Fréttablaðið - 09.06.2012, Síða 46
9. júní 2012 LAUGARDAGUR10
sími: 511 1144
ERUM VIÐ AÐ LEITA AÐ ÞÉR?
ÓSKUM EFTIR HRESSUM OG DUGLEGUM
STARFSMANNI Í SUMARAFLEYSINGAR
Starfið felur í sér eldamennsku, pantanir á vörum, afgreiðslu, frágang og annað sem til fellur.
Hægt er að sækja um starfið með því að senda inn umsókn á www.byko.is.
Nánari upplýsingar veitir Guðríður H. Baldursdóttir, gudridur@norvik.is.
KAFFIHORNIÐ Í BYKO BREIDD
Framkvæmdastjóri
Barnaheill – Save the Children á Íslandi óska eftir að ráða
framkvæmdastjóra
Framkvæmdastjóri starfar í umboði stjórnar og ber ábyrgð á
daglegum rekstri samtakanna. Starfið felur í sér samstarf
við stjórnvöld, fyrirtæki og stofnanir hér á landi auk mikilla
samskipta við erlenda samstarfsaðila. Leitað er eftir líflegum
og kraftmiklum einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á
réttindamálum barna og vill stuðla að samfélagi sem hefur
barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna að leiðarljósi.
Helstu verkefni framkvæmdastjóra:
• Viðhald og efling samskipta við aðila innanlands sem utan
• Gerð fjárhags-, rekstrar- og verkefnaáætlana og eftirlit
með þeim
• Samningagerð í samráði við stjórn samtakanna
• Yfirumsjón með markaðs- og kynningarmálum
• Yfirumsjón með bókhaldi og gerð fjárhagsuppgjöra
• Starfsmannahald, ráðningar, laun, símenntun o.fl.
Menntun og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun
• Reynsla á sviði rekstrar, stjórnunar og fjáröflunar
• Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
• Hæfni til að byggja upp öfluga liðsheild sem nær árangri
• Geta til að fjalla um málefni félagsins af öryggi
• Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð og frumkvæði í athöfnum
• Fullkomið vald á íslensku og ensku, tal- og ritmáli
Umsókn ásamt ferilskrá á íslensku og ensku berist til auglýsinga-
deilda Morgunblaðsins/Fréttablaðsins fyrir 25. júní nk. eða
sendist á box@mbl.is eða box@frett.is merkt 25015.
Upplýsingar veitir Kolbrún Baldursdóttir, formaður stjórnar
Barnaheilla – Save the Children á Íslandi, netfang:
kolbrunbald@simnet.is
Barnaheill - Save the Children á Íslandi eru frjáls félagasamtök sem stofnuð voru
á degi Sameinuðu þjóðanna, 24. október árið 1989. Frá stofnun hefur verið lögð
áhersla á starf innanlands en samtökin eiga einnig aðild að Save the Children.
Að þeim standa 29 landsfélög sem starfa í 120 löndum. Sýn Barnaheilla – Save
the Children er heimur þar sem réttur sérhvers barns til lífs, verndar, þroska og
þátttöku er virtur. Markmið samtakanna er að vekja heiminn til vitundar um stöðu
barna og ná fram tafarlausum og ævarandi breytingum í lífi þeirra.
Heimasíða samtakanna á Íslandi er www.barnaheill.is.
Við Iðnskólann í Hafnarfirði er laust til umsóknar
75% starf bókasafns- og upplýsingafræðings:
Ráðið er í starfið frá 1. ágúst 2012. Launakjör fara
eftir kjarasamningi bókasafnsfræðinga og stofnana-
samningi IH. Umsækjandi þarf að hafa háskólapróf í
bókasafns- og upplýsingafræðum. Góð samskipta- og
skipulagshæfni er mikilvæg ásamt áhuga á að starfa í
öflugu skólasamfélagi.
Umsóknarfrestur er til 23. júní. Ekki þarf að sækja um
á sérstöku umsóknareyðublaði en umsókn þarf að
fylgja afrit af prófskírteini auk yfirlits um menntun og
fyrri störf.
Umsóknir skal senda til skólameistara á netfangið:
arsaell@idnskolinn.is
Öllum umsóknum verður svarað skriflega þegar
ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Vakin er
athygli umsækjanda á að samkvæmt lögum um
framhaldsskóla nr. 92 frá 208 er ekki heimilt að ráða
einstakling til starfa sem hlotið hefur dóm fyrir brot á
XXII. kafla almenna hegningarlaga og því er beðið um
sakavottorð áður en að ráðningu getur orðið.
Upplýsingar um skólann eru á heimasíðu www.idn-
skolinn.is. Frekari upplýsingar um starfið veitir skóla-
meistari, Ársæll Guðmundsson, arsaell@idnskolinn.is.
Símanúmer 585 3600.
Skólameistari
Norræna húsið
leitar að öflugum
verkefnastjóra
Helstu viðfangsefni:
• Veita almenna þjónustu við viðskiptavini
Norræna hússins
• Verkefnastjórnun ýmissa verkefna
• Þátttaka í og frumkvæði að viðburðum
Norræna hússins
• Vinna í teymi verkefnastjóra að ýmsum
verkefnum
• Leysa af í móttöku Norræna hússins
• Ýmis verkefni sem forstjóri telur nauðsynleg
hverju sinni
Vilt þú vinna í frjóu og
metnaðarsömu umhverfi?
Hæfniskröfur:
Leitað er að hugmyndaríkum og orkumiklum
einstaklingi sem kann að hugsa út fyrir kassann
og hefur brennandi áhuga á listum og menningu.
Viðkomandi má gjarnan hafa góða almenna
menntun. Æskilegt er að viðkomandi búi yfir
hæfni og reynslu í að leiðbeina og stýra
verkefnum og góðri kunnáttu í a.m.k. einu
norðurlandamálanna, ensku auk íslensku og
færni til að tjá sig á þessum málum í ræðu og riti.
Þeir persónuþættir sem koma að notum eru rík
þjónustulund, frumkvæði, metnaður og góðir
skipulags- og samskiptahæfileikar. Karlar jafnt
sem konur eru hvattir til að sækja um starfið.
Við bjóðum áhugavert starf í krefjandi og frjóu
norrænu og alþjóðlegu umhverfi í Vatnsmýrinni.
Norræna húsið er leiðandi afl í íslensku menningarlífi
og er húsið eitt af meistaraverkum Alvars Aalto.
Umsjón með ráðningu hefur Þórunn Ragnarsdóttir fjármálastjóri og veitir hún upplýsingar um starfið. Umsóknarfrestur
er til og með 24.júní 2012. Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir um að sækja um með því að senda póst á
netfangið thorunn@nordice.is. Með umsókninni þarf að fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er
grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Gott væri ef umsókn og fylgigögn
væru á dönsku, norsku, sænsku eða ensku. Ráðið er í starf verkefnastjóra til fjögurra ára með möguleika á
framlengingu ráðningarsamnings í fjögur ár í viðbót skv. regluverki Norrænu ráðherranefndarinnar. Nánari
upplýsingar um starfið er að finna á heimasíðu Norræna hússins www.norraenahusid.is.
Sturlugata 5 101 Reykjavík Tel. 5517030 www.norraenahusid.is facebook.com/norraenahusid