Fréttablaðið - 19.05.2012, Side 12
12
FRÉTTASKÝRING: Umhverfismál 3. grein af 4
– FULLT HÚS ÆVINTÝRA
REYKJAVÍK • AKUREYRI
ellingsen.is
PIPA
R\TBW
A
• SÍA
• 1123
43
Devold nærfatnaðurinn
er úr hreinni Merino-ull og
heldur líkamanum þurrum
og heitum hvort sem
bleytir eða frýs.
PIPA
R\TBW
A
• SÍA
• 1123
43
eldsneyti er takmarkaður eða
enginn. Þar sem við bætist slæm-
ur efnahagur og því minni mögu-
leikar á kaupum dýrra orkugjafa
er þörfin enn ríkari til aðgerða
strax. Svo er um þróunarlöndin.
Stærstur hluti þeirra sem ekki
hafa aðgang að rafmagni búa í
Afríku sunnan Sahara og á Ind-
landi. Þar eru því gríðarlegir
möguleikar fyrir nýja orkugjafa,
sem sést vel á
því að meira
en helmingur
allra fjárfest-
inga í vindorku
árið 2010 átti sér
stað í þróunar-
löndunum og um
helmingur þegar
kemur að lífmassa.
Kostnaður lækkar
En hvers vegna ekki
bara að henda upp
vindmyllum þar sem
blæs og sólarsellum þar
sem sólar er von? Það
er von að spurt sé. Fyrir
Íslending á ferð í hjarta
hins endurnýjanlega orku-
geira á alþjóðavísu, virðist
málið nokkuð einfalt. Reikn-
ingsdæmi þar sem jafnvel
undirritaður geti reiknað. Olíu
og gas mun á endanum þrjóta,
annað þarf í staðinn. Ekki flókið.
Galli endurnýjanlegu orkugjaf-
anna hefur verið sá að stofnkostn-
aður við þá er mjög mikill. Stofn-
kostnaður við jarðefnaeldsneytið
er það vissulega líka, en löngu er
búið að greiða hann upp. Þá eru
geymsla og flutningur rafmagns-
ins enn nokkrum vandkvæðum
háð.
IRENA er alþjóðleg stofnun
um endurnýjanlega orkugjafa,
en á hana var minnst í síð-
ustu grein. Hún var stofnuð í apríl
2011 og 158 lönd hafa skuldbundið
sig starfi hennar, en aðildarríkin
eru 93.
IRENA er ekki lánastofnun,
rannsóknarsetur eða frjáls félaga-
samtök (e. NGO) heldur ráðgjafar-
setur, bæði tæknilegt og pólitískt,
sem sér um samhæfingu í geiran-
um.
Dolf Gielen er forstjóri tækni-
sviðs stofnunarinnar. Hann segir
að kostnaður við endurnýjan-
lega orkugjafa fari minnkandi og
þeir verði æ stöðugri. „Endurnýj-
anlegir orkugjafar geta uppfyllt
stefnu um örugga, trygga og ódýra
orku sem nýtist við útvíkkun orku-
neta og til þróunar.“
Hann segir vandamálið þó að
þar sem ekki er um eitt samhæft
net að ræða sé oft erfitt að nálgast
upplýsingar.
Hrein orkubylting
Sameinuðu þjóðirnar hafa sett
fram stefnu um byltingu í hreinni
orku. Með þeirri stefnu á að ná til
þeirra 3 milljarða jarðarbúa sem
búa við skertan aðgang að orku, en
af þeim hafa 1,3 milljarðar engan
aðgang að orku.
„Þrír milljarðar manna not-
ast enn við kol og viðarkyndingu
til að elda sér mat. Þeir búa við
orkufátækt sem leiðir síðan af sér
skelfilega almenna fátækt,“ sagði
Ban Ki-moon, aðalritari Samein-
uðu þjóðanna, þegar hann kynnti
stefnuna í október.
„Við þörfnumst orku sem er
alþjóðleg, sem er hrein og einnig
sjálfbær. Við getum ekki lengur
brennt okkur í átt til velmegunar.
Eina leiðin til að draga úr áhætt-
unni á hættulegum loftslagsbreyt-
ingum er að tryggja að orkan sé
sjálfbær.“
Í því skyni er markmiðið að
auka orkunýtingu um 40% á árun-
um 2010 til 2030. Þar er horft til
endurnýjanlegra orkugjafa, en
eins og áður segir, á hlutur þeirra
það ár að verða 30%.
