Fréttablaðið - 06.06.2012, Side 34
6. júní 2012 MIÐVIKUDAGUR22
sport@frettabladid.is
ÍSLAND er ein níu þjóða sem hafa lýst yfir áhuga á að halda EM kvenna í handbolta í desember á þessu
ári. Holland hætti óvænt við að halda mótið og verður tilkynnt á næstu tveim vikum hvar það verður. Ísland
komst ekki á mótið en ef mótið fer fram á Íslandi fær Ísland væntanlega sjálfkrafa þátttökurétt.
Flensborgarskólinn auglýsir eftir stuðningsfull-
trúa á starfsbraut
Mikilvægt er að umsækjandi hafi til að bera góða
samskiptahæfni og áhuga á vinnu með ungu fólki.
Æskilegt er að viðkomandi hafi stúdentspróf eða
sambærilega menntun.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf 17. ágúst 2012.
Nánari upplýsingar og móttaka umsóknar er á Starfatorgi
(www.starfatorg.is) .
Umsóknarfrestur er til og með 20. júní 2012.
Nánari upplýsingar veita
Einar Birgir Steinþórsson, skólameistari s: 565 0400 /
ebs@flensborg.is
Hrafnhildur Jósefsdóttir, sviðsstjóri starfsbrautar s:565 0400 /
hrafnhildur@flensborg.is
Alvöru áhöld og tæki
í garðinn og sumarbústaðinn
. . . færðu hjá okkur
Greinaklippur
Toppklippur
Greinasagir
WOLF dreifarar.
Einfaldir og góðir“Bumbubanar”
“Greinakurlarar”
ÞÓRHF
Krókhálsi 16
110 Reykjavík
Sími 568-1500
Lónsbakka
601 Akureyri
Sími 461-1070
www.thor.is
ÍÞRÓTTAAKADEMÍA
VILTU VERÐA
ÍAK ÞJÁLFARI?
Íþróttaakademía Keilis býður upp á krefjandi,
skemmtilegt og metnaðarfullt nám í ÍAK einka-
þjálfun og ÍAK íþróttaþjálfun. Í undirbúningi er að
bjóða upp á nám í ÍAK hópþjálfun. Miklir atvinnu-
möguleikar eru fyrir ÍAK þjálfara og samkvæmt
könnunum eru þeir eftirsóttir þjálfarar.
Nám í ÍAK þjálfun miðar að því að skila þjálfurum
tilbúnum til starfa.
NÁMSFRAMBOÐ
ÍAK EINKAÞJÁLFUN
ÍAK ÍÞRÓTTAÞJÁLFUN
ÍAK HÓPÞJÁLFUN
KEILIR ÁSBRÚ 578 4000 keilir.net
Umsóknarfrestur til 6. JÚNÍ
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
FRJÁLSAR „Maður verður bara að
horfast í augun við raunveru-
leikann. Þegar eitthvað geng-
ur ekki upp þá þarf maður að
breyta,“ segir frjálsíþróttakonan
Helga Margrét Þorsteinsdóttir úr
Ármanni en hún hefur slitið sam-
starfi sínu við sænska þjálfarann
Agne Bergvall. Helga er flutt til
Íslands á ný.
„Árangurinn og tölurnar hjá mér
töluðu sínu máli. Ég bætti mig á
einhverjum sviðum en alls ekki
eins og vonir stóðu til. Ég var ekki
að finna mig í æfingunum. Ég náði
ekki að nýta þá eiginleika sem ég
hef,“ sagði Helga en hún mun æfa
undir stjórn Guðmundar Hólm
Jónssonar.
„Þetta var mikill og góður skóli
í Svíþjóð sem ég hefði ekki viljað
sleppa. Það eru forréttindi að hafa
fengið tækifæri til þess að æfa
með íþróttafólki á borð við Caro-
linu Klüft.
Þetta átti ekki langan aðdrag-
anda. Meiðsli hjá mér hafa einnig
haft mikil áhrif. Í vetur hafði ég
hugsað mér að koma til Íslands og
fá ráðleggingar hjá gamla þjálfar-
anum mínum. Hann er sá þjálfari
sem mér hefur gengið best hjá. Ég
veit hvað í mér býr en núna þarf ég
að finna leið til þess að ná því allra
besta fram.“
Helga segir að hún hafi ekki
hugsað mikið um fara til Íslands
á ný.
„Þetta var í raun skyndiákvörð-
un hjá mér að fara heim til Íslands.
Ég vildi grípa tækifærið og reyna
að ná Ólympíulágmarkinu á meðan
það er enn möguleiki. Ég tel mig
vera að gera það besta úr stöðunni
úr því sem er komið. Ég hafði ekki
lengur trú á því sem ég var að gera
á æfingunum í Svíþjóð.“
Ólympíuleikarnir í London hefj-
ast í lok júlí og Helga Margrét þarf
að bæta Íslandsmet sitt um 72 stig
til þess að öðlast keppnisrétt á leik-
unum.
„Ég hef tíma fram til 7. júlí að ná
lágmarkinu fyrir Ólympíuleikana.
Á þeim tíma næ ég að keppa á einu
til tveimur mótum,“ sagði Helga.
„Ég er búin að fara í heilan
hring og prófa ýmislegt. Í dag er
ég komin aftur í „ræturnar“ og
mér fannst mjög gaman að fara
á æfingu á Selfossvelli í vikunni,
sofa á sveitabæ utan við bæinn.
Finna sveitalyktina, fara í ísbaðið í
læk við bæinn, og heyra fuglasöng-
inn. Ég þrífst best hér – á Íslandi.“
seth@frettabladid.is
Skyndiákvörðun
að koma heim
Helga Margrét er komin heim frá Svíþjóð. Þó svo
tíminn sé naumur ætlar hún að komast á ÓL.
GEFST EKKI UPP Helga fær eitt eða tvö tækifæri í viðbót til þess að komast á
Ólympíuleikana og hún ætlar að nýta þau tækifæri vel. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FÓTBOLTI Íslenska U-21 árs lands-
liðið er langneðst í sínum riðli í
undankeppni EM eftir 1-2 tap gegn
Aserbaídsjan á KR-velli í gær.
Þetta var annað tap liðsins fyrir
Aserum í riðlinum.
Ísland hefur nú tapað fimm
leikjum í riðlinum en aðeins unnið
einn. Það var gegn Belgum í fyrra.
Leikurinn byrjaði vel fyrir
íslenska liðið því Björn Bergmann
skallaði inn sendingu Kristins
Steindórssonar á 19. mínútu. Björn
Bergmann átti virkilega flottan
leik og var bestur í íslenska liðinu.
Stuttu síðar varði Skagamaður-
inn Árni Snær Ólafsson víti frá
Aserum og allt í lukkunnar vel-
standi er blásið var til leikhlés.
Fjórtán mínútum fyrir leikslok
dundi ógæfan aftur á móti yfir.
Araz Abdullayev jafnaði metin
fyrir gestina. Í uppbótartíma skor-
aði svo Javid Imamverdi sigur-
markið eftir slæm mistök Harðar
Björgvins Magnússonar.
Enn eitt tapið staðreynd og ljóst
að himinn og haf er á milli þessa
U-21 árs liðs og þess sem fór á EM.
- hbg
Íslenska U-21 árs landsliðið enn í neðsta sæti síns riðils eftir enn eitt tapið:
Fimmta tap íslenska liðsins í sex leikjum
TAKA BOLTANN Björn Bergmann og
Aron Jóhannsson á ferðinni í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM