Fréttablaðið - 09.06.2012, Qupperneq 51
LAUGARDAGUR 9. júní 2012 15
SAMBAND ÍSLENSKRA
SVEITARFÉLAGA
Starf sérfræðings á kjarasviði
Samband íslenskra sveitarfélaga auglýsir laust til umsóknar starf
sérfræðings á kjarasviði sambandsins.
Starf sérfræðingsins felst m.a. í að vera lykilsérfræðingur kjarasviðs
í kjarasamningum kennara, túlkun kjarasamninga og ráðgjöf til
sveitarfélaga. Sérfræðingurinn tekur þátt í kjarasamningagerð, nefndar-
og stjórnarstörfum í tengslum við kjaramál og önnur mál er varða
íslenskan vinnumarkað og sinnir samskiptum við stéttarfélög og aðra
aðila vinnumarkaðarins.
Gerð er krafa um háskólamenntun sem nýtist í starfi og sérþekkingu
á kjarasamningum þeirra aðildarfélaga KÍ sem semja við Samband
íslenskra sveitarfélaga. Einnig góðrar almennrar þekkingar á laga- og
kjarasamningsumhverfi opinbers vinnumarkaðar. Gott vald og færni
í notkun á excel er nauðsynleg og þekking og áhugi á málefnum svei-
tarfélaga. Viðkomandi þarf einnig að hafa hæfileika til þess að miðla
upplýsingum í ræðu og riti og hafa gott vald á ensku og a.m.k. í einu
Norðurlandamáli öðru en íslensku.
Leitað er að einstaklingi, konu eða karli, sem hefur til að bera frum-
kvæði, færni í mannlegum samskiptum, nákvæmni í vinnubrögðum og
hæfni til að vinna sjálfstætt og með öðrum að fjölbreyttum verkefnum.
Nánari upplýsingar veita Inga Rún Ólafsdóttir, sviðsstjóri kjarasviðs,
netfang: inga.run.olafsdottir@samband.is, eða Magnús Karel Hannes-
son, sviðsstjóri og starfsmannastjóri, netfang:
magnus.karel.hannesson@samband.is, í síma 515-4900.
Umsækjendum er bent á að frekari upplýsingar um Samband íslenskra
sveitarfélaga eru á heimasíðunni, www.samband.is. Þar er einnig að
finna starfsmannastefnu sambandsins og starfslýsingu fyrir starfið.
Umsóknir, merktar Umsókn um starf á kjarasviði, berist eigi síðar
en föstudaginn 15. júní 2012 til Sambands íslenskra sveitarfélaga,
Borgartúni 30, pósthólf 8100, 128 Reykjavík eða með tölvupósti á
framangreind netföng.
Samband íslenskra sveitarfélaga er framsækinn vinnustaður sem
býður upp á opið vinnuumhverfi, samheldinn starfsmannahóp og
skapar starfsmönnum gott svigrúm til starfsþróunar.
Þjónustufulltrúi
Póstdreifing leitar að þjónustufulltrúa til starfa á dreif-
ingardeild. Um framtíðarstarf er að ræða.
Í starfinu felst meðal annars:
• Símsvörun og móttaka ábendinga vegna dreifingar
• Úthringikannanir
• Samskipti við blaðbera
• Bréfaflokkun og pökkun á dreifingarefni
• Önnur tilfallandi verkefni
Viðkomandi einstaklingur verður að búa yfir:
• Mikilli þjónustulund
• Góðri almennri tölvuþekkingu
• Jákvæðni og drifkrafti
Vinnutími er 13-18 virka daga og annan hvorn
laugardag frá 7-12. Viðkomandi þarf að hefja
störf fljótlega.
Allar nánari upplýsingar um starfið gefur
Dagný Ragnarsdóttir, deildarstjóri dreifingardeildar
í síma 585 8330.
Umsóknir um menntun og starfsferil skulu berast fyrir
10. júní næstkomandi á netfangið
dagny@postdreifing.is
Póstdreifing er öflugt dreifingarfyrirtæki sem sér meðal annars um dreifingu á
Fréttablaðinu ásamt öðru dreifiefni. Hjá fyrirtækinu starfar samheldinn hópur
einstaklinga með fjölbreytta reynslu og menntun.
Póstdreifing ehf | Suðurhraun 1 | 210 Garðabær | www.postdreifing.is | s: 585 8300
Hreyfimyndasmiðjan Miðstræti óskar eftir að ráða framkvæmdastjóra.
Miðstræti er í Kaaber-húsinu, Sætúni 8, kraftmiklu orkuhúsi á öllum sviðum
markaðs- og kynningarmála.
Starfssvið:
Framkvæmdastjóri stýrir daglegum rekstri, hefur með höndum tilboðsgerð,
sér um samskipti við viðskiptavini og fer fyrir öflugum flokki starfsmanna í
uppbyggingu fyrirtækisins. Viðkomandi þarf að vera tilbúinn að vaxa með
starfinu með sameiginlega hagsmuni viðskiptavina og fyrirtækis að
leiðarljósi. Lifandi þekking og áhugi á myndhreyfilausnum og grafík er
nauðsynleg í starfi.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Viðskiptafræðimenntun æskileg, þekking og reynsla á verkferli í
hreyfimyndavinnslu og eftirvinnslu nauðsynleg sem og þekking á hönnun
og framsetningu kynningarefnis almennt. Góð íslensku- og
enskukunnátta nauðsynleg og þekking á Norðurlandamáli kostur.
Hæfni í mannlegum samskiptum skilyrði.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Þormóður Jónsson í síma 595-3600.
Umsóknarfrestur er til 14. júní. Umsóknir sendist á netfangið
framkvæmdastjóri@midstraeti.is
Miðstræti er hluti af Kaaber-húsinu, lifandi vinnustaður þar sem andi sköpunar og
metnaðar ríkir. Fyrirtækið hefur getið sér gott orð fyrir skemmtilegar og frjóar lausnir í
hreyfimyndagrafík. Miðstræti tilheyrir einnig fullkomið hljóðstúdíó þar sem lokavinnsla á
auglýsingum og hljóðsetning fer fram.
Sætún 8
105 Reykjavík
midstraeti.is
LIFANDI OG
HREYFANLEGUR
FRAMKVÆMDASTJÓRI
ÓSKAST Í MIÐSTRÆTI
www.saft.is
RÆDDU UM ÞÁ
ÁHÆTTU SEM FYLGIR
ÞVÍ AÐ HITTA NETVIN
sími: 511 1144