Fréttablaðið - 19.05.2012, Side 74

Fréttablaðið - 19.05.2012, Side 74
KYNNING − AUGLÝSINGÞjónusta við fatlaða LAUGARDAGUR 19. MAÍ 20124 MEÐ OKKAR AUGUM Á næstu dögum munu tökur hefjast á nýrri þáttaröð af Með okkar augum. Þátturinn verður framleiddur með sömu áhöfn og framleiddi fyrstu þáttaröðina. Fyrsti þátturinn af sex verður frumsýndur miðvikudaginn 4. júlí. „Þátturinn hefur vakið mikla athygli hjá systursamtökum okkar á Norðurlöndunum,“ segir Friðrik Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri Þroskahjálpar á Íslandi, en þættirnir hafa fengið mörg verðlaun, þar á meðal Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins. FATLAÐIR Í ÞRÓUNAR LÖNDUM Talið er að það séu um það bil 500 milljónir manna sem búa við líkamlega eða andlega fötlun. Af þessum 500 millj- ónum búa 350 milljónir í þróunarlöndum. Óalgengt er að fatlaðir einstaklingar í þróunarlöndunum fái aðstoð en um 98% fatlaðra í þeim löndum fá litla sem enga aðstoð. Algengt er að fötluð börn í Afríku, Indlandi og fleiri stöðum fái enga ást eða umhyggju í barnæsku og ekki er óalgengt að þau séu borin út. Börnin ganga yfirleitt ekki í skóla og fá enga kennslu heima fyrir. Rannsóknir sýna að eftir því sem kennslan er minni því fleiri eru geðrænu vandamálin. Minni kennsla leiðir einnig til meiri fátæktar. Það sorglega er að ef allir þessir einstaklingar fengju þá umhyggju og læknisað- stoð sem þeir þurfa á að halda væri hægt að gera þeim lífið auðveldara. Líkamlega fatlaðir einstaklingar í þróunarlöndum eiga á hættu að verða fyrir röskun á geð- heilsu vegna þess að þeir eru oft einangraðir frá umheiminum eða verða fyrir fordómum og einelti. Á strætum borga þar sem mikil fátækt ríkir má oft sjá fötluð börn úti á götu að betla. For- eldrar eða forráðamenn senda þau út til þess að afla peninga fyrir heimilið. Til eru dæmi um að foreldrar heilbrigðra barna ýmist afmyndi þau eða aflimi til að þeim sé sýnd meiri vorkunn þegar þau betla úti á götu. Þáttagerðarfólkið sem vann þættina Með okkar augum. Dagur B. Eggertsson ásamt glöðum hópi vinningshafa. FENGU VERÐLAUN Listahátíðin List án landamæra hlaut Mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar 16. maí sl. Það var Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs, sem afhenti fulltrúum Listar án landamæra verðlaunin í Höfða. Listahátíðin List án landamæra var fyrst haldin á Evrópuári fatlaðra árið 2003 og hefur verið árlega síðan. Verðlaunin eru höggmynd eftir Ragnhildi Stefánsdóttur myndlistarmann.. Margrét M. Norðdal, framkvæmdastýra hátíðarinnar, tók við verðlaununum. Einstak lingurinn er mið-punkturinn í öllu okkar starfi,“ segir Kristina Anders- son, stoð- og hjálpartækjasmiður hjá Stoð. „Okkar markmið er vellíðan og léttara líf fyrir fatlaða. Margir koma að þeirri vinnu og þróunin er mikil svo fatlaðir einstaklingar geti lifað sem eðlilegustu lífi.“ Meðal nýjunga í hjólastólum nefnir Kristina rafknúinn stand- hjólastól sem hægt er að tjakka upp þannig að einstaklingurinn „standi upp“ í stólnum. „Með því getur hann meðal ann- ars teygt sig í hluti sem eru ofar en borðhæð og horfst í augu við stand- andi fólk,“ útskýrir Kristina. Í Stoð eru tvær deildir stoðtækja fyrir fatlaða; innkaupadeild með tilbúin hjálpartæki og sérsmíða- deild þar sem stoðtækja- og hjálp- artækjasmiðir vinna náið með sjúkra- og iðjuþjálfum. „Úrvalið er ríkulegt. Við erum með allt frá göngugrindum yfir í hágæða hjólastóla fyrir börn og fullorðna. Við bjóðum kross- ramma-, fastramma- og hæginda- hjólastóla, barnahjólastóla og und- irstell fyrir sérsmíðuð sérmót,“ segir Kristina og bætir við að einn- ig sé hægt að breyta krossramma-, fastramma- og hægindahjólastól- um