Fréttablaðið - 19.05.2012, Blaðsíða 8
19. maí 2012 LAUGARDAGUR8
Sími 570 2400 · oryggi.is
Stöndum vaktina allan sólarhringinn
Fjölbreytt úrval hágæða IP myndavéla með frábærum
myndgæðum. Þú getur sótt myndir beint í símann eða
spjaldtölvuna.
Hringdu núna í 570 2400 eða kynntu þér málið á oryggi.is.
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
20
62
4
Fylgstu með í símanum
Apple
LÖGREGLUMÁL Maður á fimm-
tugsaldri lést í fangelsinu Litla-
Hrauni um áttaleytið á fimmtu-
dagskvöld. Hann hafði verið
úrskurðaður í gæsluvarðhald
fyrir síbrot þann 16. maí síðast-
liðinn og var nýbúið að færa hann
til fangelsisins þegar hann lést.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins byrjaði maðurinn mjög
fljótlega að kasta upp eftir að
komið var á Litla-Hraun og hné
meðvitundarlaus niður á gangin-
um. Sjúkrateymi reyndi endur-
lífgunartilraunir án árangurs og
lést maðurinn skömmu síðar.
Um var að ræða síbrotamann í
mikilli neyslu sem hafði afplán-
að marga tugi dóma. Samkvæmt
heimildum blaðsins kom hann
með mikið af sprautum til fíkni-
efnaneyslu í farangrinum inn á
Litla-Hraun.
Í kjölfar atviksins var kallað
á áfallateymi, fangaverðir voru
fjarlægðir og fangelsisprestur
kom á vettvang.
Þetta er í fyrsta sinn síðan
árið 2007 sem fangi lætur lífið
á meðan hann er innan veggja
fangelsa. Fimm manns hafa nú
látist síðan árið 2004, en þrír
einstaklingar frömdu sjálfsvíg á
árunum 2004 til 2007. Þá lést einn
fangi árið 2007. - sv
Fyrsta andlát innan veggja íslenskra fangelsa síðan árið 2007:
Fimm fangar dánir á níu árum
LITLA-HRAUN Maðurinn sem lést á
Litla-Hrauni á fimmtudag var í mikilli
fíkniefnaneyslu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
1 Hversu stórt hlutfall umsækjanda
fær ekki sumarstarf hjá Reykja-
víkurborg?
2 Hver er þjálfari íslenska kvenna-
landsliðsins í knattspyrnu?
3 Hvað á sýning Íslenska dans-
flokksins og GusGus að heita?
SVÖR
1. Tveir þriðju umsækjenda 2. Sigurður
Ragnar Eyjólfsson 3. Á vit …
Save the Children á Íslandi
SVÍÞJÓÐ Sjúklingar á geðdeildum
í Svíþjóð voru ólaðir niður í yfir
3.300 skipti í fyrra.
Skiptin eru í raun enn fleiri, að
því er greint er frá á vef Dagens
Nyheter. Þar er það haft eftir Her-
man Holm, yfirlækni í Malmö,
að upplýsingum sé enn ábóta-
vant. Skráning félagsmálayfir-
valda á þvingunaraðgerðum hófst
árið 2010. Þær þykja nauðsyn-
legar þegar talið er að sjúklingar
geti valdið sjálfum sér eða öðrum
skaða. Markmiðið er þó að draga
úr slíkum aðgerðum. - ibs
Geðdeildir í Svíþjóð:
Sjúkir ítrekað
ólaðir niður
SAMFÉLAGSMÁL „Mér finnst fáránlegt að einhverjir
karlar í jakkafötum, án þess að ég sé með einhverja
fordóma, geti stjórnað því hvort ég fái minn æðsta
draum uppfylltan,“ segir Tinna Rúnarsdóttir, sem
sér fram á að geta ekki eignast barn ef Íslensk ætt-
leiðing fær ekki fjárveitingar frá ríkinu til að halda
nauðsynleg námskeið fyrir verðandi kjörforeldra.
Félagið hætti að bjóða upp á námskeiðin fyrir um
mánuði vegna þess að ekki hafa náðst samningar
við stjórnvöld um fjárframlög. Mánuði fyrr hafði
félagið frestað aðalfundi sínum af sömu ástæðu.
Tinna segir að sér finnist ráðuneytið hafa verið
allt of lengi að bregðast við. „Ef það eru til peningar
til að endurnýja bílaflota ráðherra þá eru til pening-
ar til að styrkja Íslenska ættleiðingu og halda þessi
námskeið,“ segir hún.
Hörður Svavarsson, formaður Íslenskrar ætt-
leiðingar, segir að til standi að tilkynna félags-
mönnum nú um helgina að komið sé að því að ganga
á varasjóð félagsins. „Í reglugerð segir að félaginu
beri að haga rekstri sínum þannig að ef það verður
lagt niður séu til fjármunir til að fylgja eftir þeim
umsóknum sem kunna að vera til staðar þegar starf-
semin hættir,“ útskýrir Hörður.
„Núna er félagið í lokunarfasa – eða frágangsferli.
Það þýðir að þegar þessi sjóður er upp urinn, ein-
hvern tímann í haust, þá er ekki lengur neitt svig-
rúm til að starfa.“
Tinna og maður hennar, Marinó Magnús Guð-
mundsson, fengu forsamþykki frá íslenskum stjórn-
völdum fyrir ættleiðingu í mars en lengra komast
þau ekki vegna þess að seta á námskeiðinu er skil-
yrði fyrir því að hægt sé að senda umsókn úr landi.
„Það er enginn að fara að ættleiða nema þetta
námskeið verði haldið. Ef þau gera ekki eitthvað í
þessu þá eru þau að fara að stoppa ættleiðingu til
Íslands. Þetta er ekkert flókið,“ segir Tinna. Hún
er sjálf ættleidd og segir að nú til dags sé biðtíminn
umtalsvert lengri en var þegar hún kom til lands-
ins, þótt ekki bætist við tafir við að leysa úr málinu
í innanríkisráðuneytinu.
Tinna hefur óskað eftir fundi með Ögmundi Jón-
assyni innanríkisráðherra en kveðst ekki enn hafa
fengið svar við beiðninni.
Hörður segir að Íslensk ættleiðing sé nokkurn
veginn í sömu stöðu núna og fyrir tveimur mán-
uðum. „Okkur hefur reyndar verið sagt að kannski
komi eitthvað inn á fjáraukalög í haust, en höfum
enga fullvissu um það,“ segir hann.
Ekki náðist í Ögmund Jónasson í gær. Hann er
staddur erlendis.
stigur@frettabladid.is
Draumur um barn í
lausu lofti vegna tafa
Íslensk ættleiðing tilkynnir félagsmönnum um helgina að ganga þurfi á vara-
sjóð. Félagið í frágangsferli, segir formaðurinn. Hjón sem bíða ættleiðingar eru
uggandi vegna þess hversu lengi innanríkisráðuneytið er að bregðast við.
ÓÁNÆGÐ Tinna og Marinó geta ekki sótt um barn vegna
þess að þau komast ekki á nauðsynlegt námskeið á vegum
Íslenskrar ættleiðingar.
MYND/FINNBOGI MARINÓSSON
VEISTU SVARIÐ?