Fréttablaðið - 21.04.2012, Side 85
LAUGARDAGUR 21. apríl 2012 57
Velkomin í framsækinn
alþjóðlegan háskóla
Opið fyrir umsóknir í meistaranám til 30. apríl
www.hr.is
„Meistaranám í alþjóðaviðskiptum
við HR er krefjandi og skemmtilegt
og býður framúrskarandi úrval
kennara og gestafyrirlesara sem eru
í beinum tengslum við atvinnulífið.
Það eru forréttindi að fá þann
möguleika að verja einni önn
erlendis við vinnu eða nám og efla
með því enn betur alþjóðleg tengsl.“
Þórunn Sigurðardóttir
í alþjóðaviðskiptum með
áherslu á markaðsfræði frá HR
ráðuneytisins í New York
Verkefnastjóri hjá Arion banka
Foreldrar Jessicu Biel eru ekki
hrifnir af tilvonandi tengda-
syni sínum, söngvaranum Justin
Timberlake, og eru óhrædd við að
láta hann finna fyrir því.
Samkvæmt The Enquirer
hefur Timberlake lagt ýmislegt á
sig til að koma sér í mjúkinn hjá
verðandi tengdaforeldrum sínum,
en án árangurs. „Hann mætir í öll
fjölskylduboð og reddaði bróður
Jessicu vinnu, en allt kom fyrir
ekki, foreldrar Jessicu munu
ekki fyrirgefa honum í bráð. Þeim
finnst Justin hafa komið mjög illa
fram við dóttur sína og eru ekki
tilbúin til að gleyma því,“ var haft
eftir innanbúðarmanni.
Timberlake var sakaður um
að hafa haldið framhjá Biel með
Milu Kunis og Oliviu Munn. Parið
hætti í kjölfarið saman í nokkra
mánuði en tók aftur saman stuttu
fyrir jól.
Reynir að kaupa sér
vinsældir hjá tengdó
ERFITT Foreldrar Jessicu Biel eru ekki
hrifin af unnusta hennar, tónlistar-
manninum Justin Timberlake.
NORDICPHOTOS/GETTY
Grínistinn Ricky Gervais er
staddur í Ósló þessa helgina
til halda sýningar í leikhúsinu
Folketeatret. Gervais segist elska
borgina á Twitter-síðu sinni en
með honum í för er kærasta hans
til 30 ára, Jane Fallon. „Ég elska
Ósló hingað til. Falleg borg í
fallegu landi. Fyrsta uppistandið
í kvöld. Get ekki beðið,“ skrifar
Gervais á föstudaginn en hann
nýtir tímann á milli sýninga til að
skoða borgina.
Elskar Ósló
ÁNÆGÐUR MEÐ NOREG Grínistinn Ricky
Gervais er ánægður með Ósló.
NORDICPHOTOS/GETTY
Svo virðist vera sem ákvörðun
Charlize Theron um að ættleiða
barn og verða einstæð móðir hafi
heillað góðvin hennar Keanu
Reeves upp úr skónum.
Theron og Reeves hafa verið
vinir í mörg ár, en þau léku
saman í rómantísku drama-
myndinni Sweet November árið
2001. Eftir að Theron kom heim
með son sinn Jackson hafa lang-
tímavinirnir, og meintir elsk-
hugarnir fyrrverandi, þó eytt
töluvert meiri tíma saman en
áður. „Keanu passar Jackson oft
og kemur yfirleitt með leikföng
handa honum þegar hann kemur
í heimsókn. Hann setti meira að
segja saman vögguna hans og
er duglegur að skipta á honum,“
segir heimildarmaður náinn
skötuhjúunum.
Föðurefni?
SKIPTIR Á BARNINU Ef marka má orð
heimildarmanns er Keanu Reeves gott
efni í föður fyrir ættleiddan son Charlize
Theron.
Snyrtivöruframleiðandinn Mac
mun senda frá sér nýja línu í
haust sem unnin er í samstarfi
við Carine Roitfeld, fyrrverandi
ritstýru franska Vogue. Fyrir-
tækið hefur áður unnið með
konum á borð við Iris Apfel, Beth
Ditto og Miss Piggy úr Prúðu-
leikunum.
Í línunni verður lögð áhersla
á þykkar augabrúnir
og húðlitaðar varir
í anda Roitfeld
og verður línan
mynduð af engum
öðrum en Mario
Sorrenti. Roitfeld
mun ekki aðeins
koma að sköpun
snyrtivaranna
heldur mun
hún einnig
hanna
umbúðirnar
og finna
skemmti-
leg nöfn á
vörurnar.
Í eina sæng
með Mac
HANNAR
SNYRTIVÖRUR
Carine Roit-
feld hannar
snyrtivörulínu
í samstarfi við
snyrtivörufram-
leiðandann Mac.
NORDICPHOTOS/GETTY