fyrir sérmót. „Við mætum öllum þörfum út frá persónulegri nálgun og út- færslum. Því leggjum við höfuð- áherslu á að hitta alla skjólstæð- inga okkar svo hægt sé að útbúa hjólastól eftir máli og stilla hæð og halla eftir þörfum hvers og eins,“ segir Kristina. Í Stoð fást einnig rafmagnshjóla- stólar, þríhjól fyrir þá sem halda illa jafnvægi og léttari hjólastólar fyrir aðstoðarmenn. „Fyrir þá sem ekki geta keyrt hjólastól með handafli er auðvelt að tengja mótor við hjólið og stýra því með stýripinna,“ útskýrir Krist- ina. Stoð selur einnig kerrur fyrir fötluð smábörn. „Í þær er auðvelt að smíða sér- stuðning, bæta við stuðningsbelt- um og sérstökum höfuðpúðum fyrir þau sem hafa ekki stjórn á lík- ama sínum,“ upplýsir Kristina. Léttara líf og meiri vellíðan Í Stoð fæst fjölbreytt úrval fyrsta flokks hjólastóla sem allir eru útbúnir út frá persónulegum þörfum hvers og eins. Hér má sjá Völu Þórólfsdóttur stoðtækjafræðing og Kristinu Andersson, stoð- og hjálpartækjasmið, í Hjálpartækjaverslun Stoðar í Hafnarfirði. MYND/PJETUR Metnaður okkar felst fyrst og fremst í því að skjól-stæðingum okkar farn- ist sem best með okkar liðsinni og þeim þægindum að hjá okkur er hægt að finna velflest hjálpar- og stoðtæki á einum stað,“ segir Vala Þórólfsdóttir stoðtækjafræðingur hjá Stoð. Hún segir hægt að gera ótrú- lega margt til að létta líf fatlaðra og auðvelda til muna alla umönn- un þeirra. „Stoðtæki eru í sífelldri þróun. Þar má nefna spelkur sem áður voru fyrirferðarmiklar úr þungu stáli, plasti og áli. Nú eru þær unnar úr léttri blöndu plasts og koltrefja sem gerir þær níðsterk- ar, léttari, sveigjanlegri og mikl- um mun fyrirferðarminni,“ út- skýrir Vala sem handgerir hverja einustu spelku út frá einstaklings- miðuðum sérþörfum. „Fólk á öllum aldri getur þurft á spelku að halda til lengri eða skemmri tíma. Þær eru til stuðn- ings þegar vantar upp á vöðva- færni líkamans, sem meðferðar- úrræði í stuttan tíma, framhald af sjúkraþjálfun eða til stuðnings til lengri tíma þegar reynt er að vinna gegn krepptum vöðvum, halda þeim styrkum og blóðflæði gangandi,“ útskýrir Vala. Koltrefjar eru einnig notað- ar í bolspelkur sem vinna gegn skekkjum í baki og þyngdarafli einstaklinga sem ekki geta hald- ið sér uppi. „Þá sérsmíðum við hjálma fyrir f logaveika og valta einstaklinga sem er hætt við að detta á höfuð- ið,“ upplýsir Vala. Hún segir úrval hjálpartækja ríkulegt í Stoð. Má þar nefna þrýstingssokka, brunaumbúðir, gervilimi, eftiraðgerðaföt, gervi- brjóst, hárkollur og stuðnings- hlífar fyrir íþróttameiðsl og væga hnéskaða sem ekki þarfnast upp- skurðar. „Stærsti viðskiptavinur Stoðar er Hjálpartækjamiðstöð Sjúkra- trygginga Íslands. Flestir koma til okkar fyrir tilstuðlan lækna eða sjúkraþjálfara en öllum er velkomið að leita til okkar og víst að margir uppskæru af því bót og betrun. Fólk harkar oft af sér ótrú- legustu hluti og áttar sig ekki á að hægt sé að líða betur. Í starfinu upplifi ég því oftar en ekki létti fólks sem segist alltaf hafa liðið illa í fótum en ekki verið meðvit- að um rétt sinn á bæklunarskóm.“ Stoð – stoðtækjasmíði er við Trönuhraun 8 í Hafnarfirði og á Suðurlandsbraut 34 í Reykjavík. Sími 565 2885. Sjá nánar á www. stod.is. Styrk og traust Stoð í 30 ár Stoð fagnar þrítugsafmæli sínu um þessar mundir. Í tilefni þess býður afmælisbarnið til mánaðarlegra fyrirlestra um fagleg málefni sem tengjast starfsemi fyrirtækisins og stoðtækjagerð. Sá næsti verður 31. maí um sérmótuð sæti, belti og höfuðstuðning. Vala Þórólfsdóttir er stoðtækjafræðingur hjá Stoð. Hér má sjá hana vinna í gifsmóti fyrir spelku. MYND/PJETUR
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.