Fréttablaðið - 30.04.2012, Blaðsíða 48
30. apríl 2012 MÁNUDAGUR24
sport@frettabladid.is
AFTURELDING tryggði sér í gærkvöldi áframhaldandi sæti í efstu deild karla í
handbolta með fimm marka sigri í öðrum leik liðsins gegn Stjörnunni í Garðabæ, 32-27.
Stjarnan verður hins vegar að sætta sig við það að leika í næstefstu deild fjórða árið í röð.
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Enska úrvalsdeildin
Tottenham - Blackburn 2-0
1-0 Rafael van der Vaart (22.), 2-0 Kyle Walker
(75.)
Chelsea - QPR 6-1
1-0 Daniel Sturridge (1.), 2-0 John Terry (13.), 3-0
Fernando Torres (19.), 4-0 Fernando Torres (25.),
5-0 Fernando Torres (64.), 6-0 Florent Malouda
(84.), 6-1 Djibril Cisse (84.)
Wigan - Newcastle 4-0
1-0 Victor Moses (13.), 2-0 Victor Moses (15.),
3-0 Shaun Maloney (36.), 4-0 Franco Di Santo
(45.)
Swansea - Wolves 4-4
1-0 Andrea Orlandi (1.), 2-0 Joe Allen (3.),
3-0 Nathan Dyer (15.), 3-1 Steven Fletcher (28.),
4-1 Danny Graham (31.), 4-2 Matthew Jarvis
(33.), 4-3 David Edwards (43.), 4-4 Matthew
Jarvis (69.)
Stoke - Arsenal 1-1
1-0 Peter Crouch (10.), 1-1 Robin van Persie (15.)
Everton - Fulham 4-0
1-0 Nikica Jelavic (6.), 2-0 Marouane Fellaini
(16.), 3-0 Nikica Jelavic (40.), 4-0 Tim Cahill (61.)
West Brom - Aston Villa 0-0
STAÐAN Í ENSKU ÚRVALSDEILDINNI
Man.Utd. 35 26 5 4 54 83
Man.City 35 25 5 5 60 80
Arsenal 36 20 6 10 24 66
Tottenham 35 18 8 9 20 62
Newcastle 35 18 8 9 7 62
Chelsea 35 17 10 8 23 61
Everton 35 14 9 12 8 51
Liverpool 35 13 10 12 6 49
Fulham 35 12 10 13 -3 46
W.B.A. 36 13 7 16 -6 46
Sunderland 36 11 12 13 1 45
Swansea 36 11 11 14 -6 44
Norwich 36 11 10 15 -16 43
Stoke 35 11 10 14 -16 43
Aston Villa 36 7 16 13 -14 37
Wigan 36 9 10 17 -22 37
Q.P.R. 36 9 7 20 -23 34
Bolton 35 10 4 21 -28 34
Blackburn 36 8 7 21 -28 31
Wolves 36 5 9 22 -41 24
Markahæstu leikmenn deildarinnar
1. Robin van Persie 28 mörk
2. Wayne Rooney 26 mörk
3. Sergio Aguero 22 mörk
Leikir sem Manchester-liðin eiga eftir:
Manchester City
Newcastle (úti), QPR (heima)
Manchester United
Swansea (heima), Sunderland (úti)
ÚRSLIT
FÓTBOLTI Tottenham tyllti sér í
fjórða sæti ensku úrvalsdeildar-
innar með þægilegum 2-0 sigri á
Blackburn í gær. Chelsea andar þó
ofan í hálsmál granna sinna með
einu stigi minna og betri marka-
tölu eftir fimm marka sigur á
QPR.
Fernando Torres skoraði þrennu
í 6-1 sigri á Brúnni í gær. Tor-
res, sem setið hefur undir mikilli
gagnrýni síðan hann var keyptur
frá Liverpool á 50 milljónir punda
fyrir rúmum 15 mánuðum, virð-
ist vera að rétta úr kútnum. Tíma-
setningin gæti ekki verið betri
enda bikarúrslitaleikur við Liver-
pool á dagskrá um næstu helgi.
Wigan fór illa með Newcastle
4-0 og fullkomnaði frábæran
aprílmánuð. Arsenal og Manches-
ter United fengu einnig að kenna
á því gegn botnbaráttuliðinu sem
virðist ætla að takast að bjarga sér
frá falli enn eitt árið. Newcastle
missti fjórða sætið í hendur Tot-
tenham á markatölu.
Luis Suarez var maður laug-
ardagsins en hann skoraði þrjú
glæsileg mörk sem tryggðu Liver-
pool útisigur á Norwich.
Gylfi Þór Sigurðsson átti fínan
leik með Swansea sem gerði 4-4
jafntefli gegn Wolves. Gylfi lagði
meðal annars upp mark og átti
stangarskot. -ktd
Baráttan um fjórða sætið harðnaði um helgina:
Torres með þrennu
FÓTBOLTI „Þetta er stærsti Manch-
ester-slagur allra tíma,“ segir
Sir Alex Ferguson knattspyrnu-
stjóri um viðureign Manchest-
er-liðanna í kvöld. Mikilvægi
leiksins er öllum ljóst. Sigurliðið
kemst í forystusæti deildarinnar
þegar aðeins tvær umferðir lifa
af mótinu. United myndi sætta sig
við jafntefli en City þarf að sækja
til sigurs.
Stelur Tevez sviðsljósinu?
