Fréttablaðið - 19.05.2012, Blaðsíða 42
FÓLK|FERÐIR
Kúkú Campers er bílaleiga sem býður upp á sendibíla sem þeir Steinarr Lár og Valdimar Geir
Halldórsson hafa sjálfir breytt þannig
að það er hægt að gista í þeim. „Mark-
mið Kúkú Campers er að gera ferða-
mönnum kleift að ferðast um landið
án þess að fara á hausinn. Við erum
í raun að selja frelsi,“ segir Steinarr
Lár, annar eigenda Kúkú Campers.
Fyrirtækið býður þrjár gerðir af
bílum. Hefðbundna „iðnaðarmanna-
sendibíla“ sem tveir geta gist í,
stærri bíla sem henta fjórum og eru
búnir tjaldi sem er dregið út og fjór-
hjóladrifna bíla sem henta til dæmis
í veiðiferðir. Í bílunum er 190x120
sentimetra rúmpláss, borðbúnaður
og sitthvað fleira. „Þetta er ódýr
lausn en hjá okkur er hægt að fá bíla-
leigubíl og gistingu á tólf þúsund
krónur á sólarhringinn á opnunartil-
boði í júní. Það er fullbókað hjá okkur
í júlí og við finnum þörf fyrir fleiri
bíla en eins og eru eru þeir tuttugu
talsins.“
Steinarr segir markhóp Kúkú
Campers ekki bundinn aldri eða kyni.
„Markhópurinn er bundinn af hugar-
ástandi. Við höfðum til fólks sem
langar til að gera eitthvað öðruvísi.
Það á að vera hægt að vera „kúkú“
á Íslandi ef fólk langar. Hugarástand
Kúkú er að fólk geti gert það sem það
vill svo lengi sem það ber virðingu
fyrir landinu. Í hinum pólitískt rétt-
sýna heimi verður að vera hægt að
flýja veruleikann og gera eitthvað
ruglað. Flestir kúnnarnir okkar eru á
milli tvítugs og fertugs en við erum
að fá fólk sem er rúmlega fimmtugt
og er búið að gera allt. Búið að gista
á öllum flottustu hótelum í heimi og
borða fínan mat út um allt og langar
að gera eitthvað allt annað, upplifa
algjört frelsi,“ segir hann.
Þeir félagar hafa farið óhefð-
bundnar leiðir til að vekja athygli
á fyrirtækinu og einn liður í því er
notkun karaktersins Big Boss. „Big
Boss mætir á skrifstofuna hjá okkur
þann fyrsta júní en hann má sjá nú
þegar á heimasíðunni kukucampers.
is. Honum má einnig sjá bregða fyrir
á planinu hér á Klapparstígnum þar
sem Kúkú Campers er til húsa og þar
má líka skoða bílana okkar. Þeir eru
hver um sig tileinkaðir alþjóðlega
þekktum persónum sem hafa kannski
ekki alltaf haft allt sitt á hreinu. Til
dæmis er það Tiger Woods-bíll-
inn sem hentar þeim sem hyggja á
framhjáhald sérstaklega vel. Svo er
það Winona Ryder-bíllinn sem er
sérsniðinn fyrir kaupalkana,“ segir
Steinarr í gamansömum tón. ■ lbh
ÞAÐ ER Í LAGI AÐ VERA KÚKÚ
SNIÐUGT Steinarr Lár og Valdimar Geir Halldórsson eru stórhuga menn og handlagnir að auki. Þeir hafa stofnað ferðaþjónustu-
fyrirtækið Kúkú Campers sem býður bílaleigubíla með gistimöguleika. „Það á að vera hægt að vera kúkú á Íslandi,“ segir Steinarr.
FLOTTUR Big Boss er
karakter sem starfar við
markaðssetningu hjá
Kúkú Campers. Honum
finnst í lagi að vera
„kúkú“. MYND/GVA
GOTT AÐ VERA
ÖÐRUVÍSI
Steinarr segir
markhóp Kúkú
Campers ekki
bundinn af aldri
eða kyni heldur
hugarástandi.
FRELSIÐ ER
YNDISLEGT
Bílarnir eru
ýmist með gistipláss
fyrir tvo eða fjóra.
Frelsið við það að
geta plantað bíla-
leigubílnum nánast
hvar sem er og
fengið sér blund er
ótvírætt.
SKERA SIG ÚR
Bílarnir eru skraut-
legir og hver um sig
tileinkaður alþjóð-
lega þekktum pers-
ónum. Má þar nefna
Winonu Ryder og
Tiger Woods.
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is s 512 5473, Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is s 512 5432