Fréttablaðið - 09.06.2012, Page 80
9. júní 2012 LAUGARDAGUR44 44
menning@frettabladid.is
Karma fyrir fugla nefnist
nýtt íslenskt leikrit sem
sýnt verður í Þjóðleikhús-
inu næsta vetur. Verkið
er frumraun þeirra Krist-
ínar Eiríksdóttur og Kari
Óskar Grétudóttur en þær
skrifuðu það að miklu leyti
í gegnum Skype hvor í sinni
heimsálfunni.
Þjóðleikhúsið hefur fest kaup á
nýju íslensku leikverki, Karma
fyrir fugla, eftir þær Kristínu
Eiríksdóttur og Kari Ósk Grétu-
dóttur og verður það sýnt í
Kassanum á næsta leikári í leik-
stjórn Kristínar Jóhannesdóttur.
Þetta er frumraun þeirra Kristínar
og Kari fyrir leiksvið en þær hafa
unnið að verkinu í hálft annað ár.
Báðar eru þær myndlistarmennt-
aðar en Kristín hefur getið sér orð
sem rithöfundur og sendi síðast
frá sér smásagnasafnið Doris deyr
árið 2010.
„Okkur hafði lengi langað til að
gera eitthvað saman, til dæmis
halda myndlistarsýningu,“ segir
Kristín um samstarf þeirra Kari.
„Svo fengum við þessa hugmynd að
skrifa leikrit og ólíkt flestum hug-
myndum þá framkvæmdum við
hana svo úr varð þetta verk.“
Karma fyrir fugla er lýst sem
óvenjulegu og ágengu verki sem
Kristín segir að fjalli meðal annars
um ofbeldi, ójafnvægi, ranglæti og
fegurð.
„Það eru svona stóru hugtökin
sem þetta verk hverfist um. Þetta
er lýsing á ástandi sem við setjum
inn í fjölskylduramma. Annars er
best að segja sem minnst um sögu-
þráðinn í bili því ég vil ekki ljóstra
of miklu upp.“
Kristín og Kari hittust bæði
og unnu að verkinu saman og
skrifuðust á úr fjarlægð.
„Ég var á ferðalagi um Asíu
í hálft ár og þá skrifuðumst við
mikið á í gegnum Skype. Það er
mjög hentugur miðill fyrir leikrita-
skrif, því textaboxið virkar eins og
leikhúsdíalógur. En við skrifuðum
líka mikið saman og lásum þá día-
lóginn upphátt hvor fyrir aðra til
að heyra hvernig setningarnar
hljómuðu. Þetta fyrirkomulag
hentaði okkur mjög vel og það
myndaðist mjög mikil dínamík.“
Kristín segir talsverðan mun á
því að skrifa skáldsögu og leikrit.
„Við Kari hugsum báðar mjög
myndrænt og gátum eytt miklu
púðri í hvernig við sjáum sjónræna
þáttinn fyrir okkur. Bókin er fast
form en leikhúsið meira fljótandi;
þótt verkinu sé lokið af hálfu höf-
undar heldur það áfram að þróast
í meðförum leikstjórans og leik-
hópsins og oft bætist eitthvað við
sem leikskáldið reiknaði ekki með.
Þetta er ágæt þjálfun í að sleppa
tökunum.“
Kristín og Karí leituðu beint til
Þjóðleikhússins sem festi kaup á
verkinu.
Leikstjóri er sem fyrr segir
Kristín Jóhannesdóttir, sem leik-
stýrði síðast annarri frumraun,
Svörtum hundi prestsins, eftir
Auði Övu Ólafsdóttur fyrr í vetur.
Með aðalhlutverk fer Þórunn Arna
Kristjánsdóttir en aðrir leikarar
eru Hilmir Jensson, Kristbjörg
Kjeld, Maríanna Clara Lúthers-
dóttir, Ólafía Hrönn Jónsdóttir og
fleiri en Anna Rún Tryggvadóttir
hannar leikmyndina.
„Okkur líst stórkostlega á
þennan hóp,“ segir Kristín, „og
erum mjög glaðar yfir að fara að
vinna með Kristínu Jóhannes-
dóttur. Það verður mjög spenn-
andi að sjá hvernig þetta á eftir að
þróast.“ bergsteinn@frettabladid.is
Þetta eru svona
stóru hugtökin sem
þetta verk hverfist um. Þetta
er lýsing á ástandi sem við
setjum inn í fjölskylduramma.
KRISTÍN EIRÍKSDÓTTIR
RITHÖFUNDUR
Tónlistargagnrýnandi hins virta
tónlistartímarits Opera Now, Neil
Jones, fer fögrum orðum um upp-
færslu Íslensku óperunnar á La
Bohème í dómi í maíhefti tíma-
ritsins.
