Fréttablaðið - 09.06.2012, Page 4
9. júní 2012 LAUGARDAGUR4
GENGIÐ 08.06.2012
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
223,42
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
129,43 130,05
199,63 200,61
161,17 162,07
21,683 21,809
21,189 21,313
17,931 18,037
1,6318 1,6414
195,43 196,59
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR
SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
Í skýringartöflu í fimmtudagsblaði
Fréttablaðsins um hlutfall sjúklinga
með legháls- eða brjóstakrabbamein
sem deyja 30 dögum frá innlögn
vantaði: „Fimm ára lifun, %“. Beðist er
velvirðingar á þessu.
LEIÐRÉTTING
FRÍTT
STÆÐI
FYRIR SPARK
Sérfræðingar í bílum
VIÐSKIPTI Fransk-íslenska við-
skiptaráðið verður endurvakið
á fundi næstkomandi þriðjudag.
Samkvæmt tilkynningu er mark-
miðið að „auka viðskipti milli
landanna og miðla þekkingu og
upplýsingum um viðskiptatæki-
færi og viðskiptaumhverfi“.
Ráðið var stofnað 1990 en hefur
að mestu legið í dvala frá 2010.
Fundurinn fer fram í Norræna
húsinu á milli 8.15 og 10 en
meðal þeirra sem flytja erindi á
fundinum eru Vigdís Finnboga-
dóttir, fyrrum forseti Íslands,
og Marc Bouteiller, sendiherra
Frakklands. - þj
Millilandaviðskipti aukin:
Fransk-íslenska
endurvakið
SVÍÞJÓÐ Fjárfesta á milljörðum
sænskra króna til þess að reisa
nýjar sorpbrennslustöðvar í Sví-
þjóð. Sorpið í Svíþjóð er hins
vegar ekki nógu mikið til þess að
sorpbrennslustöðvarnar komi til
með að hafa næg verkefni. Þess
vegna mun þurfa að flytja mikið
magn sorps til Svíþjóðar, að því
er sænska ríkisútvarpið hefur
greint frá.
Umhverfisverndarstofnunin í
Svíþjóð er ósátt við þessa þróun.
Haft er eftir fulltrúa stofnunar-
innar að í áætlun um sorpeyðing-
armál sé lögð áhersla á endurnýt-
ingu, endurvinnslu og aðferðir til
þess að draga úr sorpi. - ibs
Nýjar sorpbrennslustöðvar:
Svíar þurfa að
flytja inn sorp
STJÓRNSÝSLA Bæjarstjórn sveitarfélagsins Garðs
samþykkti á síðasta fundi sínum að verða við ósk
frá fulltrúum Reykjanesbæjar um að funda um
mögulega sameiningu sveitarfélaganna Garðs,
Sandgerðis og Reykjanesbæjar.
Reykjanesbær sendi hinum sveitar félögunum
beiðni þess efnis í síðasta mánuði, með þeim
rökum að spara mætti í rekstrarkostnaði og efla
faglegt starf í ýmsum málaflokkum.
Fimm bæjarfulltrúar samþykktu tillöguna en
tveir fulltrúar úr meirihluta sátu hjá.
Að sögn Ólafs Þór Ólafssonar, forseta bæjar-
stjórnar í Sandgerði, var málið tekið fyrir í bæjar-
stjórn á fimmtudag, en vísað til bæjarráðs sem
mun taka efnislega afstöðu til málsins á fundi í
næstu viku. - þj
Garðbúar verða við ósk Reykjanesbæjar um sameiginlegan fund:
Vilja ræða mögulega sameiningu
GARÐUR Bæjarstjórnin í Garði hefur samþykkt að ræða við
Reykjanesbæ um mögulega sameiningu sveitarfélaga.
FRÉTTABLAÐIÐ/JÓN SIGURÐUR
SVEITARSTJÓRNIR Rekstrarniður-
staða Reykhólahrepps var
jákvæð um liðlega átta millj-
ónir króna í fyrra. Árið 2010 var
rekstrarniðurstaðan neikvæð um
liðlega níu milljónir.
Sveitarfélagið rekur meðal
annars dvalarheimilið Barma-
hlíð. Uppgjör rekstrar þess árið
2011 var jákvætt um 1,4 milljónir
króna. Það var rekstur hafnar-
sjóðs líka, um 1,9 milljónir króna.
Rekstur félagslegra íbúða árið
2011 var hins vegar neikvæður
um 4,7 milljónir króna. - bþh
Rekstur Reykhólahrepps:
Viðsnúningur í
sveitarsjóði
FÓLK Andemariam Teklesenbet
Beyene er 36 ára Erítreubúi sem
hefur síðustu ár stundað nám í
jarðeðlisfræði við Háskóla Íslands.
Fyrir tveimur og hálfu ári greindist
Andemariam með krabbamein í
barka og virtist um tíma sem veik-
indin gætu dregið til hann dauða.
Komst hann þá í kynni við Tómas
Guðbjartsson, prófessor í skurð-
lækningum við Háskóla Íslands og
yfirlækni á Landspítalanum, sem
tók síðar þátt í skurðaðgerð sem
bjargaði lífi Andemariam. Í aðgerð-
inni var græddur í hann plastbarki
sem þakinn var stofnfrumum en
slík aðgerð hafði aldrei áður verið
framkvæmd. Um þessar mundir er
ár liðið frá aðgerðinni og er heilsa
Andemariams sífellt að batna.
