Fréttablaðið - 19.05.2012, Síða 101

Fréttablaðið - 19.05.2012, Síða 101
LAUGARDAGUR 19. maí 2012 65 EVA HERZIGOVA Í DOLCE & GABBANA LANA DEL REY Í ALBERTA FERRETTI JESSICA CHASTAIN Í ALEXANDER MCQUEEN JANE FONDA Í ATELIRE VERSACE Bíó ★ ★★★★ The Dictator Leikstjórn: Larry Charles Leikarar: Sacha Baron Cohen, Ben Kingsley, Jason Mantzoukas, Anna Faris, J. B. Smoove, Megan Fox, John C. Reilly, B. J. Novak Starað í poppið Eitt það versta sem hægt er að vera sakaður um er húmorsleysi. Að fatta ekki brandara er svo niðurlægjandi að við gerum okkur frekar upp hlátur en að biðja um útskýringu. Undirritaður vill koma því á framfæri við lesendur að hann glímir ekki við húmorsleysi og þykir meira að segja nokkuð liðtækur sprellari þegar sá gállinn er á honum. Annar liðtækur sprellari, sem öfugt við undirritaðan hefur náð heimsfrægð fyrir uppátæki sín, er Sacha Baron Cohen. Þessi breski grínisti hefur lengi stundað loftfimleika á siðferðislínunni og reynir nú að toppa fyrri fígúrur sínar sem einræðisherrann Aladeen í kvikmyndinni The Dictator. Einræðisherrar eru oftast jafn hlægilegir og þeir eru hættulegir og fram- sækinn og hugrakkur listamaður á borð við Baron Cohen ætti ekki að eiga í neinum vandræðum með að búa til sprenghlægilega en jafnframt hárbeitta ádeilu úr hráefninu. Allt kemur þó fyrir ekki og eftir stendur vandræðalegur rembingur sem virðist þjóna þeim eina tilgangi að ögra pólitískri réttsýni og brjóta sem flest tabú. Drepfyndin bíómynd með áhorfendaskarann á sínu bandi kemst upp með hvaða ósóma sem er. Ófyndin mynd sem reynir að komast upp með nauðgunarbrandara (ítrekað) fær mann til að svitna á bakinu og stara ofan í poppið. Hvað fór úrskeiðis hjá þessum hæfileikaríka grínara? Borat var ósmekk- leg frá upphafi til enda en var þrátt fyrir það hryllilega fyndin. Brüno olli vissulega vonbrigðum en í The Dictator gengur ekkert upp. Spaugið er límt saman með lélegu handriti, Baron Cohen virðist hafa misst allt skynbragð á framsetningu grínsins, enginn aukaleikaranna nær að láta ljós sitt skína og allra verst er ósannfærandi og flöt mótleikkonan, Anna Faris. Í lok myndarinnar örlar þó á smá broddi í samfélagsrýninni, en eftir allt sem á undan hefur gengið er áhorfandinn lítt móttækilegur fyrir pólitískum predikunum. En enginn vill láta hanka sig á húmorsleysinu og jafnvel verra er að vera sakaður um óhóflega pólitíska réttsýni. Ég reyndi hvað ég gat að kreista fram meðvirknishlátur yfir mislukkuðum bröndurum um kvenfyrir- litningu, barnamisnotkun og sjálfsmorðssprengingar, en allir sáu í gegnum mig. Mér fannst The Dictator ekkert fyndin. Haukur Viðar Alfreðsson Niðurstaða: Sacha reynir að taka allt og alla í gegn. Ferill hans sem grínisti er næstur á dagskrá. VANDRÆÐALEGT Rembingurinn í Sacha Baron Cohen virðist þjóna þeim eina tilgangi að ögra pólitískri réttsýni og brjóta sem flest tabú.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.