Fréttablaðið - 30.04.2012, Qupperneq 4
30. apríl 2012 MÁNUDAGUR4
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
20°
16°
22°
14°
23°
22°
14°
14°
20°
16°
19°
17°
29°
16°
17°
19°
11°Á MORGUN
8-15 m/s N-til,
annars hægari.
MIÐVIKUDAGUR
Hægvirði
víðast hvar.
10
12
8
12
7
8
8
9
6
8
7
9
13
5
10
4
3
5
2
6
7
13
6
8
8
9
10
9
6
8
7
9
KÚVENDING Svalt
í morgunsárið NA-
til en sumarhiti að
vinnudegi loknum!
Rigning V-til í dag
og skúrir á morgun
en nokkuð bjart A-
til. Þó dálítil væta
NA-til seinnipartinn
í dag og á miðviku-
dag.
Snjólaug
Ólafsdóttir
veður-
fréttamaður
Vill ekki lögregluna
í vopnakapphlaup
Meirihluti lögreglumanna vill í neyð geta gripið til skammbyssna úr læstum
hólfum í lögreglubílum. Innanríkisráðherra segir lögreglumenn ekki eiga að
vera berskjaldaða en kveðst óttast vígbúnaðarkapphlaup við ofbeldismenn.
Misvísandi tölur um lögreglu
Tölur um fjölda lögreglumanna á
forsíðu blaðsins á laugardag eiga við
um heildarfjölda lögreglumanna, að
meðtöldum héraðslögreglumönnum
og nemum. Héraðslögreglumenn
og nemar eru hins vegar ekki taldir
inn í fjölda starfandi lögreglumanna
í tölum lögreglunnar. Heildarfjöldi
lögreglumanna var þannig 716 í fyrra,
en þar af voru 652 starfandi lög-
reglumenn.
HALDIÐ TIL HAGA
LÖGREGLUMÁL „Það verður ekki
flanað að neinu í þessum efnum,“
segir Ögmundur Jónasson innan-
ríkisráðherra um fregnir af áhuga
meðal lögreglumanna á að geyma
skammbyssur í lögreglubílum.
Innan lögreglunnar eru vaxandi
kröfur um aukinn vopnabúnað.
Samkvæmt fréttum Stöðvar 2 um
helgina sýnir óbirt könnun meðal
félagsmanna í Landssambandi
lögreglumanna
að meirihluti
þeirra vill að
lögreglan búist
rafbyssum.
Sömuleiðis að
koma eigi fyrir
skammbyssum
í lögreglubílum
fyrir neyðartil-
felli. Er þá rætt
um verklag sem
tíðkast í Noregi og felst í því að
skammbyssur eru geymdar í læstu
hólfi í farangursgeymslu lögreglu-
bíla. Ekki er hægt að nálgast byss-
urnar nema með leyfi frá höfuð-
stöðvunum í hverju tilviki.
Innanríkisráðherra sótti í
síðustu viku aðalfund Lands-
sambands lögreglumanna.
Ögmundur segir vopnaburð
hafa borið þar á góma. Slík
umræða hafi verið lengi innan
lögreglunnar og sitt sýnst hverj-
um.
„Almennt hafa lögreglumenn
verið mjög varkárir í þessu efni
en nú fer heimurinn harðnandi
og við viljum að sjálfsögðu ekki
að lögreglan sé berskjölduð og
óvarin frammi fyrir vopnuðum
ofbeldismönnum. En
þá vil ég minna á að Víkingasveit-
in hefur vopn undir höndum ef á
þarf að halda,“ segir innanríkis-
ráðherra.
Ögmundur kveðst alltaf hafa
verið mjög efasemdafullur þegar
vopnaburður sé annars vegar.
„Það er mjög auðvelt að lokast inni
í vítahring þar sem vopnin kalla á
meiri vopn og vígbúnaður á meiri
vígbúnað. En það þýðir alls ekki
að maður eigi að skella skollaeyr-
um við ósk um umræðu af þessu
tagi. Ef þess verður óskað að taka
þetta formlega upp þá munum við
að sjálfsögðu gera það og hafa þá
hliðsjón af reynslu annarra ríkja
og þá hljótum við að horfa til Norð-
urlandanna,“ segir ráðherrann.
Ekki náðist í gær í Snorra Magn-
ússon, formann Landssambands
lögreglumanna. „Þetta kemur
út úr þessari könnun að það er
almennur vilji og mikill meiri-
hlutavilji lögreglumanna að þetta
sé gert,“ sagði Snorri hins vegar í
samtali við fréttastofu Stöðvar 2.
gar@frettabladid.is
GENGIÐ 27.04.2012
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR
SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
228,003
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
125,38 125,98
203,42 204,40
165,89 166,81
22,298 22,428
21,907 22,037
18,639 18,749
1,5521 1,5611
194,20 195,36
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
frá Adler
á góðum
kjörumBaðvog
AD 8116b
kr. stgr.
Eldhúsvog
AD 3138b
kr. stgr.
ESB styrkir jarðhitarannsóknir:
100 milljónir til
Orkustofnunar
ORKUMÁL Evrópusambandið hefur
ákveðið að styrkja Orkustofnun,
Rannís og stjórnsýslustofnanir
átta annarra Evrópulanda um
samtals tvær milljónir evra, rúm-
lega 330 milljónir króna, til að
styrkja rannsóknir á jarðhita.
Á vef Orkustofnunar kemur
fram að stofnunin fái um 600
þúsund evrur, um 100 milljónir
króna, í sinn hlut, en stofnunin
fer með stjórn verkefnisins.
