Fréttablaðið - 09.06.2012, Síða 82
9. júní 2012 LAUGARDAGUR46
Nýir tímar og tækifæri í Frakklandi
Þriðjudaginn 12. júní 2012 klukkan 8.15 - 10.00 í Norræna húsinu
Fransk-íslenska viðskiptaráðið stendur fyrir spennandi morgunverðarfundi undir yfirskriftinni Nýir tímar og
tækifæri í Frakklandi. Aðgangur er án endurgjalds, en boðið verður upp á café et croissants. Skráning fram
til hádegis 11. júní á: kristin@chamber.is.
Fundarstjórar eru Björk Þórarinsdóttir, Arion banka, og Baldvin Björn Haraldsson, BBA Legal. Erindi flytja:
- Frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrum forseti Íslands
- Marc Bouteiller, sendiherra Frakklands á Íslandi
- Gilles Debruire, AFII (Invest in France Agency Northern Europe)
- Halldór Benjamín Þorbergsson, Icelandair Group
- Kári Sölmundarsson, HB Grandi
- Guðmundur Þorbjörnsson, EFLA verkfræðistofa
- Pétur Guðjónsson, Marel
Starfsemi FRÍS hefur að mestu legið í dvala frá árinu 2010 og er fundurinn liður í
því að færa starfsemi ráðsins til fyrri vegar, en ráðið var stofnað árið 1990.
Reykjavíkurborg og Hönnunarmiðstöð Ís-
lands í samstarfi við Arkitektafélag Íslands
efna til samkeppni um hönnun hjólastæða,
hjólaskýla og annarra hjólagagna.
Hönnunarsamkeppni
Lýst er eftir hugmyndum að hentugum hjólastæðum, hjólaskýlum og
öðrum munum eða mannvirkjum sem auðveldað geta fólki að nýta
reiðhjól sem samgöngumáta í Reykjavík.
Nánari upplýsingar og keppnislýsingu er hægt að nálgast á:
www.reykjavik.is/samkeppni
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
12.00 The Icelandic Tattoo Convention
verður haldin á Bar 11 alla helgina.
Dagskrá verður í gangi í allan dag og
tónleikar hefjast klukkan 21. Hljómsveit-
irnar Sykur, Samaris og Retrobot spila.
14.00 Gíslavaka verður haldin í
Húnaveri. Boðið verður upp á stemmur,
lækjarvísur og kvenfélagskaffi.
➜ Upplestur
13.00 Helga Jóhanna, höfundur
Nonnasagnanna, verður með sögustund
fyrir leikskólabörn í Skemmtigarðinum
Smáralind. Allir velkomnir. Seinni upp-
lestrar verða klukkan 13.30 og 14.00.
➜ Umræður
14.00 Heimspekikaffihúsið kemur
saman á Horninu, Hafnarstræti 15.
Umræðuefnið er Vestræn gildi: Hver
eru þau?
➜ Málþing
13.00 Málþing um ævi og störf Stefáns
Einarssonar verður haldið í fyrirlestrasal
Þjóðarbókhlöðunnar.
➜ Tónlist
15.00 Kvartett sænska gítarleikarans
Hans Olding og íslenska saxófón-
leikarans Sigurðar Flosasonar spilar á
öðrum tónleikum jazzsumartónleika-
raðar veitingahússins Jómfrúrinnar við
Lækjargötu. Tónleikarnir fara fram utan-
dyra á Jómfrúartorginu og er aðgangur
ókeypis.
15.00 Kammerhópurinn Nordic Affect
mun stíga á svið á efri hæð einnar elstu
byggingar borgarinnar að Aðalstræti 10.
Munu þau flytja tónlist eftir tónlistar-
stjörnur sem störfuðu fyrir Prússakon-
ung á svipuðum tíma og húsið var reist.
Aðgangur er ókeypis.
17.30 Sænsku dauðarokkararnir í
Entombed halda tónleika á Gamla
Gauknum. Sólstafir leika með hljóm-
sveitinni og eru tónleikarnir fyrir alla
aldurshópa.
