Fréttablaðið - 09.06.2012, Side 24
9. júní 2012 LAUGARDAGUR24
Þráir þú dýpri svefn? Heilsurúm í sérflokki
*3,5% lántökugjald.
12
mánaða
vaxtalaus
k jör
D Ý N U R O G K O D D A R
Tilboðsdagar í júní!
Nú er bjart
Öllum rúmum fylgir
®
svefngríma
Tempur® Cloud
heilsurúm 180 x 200 cm
TILBOÐ 375.840,-
Verð áður 469.800,-
20%
afsláttur
Herdís Þorgeirsdóttir
Ólafur Ragnar
Grímsson
Þóra Arnórsdóttir
Fjarvistarsönnun
Forseti Íslands er þjóðkjörinn og það
hefur í huga þjóðarinnar þýtt að þá
stöðu skipaði grandvar einstaklingur
enda hefur þjóðin lengst af borið
virðingu fyrir þessu embætti. Vegna
gagnrýni í viðauka við rannsóknar-
skýrslu Alþingis á það hvernig sitjandi
forseti beitti sér í þágu útrásarinnar
hefur verið kallað eftir siðareglum
um embættið. Í kjölfar hrunsins er
mörgum ljóst að sterk peningaöfl eru
í aðstöðu til að hafa áhrif á það hver
er kjörinn forseti. Það er alþjóðlega
viðurkennt vandamál að peningaöfl eru
að ná tökum á „lýðræðinu“ í gegnum
áhrif sín í fjölmiðlum. Siðareglur um
samskipti forseta við viðskiptalífið eru
„fjarvistarsönnun“ frá þeim veruleika
en þær út af fyrir sig breyta honum
ekki. Hvað varðar síðari spurninguna
er sjálfsagt að forseti Íslands tali máli
atvinnulífsins þannig að þjóni hags-
munum þjóðarinnar og sæmi virðingu
embættisins.
Lýðræðið er grund-
vallarreglan
Varðandi heimild forseta að vísa
málum í þjóðaratkvæði mótast
afstaða mín af því að stjórnarskrána
beri að skýra út frá lýðræðinu sem
er grundvallarregla. Ef um mikilvæg,
umdeild mál er að ræða þar sem
ákvörðun er jafnvel óafturkræf verður
að líta til þess að frumuppspretta
ríkisvaldsins er sjálfsákvörðunarréttur
þjóðarinnar. Í ljósi þess að nú liggja
fyrir tillögur um breytingar á stjórnar-
skrá má geta þess að forseti hefur
samkvæmt 26. gr. rétt til að skjóta
frambúðargildi stjórnskipunarlaga
undir þjóðardóm þótt frumvarpið
hafi verið samþykkt í almennum
kosningum milli þinga sem hafa
málið til meðferðar. Málskotsrétturinn
krefst þess að sá forseti Íslands búi
yfir góðri dómgreind, þekkingu,
innsæi og ábyrgð og hafi burði til að
beita þessum rétti ef þörf krefur.
Hagsmuni þjóðar-
innar að leiðarljósi
Forseti Íslands er talsmaður þjóðar-
innar og því eru það hagsmunir
hennar sem hann hefur að leiðarljósi
í afstöðu sinni. Á alþjóðavettvangi
gætir forseti að virðingu þjóðarinnar
og íslenska ríkisins, hagsmunum
þjóðarinnar og ábyrgð okkar í samfé-
lagi þjóðanna. Hagsmunum þjóðar-
innar er best borgið ef að málsvarar
hennar tali einum rómi út á við. Það
er þó ekki útilokað að aðstæður
gætu verið þess eðlis að forseti teldi
sig knúinn til að tala máli þjóðarinnar
vegna þess að hags munum hennar
væri ógnað og stór hluti þjóðarinnar
væri þeirrar skoðunar sjálfur. Það er
sannfæring mín að forseti sem talar
fyrir grundvallargildum mannréttinda,
lýðræðis og réttarríkis geti ekki farið
gegn stefnu stjórnvalda nema þau
séu komin af leið.
Skal reyna að skýra
heildarmyndina
Sé embætti forseta Íslands skipað
einstaklingi sem hefur þekkingu,
innsæi, burði og dómgreind og
hefur hag þjóðarinnar eingöngu að
leiðarljósi er ekki útilokað að hann
komi að umræðu um stór pólitísk
deilumál. Hvernig getur hann verið
málsvari þjóðarinnar ef hann tekur
ekki afstöðu? Það verður hins vegar
að vera öllum ljóst að hann er
engum hagsmunum háður öðrum en
þjóðarinnar þegar hann talar. Enda
á hann að tala af yfirvegun og þekk-
ingu og í þeim tilgangi að reyna að
skýra heildarmyndina.
