Fréttablaðið - 09.06.2012, Qupperneq 40
9. júní 2012 LAUGARDAGUR4
sími: 511 1144
Laugarneskirkja auglýsir eftir tónlistar-
stjóra í hlutastarf með reynslu af kór-
stjórn, kunnáttu í orgel- og píanóleik
og innsýn í ólíkar tónlistarhefðir.
Umsóknarfrestur er til 15. júní 2012 og viðkomandi
hefði þurft að geta hafið störf í september.
Áhugasamir hafi samband við formann
sóknarnefndar, Egil Heiðar Gíslason, á netfangið
egill@heima.is.
Sóknarnefnd Laugarneskirkju
HAFRANNSÓKNASTOFNUNIN
RITARI / FULLTRÚI FORSTJÓRA
Hafrannsóknastofnunin óskar eftir að ráða ritara/
fulltrúa forstjóra. Auk almennra starfa ritara forstjóra
hefur ritari/fulltrúi umsjón með skjalasafni aðalskrif-
stofu stofnunarinnar.
Leitað er eftir áhugasömum starfsmanni sem getur
unnið sjálfstætt, hefur lokið háskólaprófi og býr yfir
haldgóðri reynslu og góðri kunnáttu í íslensku, ensku
og norðurlandamáli. Umsækjendur þurfa að hafa
góða tölvukunnáttu og nokkra reynslu af skjalavörslu.
Laun samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra og
viðkomandi stéttarfélags.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun aldur og
fyrri störf sendist Hafrannsóknastofnuninni fyrir 25.
júní n.k.
Hafrannsóknastofnunin er stærsta rannsóknastofnun
landsins á sviði haf-og fiskirannsókna og gegnir auk þess
ráðgjafarhlutverki varðandi skynsamlega nýtingu og
verndun auðlinda hafsins. Mikill hluti starfseminnar tengist
alþjóðlegu samstarfi við erlendar hafrannsóknastofnanir
og háskóla. Stofnunin rekur 5 útibú, tilraunaeldisstöð í eldi
sjávarlífvera, tvö rannsóknaskip og hefur að jafnaði 160
starfmenn í þjónustu sinni.
Hafrannsóknastofnunin
Skúlagötu 4, 101 Reykjavík
s: 575 2000
Orkuveita Reykjavíkur rekur stærstu jarðvarmaveitu í heimi. www.or.is
ÍS
LE
N
SK
A
/S
IA
.I
S
/O
R
K
6
00
55
0
6/
12
Forstöðumaður
Upplýsingatækni
www.capacent.is.
Umsóknarfrestur er til 24. júní og farið
verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Einstaklingar af báðum kynjum eru hvattir til að sækja um starfið.
TÓNLISTARSKÓLI
REYKJANESBÆJAR
Fræðslusvið
Tónlistarskóli Reykjanesbæjar auglýsir eftir kennurum í
eftirtaldar kennslugreinar.
Um er að ræða hlutastörf:
Forskóli.
Starfssvið: Tónlistarkennsla nemenda í 1. og 2. bekk
grunnskóla. Um er að ræða hópkennslu. Starfið felur í sér
samstarf við deildarstjóra og kennara Forskóladeildar
Tónlistarskólans auk skólastjórnenda. Einnig er um að ræða
samstarf við viðkomandi grunnskóla.
Menntunar- og hæfniskröfur: Umsækjendur þurfa að vera
reglusamir, hafa góða tónlistarmenntun, hafa áhuga á
kennslu ungra tónlistarnemenda og búa yfir skipulagshæfni,
jákvæðni og samstarfshæfileikum.
Saxófónn. Kennsla nemenda á öllum aldri. Kennt er í
einkatímum. Starfið felur í sér samstarf við deildastjóra í
blásara- og rytmadeildum auk skólastjórnenda og kennara
Tónlistarskólans.
Menntunar- og hæfniskröfur: Umsækjendur þurfa að vera
reglusamir, hafa góða menntun í saxófónleik, hafa áhuga á
kennslu og búa yfir skipulagshæfni, jákvæðni og samstarfs-
hæfileikum.
Laun skv. kjarasamningi LN og FT/FÍH
Sækja skal um starfið á vef Reykjanesbæjar
http://www.reykjanesbaer.is/stjornkerfi/laus-storf
Umsóknarfrestur er til 26. júní. Eingöngu er tekið á móti
rafrænum umsóknum.
Nánari upplýsingar gefur Haraldur Árni Haraldsson
skólastjóri á póstfangið
haraldur.a.haraldsson@reykjanesbaer.is
Helstu verkefni
· Launavinnsla
· Upplýsingagjöf varðandi kjaratengd mál
· Umsjón með og úrvinnsla úr starfsmannakerfum
· Þjónusta við stjórnendur og starfsfólk ÁTVR
· Ýmis verkefni á sviði mannauðsmála
Hæfniskröfur
· Reynsla af launavinnslu nauðsynleg
· Menntun sem nýtist í starfi
· Þekking á kjarasamningum
· Hæfni í mannlegum samskiptum
· Þjónustulipurð og sveigjanleiki
· Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
· Nákvæmni í vinnubrögðum
· Góð tölvukunnátta, þ.m.t. excel
· Reynsla af Oracle launakerfi og Vinnustund er kostur
Stefna ÁTVR er að vera framúrskarandi þjónustufyrirtæki og þekkt fyrir samfélagslega
ábyrgð. Fyrirtækið vill að vinnustaðurinn sé lifandi og skemmtilegur þar sem þjónusta
og samskipti einkennast af lipurð, þekkingu og ábyrgð.
vinbudin.is
Starfsmaður á mannauðssviði
ÁTVR óskar eftir starfsmanni í launavinnslu og önnur verkefni á mannauðssviði.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Gildi ÁTVR eru LIPURÐ - ÞEKKING - ÁBYRGÐ.
Ráðningar í stöður hjá fyrirtækinu munu taka
mið af þessum gildum.
Nánari upplýsingar veita:
Elísabet Sverrisdóttir,
elisabet@hagvangur.is
Kristín Guðmundsdóttir,
kristin@hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og með 24. júní nk.
Umsóknir óskast fylltar út á www.vinbudin.is