Athygli margra mun beinast
að Argentínumanninum Carlos
Tevez sem mætir sínum gömlu
félögum. Allt leit út fyrir að Tevez
hefði spilað sinn síðasta leik fyrir
City. Hann sneri nýverið aftur úr
sex mánaða útlegð og hefur skor-
að fjögur mörk í sjö leikjum. Það
kæmi fáum á óvart ef hann stæli
sviðsljósinu á einn eða annan hátt.
Fáir kunna betur að koma sér á
forsíður dagblaðanna en Argent-
ínumaðurinn óþekki.
Öll stærstu nöfnin með
Ferguson segist glíma við það lúx-
usvandamál að nánast allir leik-
menn liðsins séu heilir. Ljóst er að
Wayne Rooney mun leiða framlínu
United en hvort Ferguson þétti
miðjuna eða stilli Danny Welbeck
upp við hlið hans á eftir að koma
í ljós.
Sergio Aguero hefur verið sjóð-
andi heitur að undanförnu og verð-
ur vafalítið í byrjunarliðinu. Mario
Balotelli snýr aftur úr leikbanni
og Roberto Mancini þarf að velja
á milli hans, Carlos Tevez og Edin
Dzeko sem skoraði þrennu í viður-
eign liðanna í haust. Þá vann City
ótrúlegan 6-1 sigur á Old Traf-
ford en heimamenn misstu mann
af velli sem er ekki óalgeng sjón í
leikjum Manchester-liðanna.
Leikur Manchester-liðanna á
Etihad-leikvanginum hefst klukk-
an 19 og er í beinni útsendingu á
Stöð 2 Sport 2. -ktd
Manchester City getur stigið risaskref í átt að fyrsta Englandsmeistartitli félagsins í 44 ár með sigri í kvöld:
Englandsmeistaratitill í húfi í Manchester
DAGSVERKINU LOKIÐ Torres fékk leik-
boltann til eignar.
FER SÍNAR EIGIN LEIÐIR Carlos Tevez hefur brennt ansi margar brýr að baki sér í
gegnum tíðina. Hann gæti þó reynst City happafengur eins og svo oft áður í stóru
leikjunum. MYND/GETTY IMAGES
Iceland Express-deild karla
Grindavík-Þór Þorlákshöfn 91-98 (44-49)
Grindavík: Giordan Watson 23/5 fráköst/8
stoðsendingar, Þorleifur Ólafsson 15/5 fráköst/5
stoðsendingar, J’Nathan Bullock 13/7 fráköst,
Jóhann Árni Ólafsson 12/5 fráköst, Páll Axel
Vilbergsson 10/4 fráköst, Sigurður Gunnar Þor
steinsson 8/8 fráköst, Ryan Pettinella 7/6 fráköst,
Björn Steinar Brynjólfsson 3.
Þór Þorlákshöfn: Darrin Govens 30/8 fráköst/11
stoðsendingar, Joseph Henley 19/11 fráköst,
Blagoj Janev 19/5 fráköst, Guðmundur Jónsson
11/7 fráköst, Darri Hilmarsson 9, Grétar Ingi
Erlendsson 6/4 fráköst, Baldur Þór Ragnarsson
4/5 fráköst.
Grindavík leiðir í einvíginu 2-1. Liðin mætast
fjórða sinni í Þorlákshöfn á miðvikudagskvöld.
KÖRFUBOLTI Leikurinn var jafn
nánast allan tímann en gestirnir
frá Þorlákshöfn náðu yfirhöndinni
í fjórða leikhlutanum. Frábært
fyrir körfuboltann á Íslandi en
Þór Þorlákshöfn getur með sigri
á miðvikudaginn náð fram odda-
leik í einvíginu.
„Við komum bara ekki tilbúnir
í leikinn og spiluðum einfaldlega
illa,“ sagði Þorleifur Ólafsson,
leikmaður Grindavíkur, eftir
tapið í gær.
„Stress gæti hafa leikið stórt
hlutverk í kvöld. Ég taldi sjálf-
an mig vera tilbúinn fyrir leik-
inn en var langt frá því að vera
nægilega góður. Það er rosalega
erfitt að bæta einhverju við leik
okkar þegar komið er svona langt
í mótið en við verðum bara að
mæta tilbúnir í næsta leik á Þor-
lákshöfn.“
„Það voru ansi margir búnir að
afskrifa okkur eftir síðasta leik
og kannski eðlilega en í kvöld
kom allt annað lið til leiks,“ sagði
Benedikt Guðmundsson, þjálfari
Þór frá Þorlákshöfn, eftir sigur-
inn í gær.
„Við náðum fráköstum í kvöld
og framkvæmdum hlutina tölu-
vert betur en síðast, mikill munur
á liðinu milli leikja. Okkur lang-
aði meira í sigurinn í kvöld,
menn bara stigu upp og sýndu úr
hverju þeir eru gerðir. Kanarnir
okkar voru einnig frábærir og við
þurfum svo sannarlega á þeim að
halda í þessu einvígi. Þessi sigur
gefur okkur voðalega lítið ef við
mætum ekki dýrvitlausir í næsta
leik og jöfnum þetta einvígi, en
það er markmiðið. Við ætlum
okkur að koma aftur hingað í
oddaleik.“ - sáp
Þórsarar héldu sér á lífi í Röstinni
Grindvíkingum tókst ekki að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn í körfuknattleik karla í gær þegar Þórsarar
komu í heimsókn. Gestirnir úr Þorlákshöfn, með bakið upp að vegg, unnu sanngjarnan sigur.
MARKMIÐINU NÁÐ Græni drekinn, stuðningsmannasveit Þórsara, naut stuðnings Matthew Hairston í Grindavík í gær. Hairston
fór á kostum með Þór í vetur en varð frá að hverfa vegna meiðsla í úrslitakeppninni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI