Fréttablaðið - 09.06.2012, Síða 6
9. júní 2012 LAUGARDAGUR6
EFNAHAGSMÁL Íslenska ríkið þarf að
greiða Landsbankanum 19,2 millj-
arða króna vegna yfirtöku bankans
á eignum og skuldum SpKef spari-
sjóðs. Til viðbótar þarf ríkið að
greiða hátt í tug milljarða króna
vegna vaxta þar sem uppgjörið
verður ekki klárað fyrr en í október
2018. Vextirnir, sem standa nú í 4,5
prósentum, eru breytilegir og því
erfitt að áætla lokakostnað vegna
þeirra. Vert er að taka fram að ríkið
er langstærsti eigandi Landsbank-
ans með 81,3 prósent eignarhlut.
SpKef var stofnaður í apríl 2010
á grunni Sparisjóðsins í Keflavík
og inn í hann voru sett innlán og
eignir gamla sjóðsins. Fljótlega kom
í ljós að gæði eigna SpKef voru ekki
nægjanleg og að virði þeirra myndi
ekki geta staðið undir þeim inn-
lánum og skuldum sem færð voru
yfir. Í mars 2011 var því ákveðið, á
grundvelli greiningar Bankasýslu
ríkisins, að Landsbankinn tæki yfir
eignir og skuldir SpKef.
Í uppgjörsreikningi sem endur-
skoðandi SpKef skilaði í ágúst í
fyrra kom fram að íslenska ríkið
ætti að greiða 13,1 milljarð
króna með SpKef við yfir-
tökuna. Landsbankinn fram-
kvæmdi þá sitt eigið mat á
virði eignanna, sem að langstærstu
leyti eru útlán, og komst að þeirri
niðurstöðu að ríkið þyrfti að greiða
30,6 milljarða króna með þeim.
Vegna þessa ágreinings var
ákveðið að fela sérstakri úrskurðar-
nefnd að skera úr um hversu mikið
íslenska ríkið ætti að borga með
SpKef og var Ragnar H. Hall hæsta-
réttarlögmaður fenginn til að veita
nefndinni formennsku. Hún
skilaði loks niðurstöðu
sinni í gær og kvað upp
þann úrskurð að íslenska
ríkið ætti að greiða
Landsbankanum 19,2
milljarða króna vegna
yfirtöku hans á
SpKef. Það er
sex milljörð-
um króna
meira en
gert var
ráð
fyrir í
upp-
gjörsreikningi endurskoðanda
SpKef.
Oddný Harðardóttir fjármálaráð-
herra segist fagna því að óvissu um
málið sé eytt, þó það séu vonbrigði
hversu mikið ríkið þurfi að borga en
með því sé verið að standa við yfir-
lýsingar stjórnvalda um að tryggja
innstæður landsmanna. Ekki hafi
verið rætt um að fella þá yfirlýs-
ingu úr gildi. „Auðvitað er æskilegt
að tryggingarnar hjá bönkunum
séu með öðrum hætti, að það sé
ekki ríkistrygging heldur trygging
í gegnum innstæðutryggingasjóð.
En þessi yfirlýsing hefur ekki verið
tekin til baka.“
Að sögn Oddnýjar hafði ráðu-
neytið gert ráð fyrir að ríkið þyrfti
að greiða um 20 milljarða króna
með SpKef, en niðurstaðan hafi ekki
mikil áhrif á áætlanir í ríkisfjár-
málum fyrir árið 2012. „Þetta verð-
ur skráð í ríkisreikning fyrir árið
2011 en vextirnir munu þó koma inn
í A-hluta reikningsins. Við reiknum
með því að þeir séu um milljarður
króna á ári.“ thordur@frettabladid.is
ÖRYGGISMÁL Almannavarnanefnd
Þingeyinga og embætti Lögreglu-
stjórans á Húsavík standa í dag,
laugardag, fyrir sjóslysaæfingu
á Skjálfanda og á Húsavík. Um
samstarf við almannavarna-
deild ríkislögreglustjóra og
Landhelgis gæsluna er að ræða.