Aðalatriði að
gagnsæi ríki
Líkt og öllum þjóðhöfðingjum Evrópu
ber forseta Íslands að styrkja atvinnu-
líf, nýsköpun, fræði og menningu
og að stuðla að framför landsins og
tækifærum ungrar kynslóðar. Það
þarf að gera í samræmi við kröfur
hvers tíma og þannig að þátttaka í
slíkum verkum sé öllum opin og jafn-
ræðis gætt. Aðalatriðið er að gagnsæi
ríki um slík verk líkt og gert hefur
verið í áraraðir með upplýsingum
á heimasíðu forsetaembættisins
Forseti.is.
Lýðræðislegur réttur
þjóðarinnar
Það er lýðræðislegur réttur þjóðar-
innar samkvæmt stjórnarskránni að
fá í sínar hendur stórmál ef hún er
ósátt við niðurstöður Alþingis. Mál-
skotsrétturinn er trygging þjóðarinnar
fyrir slíkum rétti og hún mótar því
sjálf þær aðstæður og röksemdir sem
mestu skipta.
Samhljómur er æski-
legur
Eins og ég hef ítrekað hvað eftir
annað er æskilegast að samhljómur
ríki milli forseta og ríkisstjórnar á
þeim vettvangi. Þó geta komið á
dagskrá stór mál þar sem forseti
telur nauðsynlegt að fylgja fram-
sýnum áherslum. Það gerði Ásgeir
Ásgeirsson 1956-1958. Það gerði ég
í Icesave-málinu. Forseti getur líka
tekið frumkvæði í utanríkismálum
eins og ég hef gert í rúm 10 ár í mál-
efnum Norðurslóða. Á undanförnum
misserum hafa bæði ríkisstjórn og
Alþingi mótað sína stefnu í samræmi
við þær áherslur. Það er fagnaðarefni.
Eðlilegt að forseti
tjái hug sinn
Þótt forseti taki ekki þátt í daglegum
umræðum eða átökum á vettvangi
Alþingis og stjórnmála geta verið sett
á dagskrá einstæð stórmál, líkt og
breytingar á stjórnskipun lýðveldisins
og aðild að Evrópusambandinu og
eðlilegt að forseti tjái þjóðinni hug
sinn í slíkum málum sem haft geta
afgerandi áhrif á framtíð Íslendinga í
áratugi og jafnvel aldir.
Rammi um sam-
skiptin mikilvægur
Forsetinn á að bera hróður lands
og þjóðar sem víðast, án þess þó
að fleipra eða draga upp einhverja
glansmynd. Honum ber að kynna
íslenskt atvinnulíf, félagasamtök
og menningu erlendis. En það er
mikilvægt að setja ramma utan um
þessi samskipti svo allir viti hvar þeir
standa.
Málskotsrétt skal
nota í ýtrustu neyð
Völdin sem felast í 26. greininni eru
auðvitað umtalsverð. Þetta vald
má þó ekki umgangast af neinni
léttúð. Í þingræðisríki er það vald
sem ekki verður beitt nema í ýtrustu
neyð. Ég tel að það myndi verða
til bóta ef einhvers konar lög um
þjóðaratkvæðagreiðslur yrðu sam-
þykkt og stjórnarskránni breytt til
samræmis þar sem þörf krefur.
Tali einni röddu á
alþjóðavettvangi
Nei, ég tel það ekki eðlilegt. Við
Íslendingar eigum helst að tala
einni röddu á alþjóðavettvangi þegar
kemur að hagsmunum lands og
þjóðar. Þess eru mörg dæmi í sög-
unni að forsetinn væri ekki sammála
ríkisstjórn en fyrri forsetar, þ.e. þeir
sem komu á undan þeim sem nú
situr, gagnrýndu aldrei stefnu ríkis-
stjórnar opinberlega.
Forsetinn sameini en
sundri ekki
Nei, ég tel að forsetinn eigi að
vera til sameiningar í landinu, ekki
til að sundra. Forsetaembættið
væri á rangri leið ef það tæki þátt
í pólitískum deilumálum á borð
við aðild að Evrópusambandinu,
virkjun Kárahnjúka eða kjör öryrkja
svo örfá umdeild mál séu nefnd.
Hvað aðildarumsóknina varðar þá er
það alveg skýrt að þjóðin mun hafa
lokaorðið í hreinni og beinni þjóðar-
atkvæðagreiðslu.