20.00 Vegareiði verður haldin í Bragg-
anum við Sláturhúsið á Egilstöðum.
Meðal þeirra sem fram koma eru
200.000 Naglbítar og VAX. Aðgangur er
ókeypis.
21.00 Ljótu hálfvitarnir spila á tón-
leikum í Miðgarði í Skagafirði.
21.00 Þingeyska hljómsveitin Ljótu
hálfvitarnir heldur tónleika í Klifi á
Ólafsvík. Nýtt lag þeirra, Ég ræ, verður á
efnisskrá tónleikanna.
21.30 Hljómsveitir úr Vesturbæ
Reykjavíkur halda sameiginlega tónleika
á Þýska barnum. Um er að ræða hljóm-
sveitina Vigri, tónlistar- og knattspyrnu-
manninn Guðmund Reyni Gunnarsson,
listamanninn Þunna, Mumma, Porquesi
og fleiri. Sérkjör verða á barnum fyrir þá
sem mæta í þýska landsliðsbúningnum.
Ókeypis aðgangur.
22.00 Greifarnir spila á tónleikum á
skemmtistaðnum Spot í Kópavogi.
22.00 Sænska dauðarokkhljómsveitin
Entombed heldur tónleika á Gamla
Gauknum. Um upphitun sjá hljómsveit-
irnar Sólstafir, Reykjavík!, Bootlegs og
Gone Postal. Aldurstakmark er 20 ára.
22.00 Edgar Smári skemmtir gestum á
Café Rosenberg.
23.00 Hljómsveitin Gildran og
Bjartmar Guðlaugsson spila í Hlégarði í
tilefni af landsmóti 50+ sem haldið er í
Mosfellsbæ um helgina.
23.00 Magnús Einarsson og félagar
halda tónleika á Ob-La-Dí-Ob-La-Da,
Frakkastíg 8. Aðgangseyrir er kr. 1.000.
➜ Leiðsögn
12.00 Ingibjörg Helga leiðir gesti um
sýningu sína, Mál er að mæla, í Listasal
Mosfellsbæjar til klukkan 17.
Sunnudagur 10. júní 2012
➜ Tónleikar
16.00 Hljómsveitin The Saints of
Boogie Street , tribute band fyrir
Leonard Cohen, heldur tónleika á
Merkigili á Eyrarbakka. Leikin verða lög
af nýútkomnum geisladisk þeirra sem er
til heiðurs Cohen. Aðgangur er ókeypis
en frjáls framlög þegin.
20.00 Hljómsveitin The Saints of
Boogie Street , tribute band fyrir Leon-
ard Cohen, heldur tónleika á Kaffihúsi
Sólheima í Grímsnesi. Leikin verða lög
af nýútkomnum geisladisk þeirra sem er
til heiðurs Cohen. Aðgangur er ókeypis
en frjáls framlög eru þegin.
➜ Sýningar
11.00 Ljósmyndasýning pólska ljós-
myndafélagsins Pozytywni opnar á Café
Flóru í Grasagarðinum í Reykjavík.
15.00 Sýningin Farfi og fegurð - sýning
um sögu húsamálunar verður opnuð í
Árbæjarsafni.
➜ Hátíðir
11.00 Fjölskyldu- og tónlistarhátíðin
Kótelettan heldur áfram á Selfossi.
Meðal annars verður Veltibíllinn á svæð-
inu og Þorvaldur Halldórsson heldur
útipoppmessu. Nánar á kotelettan.is.
20.00 Frum-hátíðin verður haldin á
Kjarvalsstöðum. Um er að ræða árlega
nútímatónlistarhátíð þar sem áhersla er
lögð á að kynna meistaraverk nútíma-
bókmenntanna fyrir tónlistarunnendum.
Kammerhópurinn Adaper stendur að
hátíðinni. Miðaverð er kr. 2.000/1.500
og frítt fyrir 16 ára og yngri. Athugið að
aðeins er tekið við reiðufé.
➜ Upplestur
13.00 Helga Jóhanna, höfundur
Nonnabókanna, verður með sögustund
fyrir leikskólabörn í Skemmtigarðinum
Smáralind. Allir velkomnir. Seinni upp-
lestrar verða klukkan 13.30 og 14.00.
➜ Opið Hús
13.00 Yfir 100 ferðaþjónustubændur
verða með opið hús í tilefni af útgáfu
bæklings Ferðaþjónustu bænda, Beint
frá býli og Opins landbúnaðar, Upp í
sveit. Sjá nánar á www.sveit.is.
➜ Dansleikir
20.00 Dansleikur Félags eldri borgara í
Reykjavík verður haldinn að Stangarhyl
4. Danshljómsveitin Klassík leikur létta
danstónlist til klukkan 23.00. Aðgangs-
eyrir er kr. 1.500 en kr. 1.300 fyrir
félagsmenn FEB.
➜ Tónlist
16.00 Margrét Bóasdóttir og Chal-
umeaux tríóið koma fram á Gljúfra-
steini og flytja verk eftir Bach, Graupner
og Heinichen auk íslenskra sönglaga.
Aðgangseyrir er kr. 1.000.
16.00 Andrea Jónsdóttir leikur klass-
ískt rokk af plötum á Ob-La-Dí-Ob-La-
Da, Frakkastíg 8. Aðgangur er ókeypis.
➜ Leiðsögn
14.00 Rakel Pétursdóttir safnafræð-
ingur stýrir leiðsögn um sýninguna
[I]ndependent People / Sjálfstætt fólk í
Listasafni Íslands.
14.00 Vala Garðarsdóttir, stjórnandi
fornleifarannsóknarinnar á Alþingisreit á
horni Tjarnargötu og Vonarstrætis, leiðir
áhugasama um uppgröftinn. Leiðsögnin
hefst fyrir utan Landnámssýninguna
Reykjavík 871+2 við Aðalstræti 16.
14.00 Hjónin Sigurjón Pétursson og
Þóra Hrönn Njálsdóttir leiða gesti um
ljósmyndasýningar sínar Aðventa á
Fjöllum og Ferðalangar á Fjöllum sem
nú standa í Þjóðminjasafni Íslands.
Aðgangur er ókeypis.
15.00 Kristín Dagmar Jóhannesdóttir,
listfræðingur og verkefnastjóri, leiðir
gesti um sýninguna Sjálfstætt fólk sem
stendur nú yfir í Listasafni Reykjavíkur,
Hafnarhúsi.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is
Laugardagur 09. júní 2012
➜ Opnanir
14.00 Hið nýja útilistaverk Streymi
tímans eftir Sólveigu Aðalsteinsdóttur
verður afhjúpað í Litluhlið í Öskjuhlíð-
inni. Hafþór Yngvason, safnstjóri Lista-
safns Reykjavíkur, mun afhjúpa verkið
og segja nokkur orð. Allir velkomnir.
➜ Sýningar
15.00 Sýning Guðrúnar Nielsen
skúlptúrlistakonu opnar í SÍM-húsinu,
Hafnarstræti 16. Á sýningunni eru ljós-
myndir og módel af verkum sem flest
hafa verið sett upp á erlendri grundu á
árunum 1992 til 2012.
15.00 Nemendur af Sjónlistadeild
Myndlistaskólans í Reykjavík halda
sýningu á verkum sínum í Gallerí Tukt á
Pósthússtræti 3-5. Sýningin ber titilinn
10 mánuðir.
17.00 Vilborg Bjarkadóttir opnar sýn-
ingu í sal Íslenskrar grafíkur, Tryggvagötu
17.
➜ Hátíðir
10.00 Fjölskyldu- og tónlistarhátíðin
Kótelettan heldur áfram á Selfossi.
Stútfull dagskrá þar sem meðal annars
koma fram Blár Ópal, Íþróttaálfurinn,
Retro Stefson, Páll Óskar og Sálin hans
Jóns míns. Miðaverð á hátíðina er kr.
5.900. Nánar á kotelettan.is.