Fréttablaðið - 09.06.2012, Side 78
9. júní 2012 LAUGARDAGUR42
BAKÞANKAR
Brynhildar
Björnsdóttur
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Gott að það
gengur aftur
vel hjá þér
og Kamillu,
Jói!
Já, nú getur
þú séð eftir
því að við
vorum með
eitthvað gott
í gangi!
Jú, jú! You know it! Saknarðu
þess ekki?
Svolítið!
Verð að
viðurkenna
það!
Ok Jói,
hættu nú!
Reynha
náh
henni
upp!
Þetta er
klárlega svalt!
Þetta er snilld!
Klárlega!
Klárlega mér að
kenna, maður. Biðst
klárlega afsökunar.
Nýtt
atviksorð,
Pierce?
„Klárlega“
er nýja
„þokkalega“.
Mér er alveg sama
þó að hann elti
þig heim. Þú mátt
ekki eiga hann.
Veistu hvað þessi
dýr verða stór?
Jæja, skoðum fótinn,
Hannes. Hmmm... Þetta er frekar djúpur
skurður. Þú þarft nokkur spor.
Ókei. Með
einu skilyrði.
Að það verði
ekki vont?
Að ég fái
risastórt ör.
LÁRÉTT
2. berjast, 6. gjaldmiðill, 8. þvottur, 9.
farvegur, 11. tveir eins, 12. kappsemi,
14. teygjudýr, 16. pípa, 17. gljúfur, 18.
fát, 20. kvað, 21. auma.
LÓÐRÉTT
1. skrifa, 3. tveir eins, 4. asfalt, 5.
drulla, 7. röndóttur, 10. er, 13. náms-
grein, 15. bor, 16. þjálfa, 19. tveir
eins.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. etja, 6. kr, 8. tau, 9. rás,
11. rr, 12. ákefð, 14. amaba, 16. æð,
17. gil, 18. fum, 20. ku, 21. arma.
LÓÐRÉTT: 1. skrá, 3. tt, 4. jarðbik, 5.
aur, 7. rákaður, 10. sem, 13. fag, 15.
alur, 16. æfa, 19. mm.
Fortíðin er skógur og í gegnum hann liggur stígur. Stundum er þægilegt,
ákjósanlegt eða jafnvel bráðnauðsynlegt
að beygja út af hraðbrautinni og leggja
á þennan stíg. Eftir stígnum er hægt að
rölta rólega, hlaupa, jafnvel hjólaskauta,
stökkva og fela sig inni í runna ef einhver
eða eitthvað birtist sem ekki er gaman að
hitta, þótt það borgi sig nú oftast að mæta
því, fara á trúnó við þá sem verða á stíg
manns eða bara stoppa við bekk, hvíla sig
og hugsa málið.
UNDANFARNAR vikur hef ég fengið
fjölda ánægjulegra ástæðna til að fara
í göngutúr um stíginn minn; end-
urfundir í gagnfræðaskólanum
mínum, grunnskólinn átti stóraf-
mæli, stórfjölskyldan hittist í
stúdentaútskrift og svo áttu
menntaskóla vinirnir einstaka
stund á fimmtudagskvöldið til
að minnast félaga sem fór
frá okkur allt of snemma.
Við öll þessi tækifæri var
litið yfir farinn veg og mér
fannst ég fá tækifæri til að
njóta eða takast á við for-
tíðina og meta og endur-
meta aðstæður, atvik og
samskipti í ljósi reynslu
og tíma.
ÞAÐ er nefnilega svo
skrítið hvernig hægt
er að skellihlæja að háalvarlegum hlutum
árum eða ára tugum síðar, hvernig hægt er
að faðma gamla kærastann, sem var grátið
yfir í heilt ár, af engu nema væntumþykju,
sættast við og fyrirgefa hrekkjusvíninu
og biðja gömlu frænku afsökunar á því að
hafa komið full í sextugsafmælið hennar.
HVERNIG sorg dofnar, reiði dvínar, gleðin
magnast, eins og hvað var rosalega gaman
að taka strætó heim eftir busavígsluna,
eða nei manstu ekki, okkur var ekki
hleypt inn út af öllu slorinu og við urðum
að labba, haha og manstu hvað var kalt?
Alvara lífsins eins og það að einhver þoli
mann ekki og hvernig hver sagði hvað
við hvern um hvað hvenær. Sú staðreynd
að annar vettlingurinn er enn þá týndur.
Þeir sem ég hitti á þessum stíg, það sem
ég á með þeim, þeir sem þekkja mig, muna
hvernig ég var, sjá hvernig ég er, þekkja
muninn.
AUÐVITAÐ er ekki hægt að fyrirgefa allt
og kannski engin ástæða til þess heldur.
En tíminn gefur oft nýtt sjónarhorn,
stundum dregur fjarlægðin fram hliðar,
liti og áferð sem nálægðin við atburðina
getur ekki gefið, ekkert frekar en hægt er
að lýsa fíl sem stígur á tærnar á þér.
SUMARIÐ er tími ættarmóta, hátíða á
heimaslóð, grillveislu með góðum vinum.
Skógarferða þar sem má finna það sem
raunverulega skiptir máli. Fólkið sitt.
Gönguferð á skógarstíg
AÐSTOÐARSKÓLASTJÓRI
Aðstoðarskólastjóra vantar til starfa við Grunn-
skólann á Þórshöfn.
Leitað er eftir vel menntuðum og hæfum einstak-
lingi sem er tilbúinn til að taka þátt í að stjórna og
leiða farsælt skólastarf. Skólastjóri og aðstoðar-
skólastjóri vinna saman að stjórnun og faglegri
stefnumótum skólans. Aðstoðarskólastjóri er
staðgengill skólastjóra og hefur m.a. umsjón með
fjármálum skólans í fjarveru skólastjóra.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Leyfi til kennslu og kennslureynsla
á grunnskólastigi
• Framhaldsmenntun eða reynsla á sviði
stjórnunar æskileg
• Frumkvæði og góðir skipulagshæfileikar
• Samstarfsvilji og hæfni í mannlegum samskiptum
KENNARAR
Grunnskólinn á Þórshöfn – Umsjónarkennari á
miðstig
Leitað er að:
• Kennara með leyfi til kennslu í grunnskóla.
• Metnaðarfullum og hugmyndaríkum einstaklingi
• Kennara sem leggur áherslu á vellíðan og
árangur nemenda.
Einnig vantar skólaliða og stuðningsfulltrúa við
skólann.
Nánari upplýsingar veita:
Arnfríður Aðalsteinsdóttir, skólastjóri Grunnskólans á
Þórshöfn S: 468 1164 og 899 3480
– skolastjori@thorshafnarskoli.is
Gunnólfur Lárusson, sveitarstjóri
S: 468 1220 og 821 1646
- sveitarstjori@langanesbyggd.is
Umsóknarfrestur er til og með 20. júní 2012.
Umsóknum þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og
kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu um-
sóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
LAUSAR STÖÐUR HJÁ LANGANESBYGGÐ
Sunnudaga á Stöð 2
FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT | 512 5100 | STOD2.IS