Fréttablaðið - 21.04.2012, Blaðsíða 84
21. apríl 2012 LAUGARDAGUR56
Victoria Beckham vonast til að Twitter- og Facebook-síður sínar muni
sýna aðdáendum sínum hvernig manneskja hún er í raun og veru. „Ég
held að vinir mínir og viðskiptavinir fái gott tækifæri til að kynnast
mér og mínu skopskyni í gegnum tístin mín á Twitter. Þar getur fólk séð
hvernig ég er í raun og veru,“ sagði Kryddpían fyrrverandi, sem hefur
haslað sér völl sem fatahönnuður að undanförnu. Hún er þessa dagana í
Kína og hefur verið dugleg að tísta frá gangi mála.
Á afmælisdegi sínum fyrir skömmu opnaði Beckham opinbera
Facebook-síðu sína. Hún getur ekki beðið með að sýna þar á sér
nýja hlið. „Ég vil að aðdáendur mínir geti fylgst bæði með mér sem
persónu og vörumerkjum mínum. Ég notaði Twitter mikið í fyrra,
þar á meðal á tískuvikunni í New York, og það gaf mér tækifæri til
að deila reynslu minni með fólkinu í kringum mig. Ég vil halda því
áfram.“
Dugleg á Facebook
og Twitter
ALLTAF Á NETINU Victoria
Beckham ætlar að vera
dugleg á Facebook og
Twitter í framtíðinni.
Ítalska sjónvarpskonan
Elisabetta Canalis er hætt
með asna prikinu Steve-O úr
sjónvarps þáttunum Jackass.
Canalis var áður með leikaranum
George Clooney í tvö ár.
Radaronline.com greindi frá
því í janúar að Canalis og Steve-O
væru að slá sér upp. „Steve-O
hætti með Elisabettu vegna
drykkju hennar. Hann tekur
edrúmennsku sína mjög alvar-
lega og vill ekki eiga á hættu að
falla. Honum þykir mjög vænt um
Elisabettu og þess vegna hefur
hann komið henni í samband við
fólk sem getur aðstoðað hana með
drykkjuna, á meðan hún vinnur í
sínum málum ætlar hann að halda
áfram að vinna í sjálfum sér,“ var
haft eftir vini Steve-O.
Tekst á við
drykkjuna
Á LAUSU Elisabetta Canalis er hætt
með Steve-O og farin að takast á við
drykkjuvanda sinn. NORDICPHOTOS/GETTY
Lindsay Lohan meiddist lítil-
lega þegar hún fékk glas í sig
á skemmtistaðnum Smoke and
Mirrors í Los Angeles.
Bifreið sem Lohan var far-
þegi í lenti í árekstri fyrir utan
skemmtistaðinn og hringdi Lohan
þá í föður sinn til að koma sér og
vinum sínum til aðstoðar og beið
hans inni á staðnum.
„Kona sem sat rétt hjá gerði
grín að Lindsay og hún sagði
henni að þegja. Konan henti þá
glasinu sínu í átt að Lindsay,“
sagði sjónarvottur. Sem betur
fer var Michael Lohan þá kominn
á staðinn og teymdi dóttur sína
burt og kom þannig í veg fyrir
frekari átök.
Lohan varð
fyrir árás
ÓHEPPIN Lindsay Lohan varð fyrir árás á
skemmtistað í Los Angeles.
NORDICPHOTOS/GETTY