvernig manneskja hún er í raun og veru. „Ég held að vinir mínir og viðskiptavinir fái gott tækifæri til að kynnast mér og mínu skopskyni í gegnum tístin mín á Twitter. Þar getur fólk séð hvernig ég er í raun og veru,“ sagði Kryddpían fyrrverandi, sem hefur haslað sér völl sem fatahönnuður að undanförnu. Hún er þessa dagana í Kína og hefur verið dugleg að tísta frá gangi mála. Á afmælisdegi sínum fyrir skömmu opnaði Beckham opinbera Facebook-síðu sína. Hún getur ekki beðið með að sýna þar á sér nýja hlið. „Ég vil að aðdáendur mínir geti fylgst bæði með mér sem persónu og vörumerkjum mínum. Ég notaði Twitter mikið í fyrra, þar á meðal á tískuvikunni í New York, og það gaf mér tækifæri til að deila reynslu minni með fólkinu í kringum mig. Ég vil halda því áfram.“ Dugleg á Facebook og Twitter ALLTAF Á NETINU Victoria Beckham ætlar að vera dugleg á Facebook og Twitter í framtíðinni. Ítalska sjónvarpskonan Elisabetta Canalis er hætt með asna prikinu Steve-O úr sjónvarps þáttunum Jackass. Canalis var áður með leikaranum George Clooney í tvö ár. Radaronline.com greindi frá því í janúar að Canalis og Steve-O væru að slá sér upp. „Steve-O hætti með Elisabettu vegna drykkju hennar. Hann tekur edrúmennsku sína mjög alvar- lega og vill ekki eiga á hættu að falla. Honum þykir mjög vænt um Elisabettu og þess vegna hefur hann komið henni í samband við fólk sem getur aðstoðað hana með drykkjuna, á meðan hún vinnur í sínum málum ætlar hann að halda áfram að vinna í sjálfum sér,“ var haft eftir vini Steve-O. Tekst á við drykkjuna Á LAUSU Elisabetta Canalis er hætt með Steve-O og farin að takast á við drykkjuvanda sinn. NORDICPHOTOS/GETTY Lindsay Lohan meiddist lítil- lega þegar hún fékk glas í sig á skemmtistaðnum Smoke and Mirrors í Los Angeles. Bifreið sem Lohan var far- þegi í lenti í árekstri fyrir utan skemmtistaðinn og hringdi Lohan þá í föður sinn til að koma sér og vinum sínum til aðstoðar og beið hans inni á staðnum. „Kona sem sat rétt hjá gerði grín að Lindsay og hún sagði henni að þegja. Konan henti þá glasinu sínu í átt að Lindsay,“ sagði sjónarvottur. Sem betur fer var Michael Lohan þá kominn á staðinn og teymdi dóttur sína burt og kom þannig í veg fyrir frekari átök. Lohan varð fyrir árás ÓHEPPIN Lindsay Lohan varð fyrir árás á skemmtistað í Los Angeles. NORDICPHOTOS/GETTY

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.