Jones hrósar bæði uppfærslu
og söngvurum, sem hafi hvergi
valdið vonbrigðum. Hann segir
Huldu Björk Garðarsdóttur
hafa verið „stórkostlega“ í hlut-
verki dauðvona berklasjúklings,
Gissur Páll Gissurarson hafa
verið glæsilegan Rodolfo en einn
af hápunktum sýningarinnar
hafa verið söng Ágústs Ólafs-
sonar, Hrólfs Sæmundssonar og
Jóhanns Smára Sævarssonar.
„Eftirminnilegast í þessari
Bohème,“ skrifar Jones, „var þó
hin fölskvalausa kátína í lok 2.
þáttar, þar sem sviðið var aftur
iðandi af öllum leikhópnum, þar
á meðal heilli lúðrasveit sem lék
gangandi á leið sinni inn á sviðið,
og út af því aftur í gegnum áhorf-
endasalinn. Þetta var sigur í leik-
stjórn fyrir Jamie Hayes.“
Opera Now hrósar
La Bohème í hástert
GISSUR PÁLL OG HULDA BJÖRK Tónlistargagnrýnandi Opera Now hælir þeim Gissuri
og Huldu sérstaklega.
Á MORGUN sunnudaginn 10. júní, verður leiðsögn um sýninguna
[I]ndependent People / Sjálfstætt fólk í Listasafni Íslands. Það er Rakel
Pétursdóttir safnafræðingur sem sér um leiðsögnina, sem hefst klukkan 14.
SPENNANDI KILJUR
Fórnardauði
Glæný bók um harðjaxlinn Jack Reacher
„Sannleikurinn er sá að Reacher verður betri og
betri.“ The New York Times
Sumarhús með sundlaug
Allir hafa eitthvað að fela.
Hárbeitt og meinfyndin bók eftir Herman Koch,
höfund metsölubókarinnar Kvöldverðurinn.
Dauðadjúp
Sálfræðileg glæpasaga af bestu gerð
„... líklega besta bók Åsu Larsson til
þessa.“ Booklist
Gildir til 17. júní eða á meðan birgðir endast.
2.299,-
KYNNINGAR-
VERÐ
2.699,- 2.299,-
KYNNINGAR-
VERÐ
2.699,-
2.299,-
KYNNINGAR-
VERÐ
2.699,-
FUGLAKARMA Í ÞJÓÐLEIKHÚSINU
KARI, KRISTÍN OG KRISTÍN Kari Ósk og Kristín Eiríksdóttir eru báðar myndlistarmenntaðar en fundu farveg fyrir samstarf með því
að skrifa leikrit, sem Kristín Jóhannesdóttir leikstýrir næsta vetur,
Kammerhópurinn Nordic Affect
heldur tónleika í dag á efri
hæð Aðalstrætis 10, sem er ein
elsta bygging
Reykjavíkur.
Á efnisskrá
verður tónlist
eftir nokkrar af
þeim tónlistar-
stjörnum sem
störfuðu fyrir
Prússakonung á
svipuðum tíma
og húsið var
reist sem hluti
af Innréttingum Skúla Magnús-
sonar fógeta. Á milli atriða verður
sagt frá bakgrunni verkanna en
listrænn stjórnandi hópsins, Halla
Steinunn Stefánsdóttir, er einnig
þáttastjórnandi Girnis, grúsks og
gloría, þáttar um tónlist fyrri alda
á Rás 1.
Flytjendur á tónleikunum eru
þrír meðlimir Nordic Affect,
þær Halla Steinunn Stefáns dóttir
fiðluleikari, Georgia Browne
þverflautuleikari og Guðrún
Óskars dóttir semballeikari.
Tónleikarnir hefjast klukkan 15
og er aðgangur ókeypis.
Barokk í Að-
alstræti 10
HALLA STEINUNN
Tvennir tónleikar verða í dag í
Hörpu undir heitinu Songs of the
Soul. Á þeim kemur fram fjöl-
þjóðlegur hópur tónlistarfólks
úr röðum djasstónlistar, klass-
ískrar tónlistar og heimstón-
listar og leikur, útsetur og túlkar
tónlist Sri Chinmoys. Hann var
tónlistarmaður og tónskáld sem
vann að friði og einingu milli
manna. Ókeypis er á tónleikana
sem haldnir eru klukkan fimm og
átta. Miðar eru þó nauðsynlegir
til að tryggja sæti, þá má nálgast
í hljóðfæraversluninni Sangita-
miya, Grettisgötu 7, Kaffi húsinu
Garðinum, Klapparstíg 37 og
heilsubúðinni Góð heilsa, gulli
betri, Njálsgötu 1.
Songs of the
Soul í Hörpu