Fréttablaðið - 19.05.2012, Page 61
LAUGARDAGUR 19. maí 2012 15
RÁÐNINGARÞJÓNUSTA
Ráðningarþjónusta
HH Ráðgjöf • Fiskislóð 81 • 101 Reykjavík • Sími: 561 5900 • Fax: 561 5909 • hhr@hhr.is • www.hhr.is
Nánari upplýsingar um starfið er að finna á heimasíðu HH Ráðgjafar
www.hhr.is og eru áhugasamir beðnir um að sækja um starfið þar.
Helstu verkefni Hæfniskröfur
· Viðhald og öflun nýrra viðskiptavina
· Heimsóknir í fyrirtæki,stofnanir og mötuneyti
· Áætlanagerð
· Undirbúningur og eftirfylgni
· Reynsla af sambærilegum störfum æskileg
· Góð almenn tölvukunnátta
· Hæfni í mannlegum samskiptum
· Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
Heildverslun á sviði matvæla og hreinlætisvara óskar eftir að ráða öflugan
sölumann á fyrirtækjasvið. Um fullt starf er að ræða.
Fyrirtækið sérhæfir sig í innflutningi, sölu og dreifingu á vörum til
matvöruverslana, lyfjabúða, veitingahúsa og mötuneyta.
Sölumaður
MENNTUNARSJÓÐUR
Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur
Auglýst er eftir umsóknum um styrk úr Menntunarsjóði Mæðra-
styrksnefndar Reykjavíkur. Sjóðnum er ætlað að styrkja efnalitlar
konur til náms.*
Styrkurinn er ætlaður þeim sem hyggja á nám á skólaárinu
2012-2013.
Hægt er að sækja um styrk vegna náms hjá viðurkenndri stofnun
sem veitir fagréttindi, starfsréttindi eða prófgráðu, s.s. stúdents-
eða háskólapróf.
Um er að ræða styrk til greiðslu skólagjalda (að ákveðnu
hámarki) bókakaupa eða annars sem gerir umsækjanda kleyft
að stunda og ljúka námi.
Umsóknarfrestur rennur út 30. júní 2012.
Umsókn þarf að fylgja
- skattskýrsla síðustu 2 ára
- tekjuáætlun 2012
- staðfesting á námsvist
Umsóknareyðublað, úthlutunarreglur og allar nánari upplýsingar
eru á heimasíðu Menntunarsjóðsins á vef Mæðrastyrksnefndar:
www.maedur.is
Gögn sem fylgja þurfa með umsóknareyðublaðinu:
- staðfesting á námsvist hjá menntastofnuninni,
- skattaskýrsla síðustu tveggja ára
- yfirlit yfir áætlaðar tekjur 2012.
- Yfirlýsing um að umsækjandi fái ekki aðra styrki
vegna námsins.
*Menntunarsjóðurinn leggur fyrst um sinn áherslu á að styrkja tekjulitlar konur til náms.
Námsstyrkir
Bandalag kvenna í Reykjavík auglýsir til umsóknar styrki úr
Starfsmenntunarsjóði ungra kvenna fyrir skólaárið 2012-2013.
Tilgangur sjóðsins er að hvetja og styðja við bakið á ungum
konum í Reykjavík, sem ekki eiga kost á námslánum, til að afla
sér aukinnar menntunar.
Umsóknum skal skilað á sérstökum eyðublöðum, sem hægt er
að fá í versluninni Thorvaldsensbasar, Austurstræti 4, alla virka
daga milli kl. 09:00 og 18:00.
Fyrirspurnir má senda á netfang bandalagsins:
bandalag@simnet.is
Sjá einnig Facebooksíðu: Bandalag kvenna í Reykjavík.
Umsóknir þurfa að berast fyrir 14. júní 2012 til Bandalags
kvenna í Reykjavík
Túngötu 14, 101 Reykjavík, merktar “Námsstyrkir”
Verkefnastjóri Viðeyjar
Menningar- og ferðamálasvið
Laus er til umsóknar staða verkefnastjóra Viðeyjar á skrifstofu Menningar- og ferðamálasviðs Reykjavíkurborgar.
Starfssvið: Umsjón og eftirfylgni með starfssemi og rekstri í Viðey. Í því felst meðal annars; eftirlit með eignum
Reykjavíkurborgar í Viðey, undirbúningur, skipulagning, kynning og framkvæmd þeirra viðburða sem Reykjavíkurborg
stendur að í Viðey. Samráð og samvinna við þá fjölmörgu aðila sem koma að starfsemi í Viðey.
