Fréttablaðið - 30.04.2012, Qupperneq 42
30. apríl 2012 MÁNUDAGUR18
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
BAKÞANKAR
Erlu
Hlynsdóttur
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
LÁRÉTT
2. ríki í Mið-Ameríku, 6. rún, 8. efni,
9. skyggni, 11. tveir eins, 12. óstilltur,
14. rófa, 16. pot, 17. af, 18. fálm, 20.
pfn., 21. traðkaði.
LÓÐRÉTT
1. íþrótt, 3. stefna, 4. trjátegund, 5.
eyrir, 7. starfræksla, 10. kusk, 13.
skarð, 15. rótartauga, 16. margsinnis,
19. svörð.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. kúba, 6. úr, 8. tau, 9. der,
11. rr, 12. ókyrr, 14. skott, 16. ot, 17.
frá, 18. fum, 20. ég, 21. tróð.
LÓÐRÉTT: 1. júdó, 3. út, 4. barrtré,
5. aur, 7. rekstur, 10. ryk, 13. rof, 15.
tága, 16. oft, 19. mó.
O´sweet relief! Ég þakka
ykkur Kebab-guðunum
fyrir að taka á móti
minni fórn!
Holy diver! Þessi
hefði getað sökkt
skipi!
Jæja, strákar.
Hækkum blindana
og spilum virkilega
lélegan póker.
Ég kann að meta hversu
litlar væntingar þessu
hópur hefur.
Tvistur?? Ég
fólda.
KJAMMS...
NAMM...
URG....
ROOP..
Egill, þú ert
með eitthvað í
skegginu þínu.
Ætli þessar
flögur séu
of gamlar?
Ég skal
athuga það.
KJAMMS...
KJAMMS...
KJAMMS..
Neibb. Þær eru í lagi.
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Gói
Baunagrasið
og
Leikhúsglaðningur fyrir
alla fjölskylduna!
Fréttatíminn Morgunblaðið
SÍÐUSTU
SÝNINGAR
Á LEIKÁRINU
Konur þurfa að fylgja ákveðnum reglum í okkar samfélagi. Þær eiga
ekki að vera í of stuttum pilsum, þær eiga
ekki að vera of drukknar, og þær eiga ekki
að vera einar á fáförnum stöðum. Nýverið
bættist við ný regla: Konur eiga ekki að
leggja bílnum sínum langt frá inngangin-
um í bílastæðahúsum.
EF KONUR brjóta þessar reglur, þá getur
þeim verið nauðgað. Sérstök bílastæði fyrir
konur í nágrenni við innganga í bílastæða-
húsum, síð pils og óáfengir drykkir kunna
að vera viðbrögð við þessum vanda.
Vandinn er hins vegar í raun annar: Að
sumir karlmenn nauðga konum.
NAUÐGANIR eru vandamál og af
því leiðir að við nauðgunum þarf
að finna lausnir. Í ákveðnum sam-
félögum hefur verið farin sú leið að láta
konur klæðast búrkum. Þannig er
freistingin minni fyrir nauðg-
ara.
HÉR Á ÍSLANDI var reynd sú
leið að gefa konum kost á að
leggja bílunum sínum nálægt
innganginum í bílastæðahús-
um. Við þekkjum öll úr spennu-
myndunum þessi atriði þar
sem konur, aleinar í bílastæða-
húsum, heyra allt í einu fótatak
að baki sér og á endanum ræðst
allsendis ókunnugur maður á þær.
Í RAUNVERULEIKANUM eru það hins
vegar sjaldnast ókunnugir sem nauðga
konum. Oftast eru það „vinir“ og kunn-
ingjar sem nauðga. Jafnvel eiginmenn eða
sambýlismenn. Og við skulum ekki gleyma
feðrum og frændum.
JÚJÚ, konum hefur verið nauðgað í bíla-
stæðahúsum erlendis. Þeim hefur líka
verið nauðgað í almenningsgörðum, á lista-
söfnum, í verslanamiðstöðvum. Konum er
nauðgað í skólanum. Í raunveruleikanum
er konum nauðgað. Þeim er líka nauðgað
þar sem þær telja sig vera öruggar. Þeim
er nauðgað þegar þær eru í heimsókn hjá
„vini“ og þeim er nauðgað þegar þær eru
heima hjá sér.
KONUM ER NAUÐGAÐ. Körlum er, því
miður, líka nauðgað. Akkúrat núna snýst
umræðan hins vegar um bílastæði fyrir
konur til að verja þær gegn nauðgunum.
Spurningin er hvort baráttunni gegn nauðg-
unum sé mögulega beint til rangra aðila, að
það eigi ekki að segja konum hvernig þær
eigi að haga sér eða hvar þær eigi að vera.
ÉG HELD AÐ við ættum að einbeita okkur
að því að koma skilaboðum til þeirra sem
bera hina raunverulegu ábyrgð.
NAUÐGARAR: Hættið að nauðga!
Hættu að nauðga!