Fréttablaðið - 19.05.2012, Blaðsíða 52
19. maí 2012 LAUGARDAGUR6
Þjálfarar óskast
Handknattleiksdeild Gróttu leitar eftir þjálfurum
fyrir yngri flokka tímabilið 2012-2013. Reynsla af
þjálfun er æskileg sem og uppeldis-, eða íþrótta-
fræðimenntun. Handknattleiksdeild Gróttu var
stofnuð árið 1969 og er í dag meðal stærstu deilda
á landinu með um 350 iðkendur í yngri flokkum.
Starfsskilyrði eru góð og launagreiðslur öruggar.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Kári Garðarsson, yfirþjálfari í síma 868-2426 eða
kari.gardarsson@reykjavik.is
Starfskraftur óskast!
Efnalaug og fataleiga Garðabæjar óskar eftir starfskrafti
í 100% starf, frá og með 1. júlí 2012. Viðkomandi þarf
að vera íslensku mælandi og eldir en 30 ára. Kunnátta
í saumaskap er kostur. Áhugasamir senda póst á net-
fangið fataleiga@fataleiga.is
landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn
Forstöðumaður
Þjónustudeildar
Við leitum að öflugum stjórnanda til að byggja upp nýja þjónustudeild innan
Þróunar. Starfið er bæði krefjandi og áhugavert. Viðkomandi þarf að hafa ríka
leiðtogahæfileika, hæfni til að hrinda verkefnum í framkvæmd og hrífa fólk með sér.
Helstu verkefni
» Mótun stefnu og sýn nýrrar deildar.
» Ábyrgð á þjónustustefnu Landsbankans og innleiðing
hennar, þ.m.t. þjónustumarkmið allra sviða og útibúa.
» Ábyrgð á þjónustusamtölum/heimsóknum í samstarfi
við önnur svið bankans.
» Ábyrgð á fræðslu til viðskiptavina í samstarfi við aðrar
deildir og svið bankans.
» Umgjörð og eftirfylgni með móttöku nýrra viðskiptavina.
» Þjónustumælingar, og í framhaldi af þeim ráðgjöf,
stuðningur og mótun úrbótaverkefna.
» Ábyrgð á innleiðingu og stjórnun viðskiptatengsla (CRM).
Menntunar- og hæfniskröfur
» Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
» Reynsla af stjórnun nauðsynleg.
» Þekking og reynsla af þjónustumálum.
» Þekking á bankastarfsemi æskileg.
» Hæfni í þjálfun og kennslu æskileg.
» Rík þjónustulund, frumkvæði og sjálfstæði
í vinnubrögðum.
» Skipulagshæfileikar og hæfni í mannlegum samskiptum.
» Gott vald á íslensku, bæði í töluðu og rituðu máli.
Nánari upplýsingar veita Jensína K. Böðvarsdóttir, framkvæmdastjóri Þróunar, í síma 410 7011 og Baldur G. Jónsson, mannauðsstjóri
hjá Mannauði, í síma 410 7904. Umsókn merkt „Forstöðumaður Þjónustudeildar“ fyllist út á vef bankans.
Umsóknarfrestur er til og með sunnudeginum 27. maí nk.
Þjónustudeild mun tilheyra Þróun en sviðið hefur það hlutverk að vera leiðandi í framþróun og
breytingum innan Landsbankans. Nýr stjórnandi verður í stjórnunarteymi Þróunar og tekur þátt
í ýmsum verkefnum sem snúa að öflugri liðsheild, traustum innviðum, ánægju viðskiptavina og
samfélagsábyrgð.