Starfið krefst:
• Háskólamenntunar og a.m.k. tveggja ára starfsreynslu sem nýtist í starfi.
• Mikillar færni í íslensku og ensku, talaðri og ritaðri. Gott vald á þriðja tungumáli er kostur.
• Frumkvæðis og sjálfstæðis í vinnubrögðum, góðra skipulagshæfileika auk hugmyndaauðgi.
• Reynslu af verkefnastjórnun og áætlanagerð.
• Góðrar almennrar tölvukunnáttu, s.s. þekkingu á Word og Excel.
• Getu til að vinna undir álagi og geta sinnt mörgum viðfangsefnum í einu.
• Framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum og ríkrar þjónustulundar.
• Sveigjanleika þar eð vinnutíminn getur verið óreglulegur.
Vakin er athygli á að starfið er mjög fjölbreytt og getur krafist umsjónar með verklegum framkvæmdum, m.a. vegna
umsjónar með eignum Reykjavíkurborgar í Viðey. Viðkomandi verður að geta verið talsmaður verkefna í fjölmiðlum og
þarf því að eiga gott með að koma fram opinberlega. Áhersla er lögð á frumkvæði, metnað og jákvæðni.
Kjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar. Um er að ræða fullt starf
og þarf viðkomandi að geta hafið störf sem fyrst, en eigi síðar en 15. júlí n.k.
Nánari upplýsingar veitir: Berglind Ólafsdóttir berglind.olafsdottir@reykjavik.is skrifstofustjóri rekstrar og fjármála. Vakin
er sérstök athygli á markmiðum starfsmanna- og jafnréttisstefnu Reykjavíkurborgar sem er að finna á www.rvk.is.
Umsóknarfrestur er til og með 3. júní nk. Umsóknir skulu sendar á vef Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is/storf
Hlutverk Menningar- og ferðamálasviðs er að fara með framkvæmd menningar- og ferðamála hjá Reykjavíkurborg. Sviðinu tilheyra
menningarstofnanir Reykjavíkurborgar, Borgarbóksafn Reykjavíkur, Listasafn Reykjavíkur, Minjasafn Reykjavíkur, Ljósmyndasafn
Reykjavíkur og Menningarmiðstöðin Gerðuberg. Höfuðborgarstofa sinnir ferða- og markaðsmálum og sér um framkvæmd ýmissa stórra hátíða.
Neptune ehf óskar eftir
stýrimanni og matsveini
Neptune ehf gerir út og rekur tvö rannsóknarskip frá Akureyri,
Poseidon EA-303 og Neptune EA-41. Til starfa óskast
stýrimaður og matsveinn til afleysinga, með hugsanlega fast-
ráðningu. Alþjóðaskírteinis er krafist sem og ARPA réttinda og
æskilegt að viðkomandi sé með DP réttindi. Enskukunnátta er
skilyrði. Viðkomandi þurfa að geta hafið störf fljótlega.
Umsóknir og beiðni um frekari upplýsingar sendist á netfangið:
svanberg.snorrason@neptune.is
Styrkir
www.saft.is
RÆDDU UM ÞÁ
ÁHÆTTU SEM FYLGIR
ÞVÍ AÐ HITTA NETVIN
Sölumaður/fasteignasali
Höfuðborg fasteignamiðlun leitar að sölufólki.
Viðkomandi þarf að vera duglegur, sjálfstæður og
stunda vönduð vinnubrögð.
Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu af sölu
fasteigna og óskum við sérstaklega eftir umsóknum
frá aðilum með löggildingu.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Umsóknir ásamt ferilskrár sendist á :
hofudborg@hofudborg.is
Höfuðborg fasteignamiðlun - Hlíðasmári 2, 4. hæð - Sími 414-4488
Sálfræðingur
SÁÁ óskar eftir að ráða sálfræðing til starfa. Reynsla
af störfum með börn og unglinga ásamt áfengis- og
vímuefnamálum æskileg.
Frekari upplýsingar veitir: Lárus Blöndal sálfræðingur
SÁÁ símar 530 7611 og 897 1948 netfang larus@saa.is
Eiginhandarumsóknir sendist til SÁÁ Efstaleiti 7, 103
Reykjavík merktar „Sálfræðingur 2012“ fyrir 1. júní n.k