Fréttablaðið - 09.06.2012, Blaðsíða 34
FÓLK|HELGIN
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ
sem býður auglýsendum að kynna
vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs-
ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar
Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Sölumenn:
Jónína María Hafsteinsdóttir
jmh@365.is s.: 512 5473
Sverrir Birgir Sverrisson
sverrirbs@365.is, s.: 512 5432
Elsa Jensdóttir
elsaj@365.is s.: 512-5427 Tónlistarhátíðin Podium er haldin nú um helgina í Selinu á Stokka-læk. Hátíðin er haldin að norskri
fyrirmynd en íslenskir stjórnendur
hennar eru Ingibjörg Guðný Friðriks-
dóttir, Þorgerður Edda Hall og Eygló
Dóra Davíðsdóttir. Hingað til lands
er komið ungt tónlistarfólk frá fimm
löndum sem auk íslenskra kollega sinna
koma fram á fjölbreyttum tónleikum á
hátíðinni. Þetta er í annað sinn sem hún
er haldin á Íslandi en markmiðið með
hátíðinni er að brjóta upp klassíska
tónleikaformið og flytja kammertónlist
á nýjan hátt með ungu fólki.
FJÖRKÁLFUR OG HREKKJUSVÍN
Ingibjörg Guðný, einn af stjórnendum
hátíðarinnar, hefur ásamt Önnu Marsi-
bil Clausen samið nýtt barnatónverk
sem þær kalla Fjörkálf. Ingibjörg, sem er
í tónsmíðanámi í Listaháskóla Íslands,
semur tónlistina en Anna Marsibil skrif-
ar söguna. Verkið fjallar um kálfinn Fjör-
kálf sem býr á bóndabæ og dansar um
nætur við norðurljósin, sem eru vinir
hans. Á bænum býr einnig hrekkjusvín,
sem gerir Fjörkálfi lífið leitt.
Sögumaður segir söguna en tón-
listin er flutt af átta hljóðfæraleikurum
og rafhljóðum úr tölvu. Börnin sitja á
púðum í miðju rýminu en hljóðfæra-
leikararnir og sögumaðurinn hreyfa
sig í kringum þau og brjóta þannig
upp hefðbundið tónleikaform til að ná
áhuga barnanna.
PÉTUR OG ÚLFURINN
KVEIKTU HUGMYNDINA
Ingibjörg tók þátt í hátíðinni í fyrra og
meðal dagskrárliða var Pétur og úlfurinn
eftir Prokofieff. „Það voru mjög vinsælir
tónleikar og þá fékk ég þá hugmynd að
skrifa tónlist fyrir næstu hátíð og bað
Önnu Marsý að skrifa söguna.“ Ingi-
björg segir verkið henta öllum aldurs-
hópum þótt sagan sé skrifuð fyrir börn.
Verkið verður frumflutt á sunnudag-
inn en ekki er víst hvenær áhorfendur
fá kost á að njóta þess á ný vegna
umfangs þess. „Þetta er dálítið batt-
erí og ekki auðvelt í flutningi því þetta
er fyrir svo marga hljóðfæraleikara og
hringóma hljóðkerfi,“ segir Ingibjörg og
hvetur því sem flesta til að skella sér á
Stokkalæk til að njóta flutningsins. Fyrir
þá sem ekki þekkja til er Stokkalækur á
Rangárvöllum, í um 18 km fjarlægð frá
Hellu. ■ halla@365.is
FYRIR FJÖRKÁLFA
FJÖRKÁLFUR ER NÝTT BARNATÓNVERK Ingibjörg Guðný Friðriksdóttir og
Anna Marsibil Clausen hafa í sameiningu skapað nýtt tónverk ætlað börnum.
Verkið verður flutt á tónleikunum Fyrir fjörkálfa á Rangárvöllum um helgina.
FRUMFLUTNINGUR Á
SUNNUDAG Ingibjörg
(til vinstri) semur tón-
listina en Anna Marsibil
skrifar söguna.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
MÖRG
HLJÓÐFÆRI
„Þetta er dálítið
batterí og ekki
auðvelt í flutningi
því þetta er fyrir
svo marga hljóð-
færaleikara og
hringóma hljóð-
kerfi.“
Fjölbrautaskóli Snæfellinga
Dreifnám við Fjölbrautaskóla Snæfellinga
á haustönn 2012
Umsóknarfrestur í dreifnám er til 18. júní 2012.
Með dreifnámi er átt við að nemandinn getur stundað fjarnám frá
skólanum auk þess að standa til boða að mæta með dagskóla-
nemendum í kennslustundir.
Þeir sem skráðir eru í dreifnám hafa aðgang að kennurum á MSN allt að
4 klst. á viku.
Öllum tölvupósti er svarað innan sólarhrings 5 daga vikunnar.
Námsmatið byggir að stórum hluta á vinnu nemenda frá viku til viku.
Upplýsingar um skólann eru á vefnum www.fsn.is.
Allar frekari upplýsingar fást hjá námsráðgjafa og aðstoðarskólameistara
FSN í síma 430 8400.
Skólameistari FSN
Skipholti 29b • S. 551 0770
ÚTSALA
HAFIN!
Breakbeat
laugardagskvöld kl. 22r skvöld l.