Yfir milljarður jarðarbúa
lifir án aðgengis að raf-
magni. Eigi að bæta úr því
og ná um leið markmiðum
alþjóðasamfélagsins um
minni útblástur gróður-
húsalofttegunda þarf að
auka veg endurnýjanlegra
orkugjafa. Fjárfesting í
þeim geira hefur aukist til
muna síðustu ár og endur-
nýjanleg orka á að tryggja
framtíðarorku jarðar.
Eigi allir jarðarbúar að hafa
aðgang að rafmagni þarf að
gjörbreyta orkubúskap heims-
ins. Flóknara er það nú ekki. Við
getum haft mismunandi skoðan-
ir á framtíð jarðefnaeldsneytis,
en fram hjá því verður ekki horft
að það er end-
anleg auðlind.
Hver svo sem
tímapunktur-
inn verður, þá
kemur að því
að hana þrýtur.
Þess vegna
er það morgun-
ljóst að eigi að
tryggja öllum
rafmagn verð-
ur að líta til
annarra leiða
til að framleiða
það. Þegar við
það bætist að
það samræm-
ist markmiðum
um að draga úr
útblæstri gróð-
urhúsaloftteg-
unda, er ekki
skrýtið hve mikil áhersla er lögð
á uppbyggingu endurnýjanlegra
orkugjafa.
Sjálfbær orka
Eins og fyrr hefur komið fram í
þessum greinaflokki er árið 2012
ár sjálfbærrar orku hjá Samein-
uðu þjóðunum. Markmiðin eru
háleit; tryggja á öllum jarðarbú-
um orku árið 2030, þá á að nýta
þá orku sem fyrir er tvöfalt betur
og tvöfalda hlut endurnýjanlegra
orkugjafa.
Sjálfbær þróun snýst um að
þörfum nútímans sé mætt án
þess að skerða möguleika kom-
andi kynslóða til að mæta sínum
þörfum. Augljóslega munu kom-
andi kynslóðir ekki hafa sama
aðgang að olíulindum og við.
Þess vegna er þörfin á sjálfbær-
um orkugjöfum svo rík sem raun
ber vitni.
Þetta á ekki síst við í löndum
þar sem aðgangur að jarðefna-
Tvöfalda endurnýjanlega orku 2030
DOLF GIEDEN
BAN KI-MOON
50%
40%
30%
20%
10%
2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009
Um helmingur nýrrar orku er endurnýjanlegur
Hefur tvöfaldast á fimm árum
Á MÁNUDAG:
Raunhæf markmið eða orða-
gjálfur?
Kolbeinn
Óttarsson Proppé
kolbeinn@frettabladid.is
Jarðgas 22% Kjarnorka 13%
Olía 5%
Vindorka 2%
Lífmassi 1%
Kol 41%
Stórar vatnsaflsvirkjanir og stækkanir 18%
Litlar vatnsaflsvirkjanir 1%
Lífmassi/úrgangur 4%
Lífefnaeldsneyti 2%
Minni sólarrafhlöður* 24%
Lítil rannsóknarverkefni 3%
Stórar rafhlöður 10%
Vindorka 37%
Jarðvarmi 1%
Sameinuðu þjóðirnar settu
sér, árið 2000, markmið
um þróun til ársins 2015.
Mörgum þótti hátt stefnt
og ljóst er að ekki tekst
að uppfylla markmiðin á
tilskyldum tíma. Enn er þó
stefnt að því að markmiðin
náist, þó tafir verði á því.
Se4all er stofnun Sam-
einuðu þjóðanna sem
vinnur að því að tryggja
jarðarbúum aðgang að
endurnýjanlegum orkugjöf-
um, en nafnið stendur fyrir
Sustainable Energy for All.
Án aðgangs að nútíma orku
er ljóst að þúsaldarmark-
miðin nást ekki, en þau má
sjá hér:
Eyða fátækt og hungri
Öll börn njóti grunnskólamenntunar árið 2015
Vinna að jafnrétti kynjanna og styrkja frumkvæðisrétt kvenna
Lækka dánartíðni barna
Vinna að bættu heilsufari kvenna
Berjast gegn alnæmi, malaríu og öðrum sjúkdómum sem ógna mann-
kyninu
Vinna að sjálfbærri þróun
Styrkja hnattræna samvinnu um þróun
Sjálfbær orkunýting forsenda þúsald-
armarkmiðanna
Orkubúskapur jarðarinnar 2010
Endurnýjanlegir orkugjafar
Fjárfesting eftir orkuframleiðslu -
310 milljarðar dala
*MEÐAL ANNARS TIL HEIMANOTA
Við þörfnumst orku sem er
alþjóðleg, sem er hrein og
einnig sjálfbær. Við getum
ekki lengur brennt okkur í
átt til velmegunar.
BAN KI-MOON
AÐALRITARI SAMEINUÐU ÞJÓÐANNA