Fréttablaðið - 09.06.2012, Side 33
Kvennafar og brennivín heyra sög-unni til á Landsmóti hestamanna og undantekning ef vín sést á
fólki. Hestamenn eru þó ekki öðruvísi en
annað fólk og eðlilega stungið úr einum
og einum bjór þegar þeir koma saman
á góðri stund. Fyrst og fremst eru þeir
meðvitaðir um að Landsmótið er fjöl-
skylduviðburður og íþróttamót,“ segir
Haraldur Örn Gunnarsson, framkvæmda-
stjóri Landsmóts hestamanna, sem
haldið verður með glæsibrag í Víðidal í
Reykjavík 25. júní til 1. júlí.
Landsmót hestamanna var síðast
haldið í höfuðstaðnum fyrir tólf árum.
„Töfrar Landsmóts felast vitaskuld í
hestunum hvað okkur hestamenn varðar
því Landsmótið hverfist um íslenska
hestinn. Hins vegar er það dýrðin ein að
upplifa stemninguna og sumarkvöldin í
brekkunni, innan um alsæla hestamenn,
einstaka gæðinga og landsins bestu
skemmtikrafta. Mótið er því eins og jólin
hjá okkur hestamönnum,“ segir Haraldur
og líkir Landsmótinu við himnaríki á jörð.
Á Landsmót hestamanna vinna sér rétt
þúsund keppnishestar, hvort sem það
eru ræktunarhestar eða hross í gæðinga-
keppni.
„Ég hvet alla til að svala forvitninni og
koma í Víðidalinn til að sjá þann mikla
mannlífsviðburð og ævintýri sem lands-
mótið er. Landsmótið er langt í frá einka-
samkoma hestamanna og því einstakt
tækifæri fyrir aðra, svona steinsnar frá
miðborginni, að sjá hvers kyns skemmt-
un og veisla það er fyrir öll skilningarvit,“
segir Haraldur.
En hvað um gesti sem verða hræddir
nærri jafn stórum og öflugum skepnum
og hestar eru?
„Það er ekkert að óttast. Íslenski
hesturinn er með einstakt geðslag og öll
hross á mótinu skotheldir gæðingar. Það
gildir þó hið sama og um aðrar skepnur
að þær þarf að umgangast með virðingu
og passlegum gassagangi. Hestar eru
greindar og skynugar skepnur og miklir
persónuleikar. Maður lærir því margt um
sjálfan sig í umgengni við hesta,“ svarar
Haraldur.
■ thordis@frettabladid.is
EKKI DÝRT SPORT
Haraldur segir
hestamennsku ekki
dýrari en margt annað
sport. Hægt sé að fá
góða hesta á góðu
verði og góð, notuð
reiðtygi. Þá sé alls ekki
nauðsyn að eiga hesthús
því hægt sé að leigja
bása í hesthúsum fyrir
sanngjarnt fé.
MYND/ANTON
HIMNARÍKI Á JÖRÐ
HESTAJÓL Í VÍÐIDAL Senn breytist Víðidalur Reykvíkinga í töfraland hesta og
manna. Þá gefst tækifæri til að upplifa ævintýri Landsmóts hestamanna í návígi.
ÆVINTÝRI
Landsmót hesta-
manna verður
haldið í Víðidal í
Reykjavík,
dagana 25. júní til
1. júlí.
Lín Design Laugavegi 176 Sími 5332220
BLÓMADAGUR Á SKÓLAVÖRÐUSTÍG
Blómadagur Skólavörðustígsins verður haldinn hátíðlegur í dag.
Gatan er blómum skrýdd en íbúar og verslunareigendur hafa
fengið afhent blóm til að skreyta götuna. Hjá Eggert feldskera
verður „opinn hljóðnemi“, tónlistaratriði verða hjá gullsmiðnum
Ófeigi og börn munu færa vegfarendum blóm og ávexti.
Hrífandi náttúra, einstök menning og
fjölbreytt dýralíf sem eiga varla sinn
líkan, ævintýraleg upplifun í einstöku
umhverfi. Við förum m.a. í Safariferð
á jeppum og skoðun villt dýr í sínu
náttúrurlega umhverfi. Sri lanka er
eyjan sem Sinbað sæfari og Marco
Polo heimsóttu á ferðum sínum. Við
kynnumst framandi og heillandi heimi
sem tekur á móti ferðalöngum með
opnum örmum.