Samstarf ríkjanna er til fjög-
urra ára og mun verkefnið stuðla
að auknu flæði peninga til jarð-
hitarannsókna, sem aftur getur
leitt af sér ný verkefni á sviði
jarðhitanýtingar, segir á vef
Orkustofnunar. - bj
DÓMSMÁL Forseti framkvæmda-
stjórnar Evrópusambandsins, José
Manuel Barroso, hringdi í Geir H.
Haarde, þáverandi forsætisráð-
herra Íslands, við hrun bankanna
til að þrýsta á um að hagur erlendra
kröfuhafa yrði tekinn með í reikn-
inginn. Frá þessu greindi Geir í
þættinum Sprengisandi á Bylgjunni
í gærmorgun.
„Ég fann að hann var með und-
irbúinn texta sem hann var að hluta
til að lesa upp gagnvart mér, þar
sem ég skildi vel hvert hann var
að fara. Hann lagði sem sé mikla
áherslu á að við myndum koma vel
fram við hina erlendu lánardrottna.
Við vorum bara ekkert í þeirri stöðu
að geta tekið við neinum ábending-
um hvað þá fyrirmælum eða til-
mælum frá Evrópusambandinu á
þessum tíma. Það kom bara ekki til
greina,“ sagði Geir. Hann segir að
Ísland hefði lent í enn meiri vand-
ræðum ef við hefðum verið í Evr-
ópusambandinu þegar hrunið varð.
Þá talaði Geir um viðbrögð sín
við dómi Landsdóms í síðustu viku.
Aðspurður sagðist hann eflaust
hafa gengið of langt. „Ég ætla ekk-
ert að draga úr því að kannski tók
maður fulldjúpt í árinni þarna.
Ég vil nú ekki
meina að ég hafi
verið í geðs-
hræringu en
ég varð mjög
reiður,“ sagði
Geir.
Geir útskýrði
ummæli sín um
að pólitíkin hefði
laumað sér inn í
Landsdóm á þann veg að hann héldi
að dómarar hefðu verið að liðsinna
pólitískt þeim sem væru upphafs-
menn málsins. Hann héldi ekki að
þeir hefðu verið að reyna að koma
á sig pólitísku höggi. Hann sagði
þetta vera vangaveltur af sinni
hálfu.
Sigurjón M. Egilsson, umsjónar-
maður Sprengisands, spurði Geir
einnig um upptöku af samtali hans
og Davíðs Oddssonar daginn sem
neyðarlögin voru sett. Efnahags-
nefnd Alþingis hefur óskað eftir
því að fá upptöku af samtalinu. Geir
segist ekki hafa tekið afstöðu í því
máli. Honum hafi ekki verið kunn-
ugt um að samtalið væri hljóðritað.
Honum þyki ágæt spurning hvort
láta eigi slíkar upptökur í umferð.
- þeb
Forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins vildi að Íslendingar tækju tillit til erlendra kröfuhafa:
Barroso þrýsti á Geir vegna lánardrottna
GEIR H. HAARDE
SKÓLAMÁL Samtök atvinnulífsins
gagnrýna fjölgun skipulagsdaga
hjá leikskólum Reykjavíkurborg-
ar úr fimm í sex á ári. Samtökin
segja einhliða fjölgun skipulags-
daga bitna illa á foreldrum og
fyrirtækjum. „Foreldrar barna
eru þöglir þolendur sem virðast
ekki eiga auðvelt með að bera
hönd fyrir höfuð sér,“ segir í yfir-
lýsingu SA.
Fram kemur að fjöldi skipu-
lagsdaga hafi tvöfaldast á fimm
árum. Foreldrar þurfi oftast að
nýta orlofsrétt sinn á þessum
dögum og jafngildi þessi daga-
fjöldi fjórðungi lágmarksorlofs.
Samtökin telja að endurskoða
þurfi þessi vinnubrögð í leik-
skólastarfinu og leggja meiri
áherslu á þjónustu við foreldra og
atvinnulíf. - áp
SA gagnrýna skipulagsdaga:
Foreldrar hinir
þöglu þolendur
LEIKSKÓLI Starfsdagar nema fjórðungi
lágmarksorlofs á vinnumarkaði.
SNORRI
MAGNÚSSON
Það er mjög auðvelt
að lokast inni í víta-
hring þar sem vopnin kalla á
meiri vopn.
ÖGMUNDUR JÓNASSON
INNANRÍKISRÁÐHERRA
ÖGMUNDUR JÓNASSON Innanríkisráðherra segir heiminn fara harðnandi og að lög-
reglumenn eigi ekki að vera berskjaldaðir frammi fyrir vopnuðum ofbeldismönnum.
FRÉTTABLAÐIÐ/SAMSETT MYND
VÍSINDI Engar sönnur hafa enn
verið færðar á að farsíma-
notkun geti haft neikvæð áhrif
á heilsufar fólks. Þetta er niður-
staða vísindamanna sem fóru
yfir hundruð rannsókna á
áhrifum farsímanotkunar.
Ýmsar rannsóknir hafa bent
til tengsla á milli farsíma-
notkunar og krabbameins,
ófrjósemi og jafnvel röskunar
heilastarfsemi. Ekkert slíkt var
hægt að staðfesta með
samanburði á rann-
sóknunum, að því er
fram kemur í frétt
BBC.
Þrátt fyrir þessa
niðurstöðu sögðu
vísindamennirnir
að frekari rann-
sókna væri þörf á
langtímaáhrifum
farsímanotkunar.
- bj
Yfirfara farsímarannsóknir:
Ekki sannað að
símar skaði fólk