Fréttablaðið - 09.06.2012, Page 70
9. júní 2012 LAUGARDAGUR34
Krossgáta
Lárétt
1. Kóðamorð ógnar
undirstöðuatvinnuvegi (12)
10. Fótabúnaðurinn gerði smáræðið (8)
11. Stefnir svaka stöðugleika í hættu (13)
12. Hláturgas fyllir gleðigeim (8)
13. Hnykktum fyrirfram á ósvífnum (9)
15. Svartfuglskríli í svartfuglsskýli (10)
17. Takmarkað brambolt boðar látleysi (9)
18. Listakona úr ÍR (4)
22. Faðir guðsins og glæpaforingjans (12)
24. Sé dæld biðla til loginna (9)
26. Rakst í austrænt (6)
27. Leiðslukennari heillar skriðdýr (13)
31. Beljuspil vísar á bókstafinn (4)
32. Laumulega lærður um kukl (9)
34. Stæla tímarit um líkamshluta (9)
35. Kvefkrakkinn eða kraðakið í skotinu (8)
38. Fylgi þeim sem fylgir mér og ógnar (12)
39. Yltröppur að sóttargráðu (9)
40. Lini gangandinn (4)
41. Skiptir hlut fyrir rán (11)
42. Að reyna einfaldlega akstur
tengibrauta (7)
Lóðrétt
2. Dísil í tunnuvís er ilmandi blómarunni (8)
3. Forsíða sýnir flöt á íþróttafélagi (8)
4. Viðbitsvandi drepur umræðu á dreif (10)
5. Fært frá og rægt (7)
6. Tími tryllings og dirfsku (6)
7. Skammlíf tíska er sótt (4)
8. Saumspor færir jötna til lokaorrustu (7)
9. Óðir sjá hyggindi sviptingar (12)
10. Viðuvík fagnar árlega síld og söngvum
(12)
14. Tjón klætt í illa brogað orðalag (10)
16. Heimtar mikinn mátt, enda þrekþurfi (8)
19. Mökunarmátar (13)
20. Kjaftfor vísa á mynnismeyjarnar (7)
21. Hér segir af manni sem færir guði fé gegn
loforði um endurgreiðslu (12)
23. Kasti upp fyrir krónu (5)
25. Gyðja og sóli gefa eldsneyti (5)
28. Pússningartuðrur tryggja festu (9)
29. Að ferð spyrji eftir áhlaupinu (9)
30. Kætið þið svo lífleg hreyfist (8)
33. Nota spreybrúsana til að bleyta nef (7)
36. Enn ein della um ekkert (5)
37. Ofn reka fyrir gagnslausa (5)
Vegleg verðlaun
Lausnarorð
Ef bókstöfunum í skyggðu reitunum er raðað rétt saman birtist
framandi flík. Sendið lausnarorðið í síðasta lagi 13. júní næstkomandi
á krossgata@frettabladid.is merkt „9. júní“.
Lausnarorð síðustu viku var
Vikulega er dregið er úr
innsendum lausnarorðum
og fær vinningshafi eintak
af Ferðaatlas frá Forlaginu.
Vinningshafi síðustu viku var
Þorsteinn S. Guðjónsson,
Reykjavík og getur hann
vitjað vinningsins í afgreiðslu
365, Skaftahlíð 24.
B A K K A B R Æ Ð U R
1 2 3 4 5 6 7 8 9
10
11
12
13 14
15 16
17 18
19
20 21 22 23
24 25
26 27 28 29
30 31
32 33
34
35 36 37
38
39
40
41 42
V I T S K E R T I B B G D H
E Ö L U H Á V A Ð A S A M A N
L O F R Æ Ð U R L R L N F
D R Ð A T V I N N U V E G U R
I A A N L U A L É
S Í M A S A N D I L Í N U S K A U T A
V E T O A G K Ð T
Ö S N U R S T J Ö R N U H A F I Ð B
X N A Æ R Ó Ó A Í
T E I K N I B Ó L A A S L H A L
N G O Ó R Ö K S T U D D I Í
K R A P A H R O Ð I R A K T F
Á L G A F O R S O R G A R I
D Í L A S K A R F A P A Ó S S
I N R I P F Ú K A L Y F
L I Ð M Ú S Á S K R I F T U Æ Ó
J Á V K Ó E H R A Ð A L
Á F Y L L I N G U N A R I I K
K Ð R Ð S N N
A P A S K I N N H A T T A S N A G A R
Á þessum degi fyrir réttum 58 árum, hinn 9. júní árið 1954,
fékk öldungadeildarþingmaðurinn
Joseph McCarthy óvænta ávirð-
ingu frá vitni fyrir nefndarfundi.
Þetta var vendipunktur í viðleitni
McCarthys við að úthýsa kommún-
istum úr bandarísku stjórnkerfi.
Allt frá því að McCarthy lýsti
því yfir snemma árs 1950 að yfir
200 kommúnistar ynnu í utanríkis-
þjónustunni vann hann að því að
fletta ofan af meintri undirróðurs-
starfsemi og setti mikinn fjölda
fólks á svartan lista.
Hann lét líka gera úttekt á
kommúnistaritum á bandarískum
bókasöfnum um heim allan þaðan
sem hundruð rithöfundum var
úthýst í framhaldinu.
Þessi viðleitni McCarthys,
sem margir líktu við nornaveið-
ar, hélt áfram til ársins 1954. Þá
hafði hann snúið athygli sinni að
hernum. Margir röktu það til þess
að yfirmenn hersins voru tregir til
að láta undan þrýstingi McCarthys
um að leyfa einum nánasta að-
stoðar manni hans að sleppa við
herþjónustu. Eitt vitnið sem hann
kallaði til var Joseph Welch, lög-
maður hersins. Welch hrakti úr
vitnastóli hverja samsæriskenn-
ingu McCarthys á fætur annarri,
sem fór ósegjanlega í taugarnar á
þingmanninum.
Hann varð loks ofsareiður og
öskraði á Welch og önnur vitni.
Þegar McCarthy sakaði svo undir-
mann Welch um að vera komm-
únisti svaraði Welch: „Hingað til
áttaði ég mig ekki á harðneskju
þinni og skeytingarleysi.“
McCarthy setti hljóðan. „Hefur þú
enga sómakennd?“
Mikið lófaklapp og fagnaðar-
læti brutust út og yfirheyrslunum
lauk. Viku síðar var rannsókninni
hætt og áður en árið var liðið fékk
McCarthy ávirðingu frá öldunga-
deild þingsins fyrir framferði sitt.
Hann hvarf fljótt af sjónarsvið-
inu og lést þremur árum síðar, en
endalok ofsókna hans eru miðuð
við þennan dag þar sem Joseph
Welch sagði það sem svo margir
höfðu hugsað. - þj
Heimild: history.com
Í ÞÁ TÍÐ: Árið 1954
Ofsóknum McCarthys lýkur
með ákalli eins manns
Við yfirheyrslu fyrir þingi svaraði Joseph Welch öldungardeildarþing-
manninum Joseph McCarthy fullum hálsi. McCarthy hafði lengi barist gegn
kommúnistum sem hann taldi hafa laumað sér inn í bandarískt stjórnkerfi.
OFSÓKNIR Joseph McCarthy stóð um árabil fyrir ofsóknum á hendur meintum
kommúnistum. Hann er hér ásamt Roy Cohn, aðstoðarmanni sínum. NORDICPHOTOS/AFP