Æfð verða viðbrögð við bruna
um borð í hvalaskoðunarskipi
og markmið æfingarinnar eru
einkum að prófa nýja viðbragðs-
áætlun.
Fjarskiptamál verða könnuð
sérstaklega ásamt flæði þolenda
frá slysstað á sjúkrahús. Eins
hvort viðbragðsaðilar í umdæmi
lögreglunnar á Húsavík hafi
nægar bjargir til að takast á við
hópslys á sjó. - shá
Slys við hvalaskoðun sviðsett:
Æfa viðbrögð
við slysi á sjó
HÚSAVÍK Æfingin hverfist um slys á
hvalaskoðunarskipi.
NORDICPHOTOS/GETTYIMAGES
Spennugolf 2012 verður á Haukadalsvelli Geysi
föstudaginn 15. júní nk.
Athugið að hámarksfjöldi er 48 þátttakendur. Verð er kr. 5.000.-
Rúta fer frá RSÍ á Stórhöfða stundvíslega kl. 12:15
Skráning hófst 1. júní og lýkur 13. júní kl. 16.
Þátttakendur vinsamlega skráið nafn, kennitölu, GSM, grunnforgjöf og hvort
komið verði með rútunni. Sendið á: stefan@rafis.is eða í síma 580-5253
DÓMSMÁL Farið er fram á 16 ára fangelsis-
dóm yfir Guðgeiri Guðmundssyni, sem
særði framkvæmdastjóra Lagastoða lífs-
hættulega í mars síðastliðnum.
Sigríður J. Friðjónsdóttir ríkissak sóknari
sagði í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær að
ótrúlegt væri að fórnarlambið, Skúli E.
Sigurz, hefði lifað árásina af. Guðgeir er
ákærður fyrir tilraun til manndráps.
Sakborningurinn gaf skýrslu fyrir dómi
í gær þar sem hann tók fulla ábyrgð á
árásinni og játaði á sig verknaðinn. Hann
sagðist hafa verið mjög þunglyndur og vart
sofið í tvær vikur í aðdraganda atviksins.
Fram kemur á fréttavef Vísis að þegar
Guðgeir var spurður um eftirsjá varðandi
atvikið sagðist hann sjá eftir að hafa keypt
mótorhjól sem kom honum upprunalega
í skuldavandræði. Einnig að hafa skrifað
undir lánið og hitt Skúla. Þá sagðist hann
sjá eftir því að hafa ekki eytt meiri tíma í
tölvuleiknum World of Warcraft.
Skúli bar einnig vitni fyrir Héraðsdómi
í gær. Hann sagðist strax hafa séð að ekki
væri allt með felldu hjá Guðgeiri þegar
hann kom á stofuna til hans.
Skúli er með skerta hreyfigetu í hendi
eftir árásina og gat fyrst byrjað að ganga
fyrir um mánuði, tveimur mánuðum eftir
árásina. Spurður út í andlegar afleiðingar
eftir árásina svaraði hann: „Ég er ekki með
martraðir, en ég hugsa mikið um þetta.“ - sv
Guðgeir Guðmundsson sagðist taka alla ábyrgð á hnífaárásinni á Lagastoðum í Héraðsdómi Reykjavíkur:
Saksóknari vill Guðgeir í 16 ára fangelsi
DREGINN FYRIR DÓM Guðgeir sagðist sjá eftir því að
hafa ekki eytt meiri tíma í að spila tölvuleikinn World of
Warcraft. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
SpKef mun kosta ríkið
á þriðja tug milljarða
SpKef mun kosta ríkissjóð 19,2 milljarða króna. Til viðbótar mun ríkið þurfa að
greiða hátt í tug milljarða í vexti vegna skuldabréfs sem það gefur út. Fjármála-
ráðherra segist hafa gert ráð fyrir því að ríkið myndi greiða um 20 milljarða.
RÁÐHERRA Oddný Harðar-
dóttir segir það vonbrigði
hversu mikið ríkið þurfi
að borga með SpKef.