„Mér líður miklu betur en áður.
Ég get núna unnið af fullum krafti
og varið tíma með fjölskyldu minni
eins og venjulegur maður. Ég þarf
þó enn að fara reglulega á spítala
vegna lítilla sýkinga eða annarra
vandamála en þau er hægt að leysa
með speglun og án þess að ég þurfi
að fara í skurðaðgerð,“ segir And-
emariam og bætir við að hann sé
bjartsýnn á framtíðina.
„Andemariam fór að finna fyrir
öndunarerfiðleikum 2009 en það
uppgötvaðist ekki strax að hann
væri með æxli og hvað þá að æxlið
væri krabbamein. Þegar það kom í
ljós þurfti að framkvæma neyðar-
skurðaðgerð á honum og í kjöl farið
fór hann í geislameðferð. Þetta
virtist vera að bera árangur en svo
fór æxlið að stækka aftur,“ segir
Tómas og heldur áfram: „Ég ráð-
færði mig í kjölfarið við erlenda
sérfræðinga í æxlum sem þessum
og fékk víðast hvar þau svör að fátt
væri hægt að geri fyrir Andemari-
am annað en að veita honum líknar-
meðferð.“
Tómas segist ekki hafa verið
fyllilega sáttur við þau svör enda
hefði komið í ljós að Andemari-
am væri mjög harður af sér. „Þá
mundi ég eftir fyrirlestri sem ég
hafði séð Dr. Paolo Macchiarini, á
Karolínska sjúkrahúsinu í Svíþjóð,
flytja um barkaígræðslu sem hann
hafði framkvæmt þar sem notast
hafði verið við barka úr látnum
einstaklingi sem hann hafði þakið
stofnfrumum úr líffæra þeganum,“
segir Tómas og bætir við: „Slík
aðgerð kom ekki til greina í þessu
tilfelli vegna langrar biðar eftir líf-
færi en Macchiarini hafði einnig
gert tilraunir með gervilíffæri
þakin stofnfrumum sem hann
hafði grætt í dýr. Slík aðgerð hafði
hins vegar ekki verið framkvæmd
á manni. En við létum sem sagt
að lokum slag standa og aðgerðin
heppnaðist.“
Aðgerðin var gríðarlega flókin
og tók um 20 klukkustundir. Þá
tók hún mjög á Andemariam sem
þurfti í kjölfarið að dvelja á gjör-
gæslu í tvær vikur. Hefur hann
hins vegar sýnt mikinn bata síðan.
Þá hefur aðgerðin vakið mikla
athygli á alþjóðavettvangi enda hin
fyrsta þar sem gervilíffæri þakið
stofnfrumum hefur verið grætt
í mann. Tómas segir að að gerðin
hafi orðið aflvaki mikilla rann-
sókna á þessum möguleika víða um
heim og segir marga binda vonir
við að aðgerðir sem þessar geti
orðið algengar í framtíðinni. Gæti
það haft mikil áhrif á læknavís-
indin þar sem skortur á til tækum
líffærum kostar ótal mannslíf á
hverju ári.
Aðgerðin á Andemariam og
þeir möguleikar sem felast í notk-
un stofnfruma í skurðaðgerðum
verður meðal þess sem fjallað
verður um á málþingi í hátíðarsal
Háskóla Íslands í dag. Hefst mál-
þingið klukkan 10 og stendur til
12.30 en Tómas og Guðmundur Þor-
geirsson, prófessor, verða fundar-
stjórar. magnusl@frettabladid.is
Einstök aðgerð bjargaði lífi
Ár er nú liðið frá því að framkvæmd var einstök aðgerð á Erítreubúanum Andemariam Beyene sem búsett-
ur er á Íslandi. Í aðgerðinni var græddur gervibarki klæddur stofnfrumum í háls Andemariam en aldrei
áður hafði gervilíffæri klætt stofnfrumum verið grætt í mann. Heilsa Andemariams er sífellt að batna.
TÓMAS OG ANDEMARIAM Andemariam starfar nú fyrir ÍSOR eftir að hafa numið jarðeðlisfræði við Háskóla Íslands. Áður hafði
hann stundað nám við jarðhitaskóla Sameinuðu þjóðanna í Reykjavík. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
27°
25°
21°
15°
20°
20°
16°
16°
24°
18°
27°
28°
31°
18°
19°
21°
16°Á MORGUN
Hægur vindur víða
en hvassara NV-til
MÁNUDAGUR
Hæg N-læg eða
breytileg átt
7
12 10
6
7
8
8
8
11
10
8
5
3
6
5 6
6
5
6
7
14
2
8
9
6
8
10 12
9
8
6
7
MILT V-TIL en sval-
ara A-lands. Víða
nokkuð bjart í dag
einkum N- og V-til
en dálítil væta A-til.
Dregur heldur fyrir
SV-lands á morgun
og stöku skúrir þar
en annars bjartara
yfi r. Hiti svipaður
næstu daga að
15 stigum V-til en
4-9 stig A-til yfi r
daginn.
Snjólaug
Ólafsdóttir
veður-
fréttamaður
Ég ráðfærði mig í
kjölfarið við erlenda
sérfræðinga […] og fékk víðast
hvar þau svör að fátt væri hægt
að gera fyrir Andemariam …
DR. TÓMAS GUÐBJARTSSON
LÆKNIR