Fréttablaðið - 21.04.2012, Blaðsíða 94
21. apríl 2012 LAUGARDAGUR66
Frá kr. 39.900
Nú er upplagt að skreppa til Prag og njóta vorsins í þessari
einstaklega fögru borg. Athugið fleiri gistimöguleikar í boði.
Verð kr. 39.900
Flugsæti á mann. 27. Apríl – 1. Maí.
Verð kr. 59.900
Netverð á mann, m.v gistingu í tvíbýli á Hotel Ilf *** í 4 nætur með
morgunmat.
Verð kr. 69.900
Netverð á mann, m.v gistingu í tvíbýli á Park hotel **** í 4 nætur með
morgunmat.
Ótrúle
gt verð
!
Prag
27. apríl í 4 nætur
Frábær 4 nátta helgarferð
- allra síðustu sætin!
SERENÖÐUR OG MANSÖNGVAR
ÁGÚST ÓLAFSSON, BARÍTÓN
ANTONÍA HEVESI, PÍANÓ
HÁDEGISTÓNLEIKAR
ÍSLENSKU ÓPERUNNAR
NORÐURLJÓSUM, HÖRPU
FIMMTUDAGINN 26. APRÍL KL. 12.15
WWW.OPERA.IS
TÆLINGARSÖNGVAR
AÐGANGUR
ÓKEYPIS
PERSÓNAN
Úlfar Már Sófusson
Aldur: Þrítugur á árinu.
Starf: Smiður.
Foreldrar: Sófus Oddur Guð-
mundsson og Sunna Mjöll
Sigurðardóttir.
Fjölskylda: Í sambúð.
Búseta: Í Kópavogi.
Stjörnumerki: Meyja.
Úlfar Már hefur endurvakið hina vinsælu
Dúa-bíla.
„Þeir vilja fara í Bláa lónið og svo
vilja þeir sjá norðurljósin,“ segir
tónleikahaldarinn Guðbjartur
Finnbjörnsson um meðlimi hljóm-
sveitarinnar 10cc. „Ég sagði við þá að
ég myndi keyra þá út í náttmyrkrið
og athuga hvort við sæjum eitthvað.“
Breska sveitin stígur á svið í
Háskólabíói í kvöld og flytur þar
sín vinsælustu lög, þar á meðal I´m
Not In Love og The Things We Do
For Love. Hún hefur á löngum ferli
sínum komið ellefu lögum á topp tíu
lsitann í Bretlandi og þremur alla
leið í efsta sætið. Hún hefur selt yfir
þrjátíu milljónir hljómplatna.
Guðbjartur vonast til að hljóm-
sveitinni verði að ósk sinni og sjái
íslensku norðurljósin.
„Það er búið að vera svo gott
veður og léttskýjað að ef þau ættu
einhvern tímann að sjást ættu þau
að sjást í kvöld eða annað kvöld eftir
tónleikana. Ef fólk vill hitta þá eftir
tónleikana verða þeir kannski niðri
á Gróttu.“
10cc er að hefja tónleikaferða-
lag um Evrópu og ferðast aftur
heim til Bretlands á morgun. Ein-
hverjir miðar eru eftir á tónleikana
í Háskólabíói. Þar mun hljómsveitin
hita upp fyrir sjálfa sig með því að
spila sín þekktustu lög í órafmögn-
uðum útgáfum. - fb
Vilja sjá íslensku norðurljósin
10CC Meðlimir 10cc vilja sjá norðurljósin á meðan á dvöl þeirra á Íslandi
stendur.
„Þetta þyrfti að vera þannig að
allir ættu að fá sama tækifæri í
sjónvarpi og allir framhaldsskóla-
nemendur ættu að fá tækifæri til
að hvetja sína keppendur áfram.
Annars er þetta keppni nokkurra
skóla en ekki allra,“ segir Pálmi
Geir Jónsson, formaður Nemenda-
félags Fjölbrautaskóla Norðurlands
vestra.
Félagið hefur sagt sig úr Sam-
bandi íslenskra framhaldsskóla-
nema vegna nýs fyrirkomulags
Söngkeppni framhaldsskólanna,
en úrslit keppninnar verða haldin
í Vodafone-höllinni í kvöld í beinni
útsendingu Sjónvarpsins. „Við
heyrðum í vinaskólum úti á landi,
svona tíu til tólf skólum, og það var
ákveðið að við skyldum vera flagg-
berar þessara ósáttu skóla og koma
með smá yfirlýsingu.“
Nýtt fyrirkomulag var á
keppninni í ár til að gera hana
styttri og um leið sjónvarpsvænni.
Fulltrúar 32 skóla tóku upp mynd-
bönd við lögin sín. Þau voru birt
á netinu og hægt var að kjósa um
besta lagið með SMS-skilaboðum.