Ráðuneyti hennar hafi
þó gert ráð fyrir því
að niðurstaðan
yrði svipuð þeirri
sem nefndin
komst að.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans, segir bankann verða að skoða
áhrif niðurstöðunnar á bókfært virði eigna hans. „Við færðum ákveðna fjárhæð,
29-30 milljarða, á biðreikning vegna þess sem var áætluð áhætta okkar. Svo
höfum við ekki hreyft málið síðan. Nú liggur niðurstaðan fyrir og það sem við
munum gera er að við munum fara ítarlega yfir eignasafnið okkar.“
Spurður hvort bankinn geti þurft að bera kostnaðinn vegna þess munar sem
var á mati hans á eignum SpKef og niðurstöðu nefndarinnar, en þar munar
11,4 milljörðum króna, segir Steinþór það ekki endilega þurfa að vera. Aðrir liðir
á eignarhlið bankans gætu hækkað samhliða. „Það getur síðan vel verið að við
munum komast að þeirri niðurstöðu að við séum ekki sammála nefndinni. Þá
gæti það kallað á gjaldfærslu í rekstrarreikningi eða einhvers konar eiginfjár-
leiðréttingu.“ Hann segir að niðurstaða yfirferðar bankans muni liggja fyrir áður
en hann birtir hálfsársuppgjör í ágúst.
Landsbankinn gæti þurft að gjaldfæra
DANMÖRK Blaðamaður varð fyrir
líkamsárás í Kristjaníu í Kaup-
mannahöfn í fyrradag. Blaðamað-
urinn var að taka ljósmyndir en
slíkt er illa séð af sölumönnum í
fríríkinu. Maðurinn var barinn,
afklæddur og myndavélin tekin af
honum. Hann náði að forða sér alls-
nakinn.
Áður hefur verið greint frá því
að Kaupmannahafnarlög reglan
hefur gefist upp á löggæslu í Krist-
janíu. Aðgerðir þar þykja svo
mannfrekar að lögreglan hefur
ekki ráðist í neina slíka síðan í
ágúst á síðasta ári.
Ástandið í hasssölunni er talið
af svipaðri stærðargráðu og árið
2004, en þá skar lögreglan upp
herör gegn hasssölu á staðnum.
- ktg
Ráðist á blaðamann:
Flúði nakinn
frá Kristjaníu
JAPAN, AP Yoshihiko Noda, for-
sætisráðherra Japans, segir
nauðsynlegt að endurræsa tvo af
50 kjarnorku-
ofnum landsins
til þess að efna-
hagur landsins
og landsmanna
fari ekki á hlið-
ina.
„Japanskt
þjóðfélag getur
ekki lifað af ef
við stöðvum
alla kjarnaofna
eða höfum þá áfram í biðstöðu,“
segir Noda.
Eftir náttúruhamfarirnar
í mars á síðasta ári, þegar
kjarnorkuverið í Fukushima
varð fyrir miklum skemmdum,
lokuðu Japanir öllum kjarna-
ofnum landsins og hafa síðan
farið sérstaklega yfir öryggis-
mál í þeim öllum. - gb
Forsætisráðherra Japans:
Vill endurræsa
tvo kjarnaofna
YOSHIHIKO NODA
Samningur tryggir aðstoð
Slysavarnafélagið Landsbjörg, Rarik,
Landsnet og Landsvirkjun hafa gert
með sér þriggja ára samning með það
að markmiði að tryggja aðstoð Lands-
bjargar við fyrirtækin í vá og við önnur
tilvik eða atburði þar sem aðstoðar
kynni að vera óskað. Þá á Björgunar-
skóli Landsbjargar að veita starfs-
mönnum fyrirtækjanna aðgang að
fræðslu samkvæmt námskrá skólans
auk þess að halda sérnámskeið.
SLYSAVARNIR
Finnst þér viðhaldi á vegum á
Íslandi ábótavant?
JÁ 91,1%
NEI 8,9%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Telur þú mikil tækifæri felast í
vinnslu olíu á Drekasvæðinu?
Segðu þína skoðun á visir.is
KJÖRKASSINN