Fréttablaðið - 09.06.2012, Page 46

Fréttablaðið - 09.06.2012, Page 46
9. júní 2012 LAUGARDAGUR10 sími: 511 1144 ERUM VIÐ AÐ LEITA AÐ ÞÉR? ÓSKUM EFTIR HRESSUM OG DUGLEGUM STARFSMANNI Í SUMARAFLEYSINGAR Starfið felur í sér eldamennsku, pantanir á vörum, afgreiðslu, frágang og annað sem til fellur. Hægt er að sækja um starfið með því að senda inn umsókn á www.byko.is. Nánari upplýsingar veitir Guðríður H. Baldursdóttir, gudridur@norvik.is. KAFFIHORNIÐ Í BYKO BREIDD Framkvæmdastjóri Barnaheill – Save the Children á Íslandi óska eftir að ráða framkvæmdastjóra Framkvæmdastjóri starfar í umboði stjórnar og ber ábyrgð á daglegum rekstri samtakanna. Starfið felur í sér samstarf við stjórnvöld, fyrirtæki og stofnanir hér á landi auk mikilla samskipta við erlenda samstarfsaðila. Leitað er eftir líflegum og kraftmiklum einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á réttindamálum barna og vill stuðla að samfélagi sem hefur barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna að leiðarljósi. Helstu verkefni framkvæmdastjóra: • Viðhald og efling samskipta við aðila innanlands sem utan • Gerð fjárhags-, rekstrar- og verkefnaáætlana og eftirlit með þeim • Samningagerð í samráði við stjórn samtakanna • Yfirumsjón með markaðs- og kynningarmálum • Yfirumsjón með bókhaldi og gerð fjárhagsuppgjöra • Starfsmannahald, ráðningar, laun, símenntun o.fl. Menntun og hæfniskröfur: • Háskólamenntun • Reynsla á sviði rekstrar, stjórnunar og fjáröflunar • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum • Hæfni til að byggja upp öfluga liðsheild sem nær árangri • Geta til að fjalla um málefni félagsins af öryggi • Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð og frumkvæði í athöfnum • Fullkomið vald á íslensku og ensku, tal- og ritmáli Umsókn ásamt ferilskrá á íslensku og ensku berist til auglýsinga- deilda Morgunblaðsins/Fréttablaðsins fyrir 25. júní nk. eða sendist á box@mbl.is eða box@frett.is merkt 25015. Upplýsingar veitir Kolbrún Baldursdóttir, formaður stjórnar Barnaheilla – Save the Children á Íslandi, netfang: kolbrunbald@simnet.is Barnaheill - Save the Children á Íslandi eru frjáls félagasamtök sem stofnuð voru á degi Sameinuðu þjóðanna, 24. október árið 1989. Frá stofnun hefur verið lögð áhersla á starf innanlands en samtökin eiga einnig aðild að Save the Children. Að þeim standa 29 landsfélög sem starfa í 120 löndum. Sýn Barnaheilla – Save the Children er heimur þar sem réttur sérhvers barns til lífs, verndar, þroska og þátttöku er virtur. Markmið samtakanna er að vekja heiminn til vitundar um stöðu barna og ná fram tafarlausum og ævarandi breytingum í lífi þeirra. Heimasíða samtakanna á Íslandi er www.barnaheill.is. Við Iðnskólann í Hafnarfirði er laust til umsóknar 75% starf bókasafns- og upplýsingafræðings: Ráðið er í starfið frá 1. ágúst 2012. Launakjör fara eftir kjarasamningi bókasafnsfræðinga og stofnana- samningi IH. Umsækjandi þarf að hafa háskólapróf í bókasafns- og upplýsingafræðum. Góð samskipta- og skipulagshæfni er mikilvæg ásamt áhuga á að starfa í öflugu skólasamfélagi. Umsóknarfrestur er til 23. júní. Ekki þarf að sækja um á sérstöku umsóknareyðublaði en umsókn þarf að fylgja afrit af prófskírteini auk yfirlits um menntun og fyrri störf. Umsóknir skal senda til skólameistara á netfangið: arsaell@idnskolinn.is Öllum umsóknum verður svarað skriflega þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Vakin er athygli umsækjanda á að samkvæmt lögum um framhaldsskóla nr. 92 frá 208 er ekki heimilt að ráða einstakling til starfa sem hlotið hefur dóm fyrir brot á XXII. kafla almenna hegningarlaga og því er beðið um sakavottorð áður en að ráðningu getur orðið. Upplýsingar um skólann eru á heimasíðu www.idn- skolinn.is. Frekari upplýsingar um starfið veitir skóla- meistari, Ársæll Guðmundsson, arsaell@idnskolinn.is. Símanúmer 585 3600. Skólameistari Norræna húsið leitar að öflugum verkefnastjóra Helstu viðfangsefni: • Veita almenna þjónustu við viðskiptavini Norræna hússins • Verkefnastjórnun ýmissa verkefna • Þátttaka í og frumkvæði að viðburðum Norræna hússins • Vinna í teymi verkefnastjóra að ýmsum verkefnum • Leysa af í móttöku Norræna hússins • Ýmis verkefni sem forstjóri telur nauðsynleg hverju sinni Vilt þú vinna í frjóu og metnaðarsömu umhverfi? Hæfniskröfur: Leitað er að hugmyndaríkum og orkumiklum einstaklingi sem kann að hugsa út fyrir kassann og hefur brennandi áhuga á listum og menningu. Viðkomandi má gjarnan hafa góða almenna menntun. Æskilegt er að viðkomandi búi yfir hæfni og reynslu í að leiðbeina og stýra verkefnum og góðri kunnáttu í a.m.k. einu norðurlandamálanna, ensku auk íslensku og færni til að tjá sig á þessum málum í ræðu og riti. Þeir persónuþættir sem koma að notum eru rík þjónustulund, frumkvæði, metnaður og góðir skipulags- og samskiptahæfileikar. Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um starfið. Við bjóðum áhugavert starf í krefjandi og frjóu norrænu og alþjóðlegu umhverfi í Vatnsmýrinni. Norræna húsið er leiðandi afl í íslensku menningarlífi og er húsið eitt af meistaraverkum Alvars Aalto. Umsjón með ráðningu hefur Þórunn Ragnarsdóttir fjármálastjóri og veitir hún upplýsingar um starfið. Umsóknarfrestur er til og með 24.júní 2012. Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir um að sækja um með því að senda póst á netfangið thorunn@nordice.is. Með umsókninni þarf að fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Gott væri ef umsókn og fylgigögn væru á dönsku, norsku, sænsku eða ensku. Ráðið er í starf verkefnastjóra til fjögurra ára með möguleika á framlengingu ráðningarsamnings í fjögur ár í viðbót skv. regluverki Norrænu ráðherranefndarinnar. Nánari upplýsingar um starfið er að finna á heimasíðu Norræna hússins www.norraenahusid.is. Sturlugata 5 101 Reykjavík Tel. 5517030 www.norraenahusid.is facebook.com/norraenahusid

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.