Vægi dómnefndar vó síðan 50
prósent á móti SMS-atkvæðunum
og tólf skólar voru valdir áfram.
Pálmi Geir telur að með þessu
fyrir komulagi sé augljóst að fjöl-
mennustu skólarnir komist áfram
og hinir sitji eftir með sárt ennið.
Til að mynda komst enginn skóli
frá Austurlandi í úrslitin í ár og
heldur ekki frá Vesturlandi.
Andri Steinn Hilmarsson, for-
maður Sambands íslenskra fram-
haldsskólanema sem sér um
keppnina, segir að nauðsynlegt
hafi verið að breyta fyrirkomu-
lagi keppninnar til að tryggja að
hún yrði sýnd í beinni útsendingu.
„Ætlum við að halda keppnina í
sjónvarpi eða í íþróttasal einhvers
staðar með litlu fjármagni og litla
sem enga umfjöllun um keppendur?
Við töldum hagsmuni keppninnar
og keppenda best borgið með
þessu,“ segir Andri Steinn.
Hann bætir við að með því að
láta dómnefnd vega á móti SMS-
atkvæðum hafi verið komið í veg
fyrir að fjölmennustu skólarnir ein-
okuðu keppnina. „En auðvitað eins
og gefur að skilja þegar þú ert með
virkilega stóran skóla hefur þú að
öllum líkindum yfir hæfileikaríkara
fólki að ráða,“ segir hann og leggur
áherslu á að tólf bestu atriðin hafi
komist áfram í úrslitin í kvöld.
Að sögn Andra Steins er þetta
nýja fyrirkomulag þó ekki komið
til að vera. „Við viljum sjá undan-
keppni, jafnvel landshluta, í sjón-
varpi og gera miklu meira fyrir
keppnina.
Við erum búnir að semja við
Saga Film og okkur eru allir vegir
færir til að stækka keppnina og
búa til vettvang fyrir þá sem vilja
verða atvinnumenn í tónlist. Fólk
hefur litið mjög jákvæðum augum
á þetta.“
freyr@frettabladid.is
ANDRI STEINN HILMARSSON: TÓLF BESTU ATRIÐIN KOMUST ÁFRAM
Landsbyggðarskólar
kvarta yfir Söngkeppninni
UMDEILD SÖNGKEPPNI
Dagur Sigurðsson bar sigur úr býtum í
Söngkeppni framhaldsskólanna í fyrra.
Pálmi Geir Jónsson er ósáttur við fyrir-
komulag keppninnar í ár.
MYND/HUGI HLYNSSON
35 DAGAR í aðalkeppni Eurovision
„FÁSES er fyrir Eurovision
svipað og félagið Í blíðu og
stríðu er fyrir handboltann. Það
skapast oft leiðinleg umræða
í kringum framlagið okkar og
keppendunum veitir ekki af
stuðningsneti sem stendur við
bakið á þeim í blíðu og stríðu,“
segir Eyrún Elly Valsdóttir, for-
maður Félags áhugafólks um
Söngvakeppni evrópskra sjón-
varpsstöðva, FÁSES.
FÁSES er opinber aðdáenda-
klúbbur á Íslandi fyrir Euro-
vision-söngvakeppnina og er
með um 100 greiðandi meðlimi.
Klúbburinn var stofnaður í sept-
ember 2011 og tilheyrir alþjóð-
legu samtökunum OGAE sem
er með um 10.000 félagsmenn
um alla Evrópu. „Við stöndum
fyrir alls kyns uppákomum í
tengslum við keppnina auk þess
sem við höldum úti öflugri síðu á
Face book undir heitinu FÁSES-
OGAE,“ segir Eyrún Elly. Sex
einstaklingar skipa stjórn
klúbbsins, fjórar konur og tveir
menn, en öll eiga þau það sam-
eiginlegt að vera miklir aðdá-
endur Eurovision og hafa farið
utan til að vera viðstödd aðal-
keppnina.
Eyrún Elly segist hafa góða
tilfinningu fyrir íslenska fram-
laginu í ár og telur að Greta
og Jónsi komi til með að gera
góða hluti í Bakú. „Lagið kom
merkilega vel út á ensku og svo
hjálpar það alveg til hvað er
mikið af lélegum lögum í ár. þó
mörg þeirra séu reyndar svo
vond að þau verða algjör snilld,“
segir Eyrún Elly og bætir við að
hennar uppáhaldslag í keppninni
sé það sænska, en að enska lagið
hafi líka komið henni skemmti-
lega á óvart. - trs
Í blíðu og stríðu fyrir Eurovision
STUÐNINGUR Eyrún Elly er hér í miðj-
unni, ásamt þeim Ölmu Tryggvadóttur
og Auði Geirsdóttur samstjórnakonum
sínum úr FÁSES. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON