Fréttablaðið - 19.05.2012, Blaðsíða 84
19. maí 2012 LAUGARDAGUR48
Jökull Bergsveinsson er þrett-
án ára nemandi í 8. bekk í
Víðistaðaskóla í Hafnarfirði.
Þrátt fyrir ungan aldur er
hann löngu búinn að ákveða
hvað hann ætlar að starfa við
í framtíðinni. Hann ætlar að
vinna við kvikmyndir og er nú
þegar byrjaður að framleiða
sínar eigin bíómyndir. Jökull
hefur haft áhuga á bíómynd-
um frá því að hann var lítill.
„Þegar ég var 4 ára var uppá-
haldsmyndin mín Lord of the
Rings og ég fékk strax mik-
inn áhuga á því hvernig þetta
var allt saman búið til. Þann-
ig að ég fór að skoða á Youtube
hvernig bíómyndir eru búnar
til, eins og tæknibrellur, byssu-
skot, sprengjur og smink, skot-
sár og blóðslettur. Þegar ég var
7 ára byrjaði ég að gera vídeó-
áramótakveðjur fyrir fjöl-
skylduna, sem ég geri enn í dag
alltaf um áramótin. En ég var
um 8 ára þegar ég stóð sjálf-
ur fyrir aftan myndavélina.
Ég notaði legókarla sem leik-
ara í fyrstu myndunum sem ég
gerði. Þetta voru svona stop-
motion vídeó þar sem ég bjó til
legókallabardaga.“
Um þessar mundir er Jök-
ull að vinna að stuttmynd með
félögum sínum, en þeir eru að
vinna með hugmynd sem þeir
fengu 10 eða 11 ára gamlir.
„Þetta byrjaði sem flipp en
núna er þetta komið út í meiri
alvöru. Þetta er þriðja mynd-
in af seríu sem við köllum
Brenndir Bananar númer þrjú.
Við erum allir skólafélagarnir
saman í þessu – Sindri, Kári,
Matti, Viktor og Dagur leika í
henni og svo er Nicholas, kær-
asti systur minnar, með vídeó-
vélina. Ég er leikstjórinn og
er búinn að vinna að hand-
ritinu frá því síðasta sumar,
með hjálp frá Nicholasi. Ég sé
líka um að klippa myndirnar
og allar tölvutæknibrellur og
makeup-brellur. Það er gaman
að búa til gervisár.“
Jökull er staðráðinn í því að
vera kvikmyndagerðarmaður
alla ævi, en hann er ekki búinn
að gera upp við sig hvort hann
verði leikstjóri, klippari eða
tökumaður. Hann hefur tvisvar
sinnum farið til New York á
námskeið hjá New York Film
Academy. Hann segir fjölskyldu
sína hjálpa sér mikið í kvik-
myndagerðinni. „Við hjálpumst
mikið að. Pabbi þeytist um allan
bæ að ná í dót sem við þurf-
um og kaupir líka pitsur fyrir
okkur strákana og fleira sem
okkur gæti vantað. Mamma er
líka rosalega hjálpleg en ég held
hún sé nú orðin dálítið þreytt á
gerviblóðinu út um allt hús og
óvart smá á veggjunum. Systir
mín hjálpar okkur líka mikið,
gerir oft makeup-ið og hjálpar
okkur með leikmyndina.“
Á heimasíðu Jökuls, www.
jokull.net, er hægt að horfa á
myndirnar hans.
krakkar@frettabladid.is
48
Mamma er líka
rosalega hjálp-
leg en ég held hún sé
nú orðin dálítið þreytt
á gerviblóðinu út um
allt hús og óvart smá
á veggjunum.
Þú getur sent brandara til krakkar@frettabladid.is
GERIR STUTTMYND
MEÐ VINUM SÍNUM
Jökull Bergsveinsson er þrettán ára strákur í Hafnarfirði sem hefur verið á kafi í
kvikmyndum frá því hann var 4 ára. Hann var 8 ára þegar hann gerði sína fyrstu
bíómynd og í dag vinnur hann að stuttmyndaseríu með félögum sínum.
Aldur: 9 ára (10 ára eftir mánuð).
Í hvaða skóla ertu: Hlíðaskóla.
Í hvaða stjörnumerki ertu: Tvíburunum.
Áttu happatölu? 52, 12 og 14.
Helstu áhugamál/hvað gerirðu í frí-
stundum þínum? Fimleikar og að
leika við vini mína í stikkfrí og svo-
leiðis leikjum.
Eftirlætissjónvarpsþáttur: Minute
to win it og Malcolm in the middle.
Besti matur? Lasagne og jólamat-
urinn, sem er kalkúnn.
Hvaða námsgrein er í uppáhaldi?
Dans, tónmennt og listasmiðjan.
Áttu gæludýr – ef svo er, hvernig
dýr og hvað heitir það? Ekki ég, en amma mín
á hund sem heitir Snælda.
Skemmtilegasti dagurinn og af hverju?
Laugardagur, af því þá er nammidagur og
kósýkvöld.
Eftirlætistónlistarmaður/hljómsveit?
Adele og Lady Gaga.
Uppáhalds litur? Bleikur og fjólublár.
Hvað gerðirðu í sumar? Ég fór á Egils-
staði og í haust fór ég til Flórída.
Skemmtilegasta bók sem þú hefur
lesið? Stjörnur og strákapör eftir Krist-
ínu Steinsdóttur.
Hvað ætlarðu að verða þegar þú ert
orðin stór? Söngkona og líka grafískur
hönnuður eins og mamma.
Tanja Kristín Árnadóttir
VIÐ TÖKUR Jökull er handritshöfundur og leikstjóri stuttmyndaseríunnar Brenndir
Bananar sem hann vinnur að með vinum sínum. MYND/ÚR EINKASAFNI
Nískupúki var alltaf að brýna
fyrir syni sínum að spara pen-
inga. Dag einn kom strákur-
inn heim og sagði hróðugur:
„Pabbi, ég hljóp á eftir strætó
og sparaði þannig 350 krón-
ur.“
„Æ, drengstauli,“ sagði mað-
urinn. „Þú hefðir átt að
hlaupa á eftir leigubíl og
spara 2.500 krónur.“
Tveir menn áttu hvor sinn
hestinn í sömu girðingu. Til að
þekkja þá í sundur bundu þeir
rauða slaufu á taglið á öðrum
þeirra. Dag einn þegar þeir
komu í girðinguna var slauf-
an dottin af. „Hvað gerum
við nú?“ sagði annar maður-
inn. „Ég veit,“ sagði hinn. „Ég
tek bara þennan rauða og þú
þennan bleika.“
Fáðu þér góða
mjólkurskvettu!
www.ms.is
IGGAPIGG og aðrar söguhetjur úr þáttunum í Næturgarði hitta í mark hjá
yngstu börnunum. Á barnavef breska ríkisútvarpsins www.bbc.co.uk/cbeebies/
in-the-night-garden er að finna skemmtilega og einfalda leiki fyrir þau yngstu.