Fréttablaðið - 09.06.2012, Side 84
9. júní 2012 LAUGARDAGUR48
ÁRA er leikarinn Johnny Depp í dag. Það styttist því í
stórafmæli hjá kappanum sem nýlega var valinn tískufyrirmynd
ársins af samtökum fatahönnuða í Bandaríkjunum.
49
popp@frettabladid.is
Hvað er betra en að hlusta á sólríka tónlist á heitum sumardegi? Frétta-
blaðið bendir á nokkrar áhugaverðar poppplötur sem koma út í sumar.
Æfingar eru í fullum gangi fyrir
tónleika til heiðurs Sir Pauls
McCartney í Eldborgarsal Hörpu
18.júní. Þá verður Bítillinn sjötugur.
„Þetta verður mjög flott. Æfing-
arnar ganga glimrandi vel og það er
mikill hugur í fólkinu,“ segir Tómas
M. Tómasson í Bítladrengjunum
blíðu. Hljómsveitin flytur þrjú lög
á tónleikunum, eða Eleanor Rigby,
Lady Madonna og Fool on the Hill.
Aðrir tónlistarmenn eru einnig
búnir að ákveða lögin sem þeir
ætla að taka. Egill Ólafsson syngur
hið Yesterday ásamt Help, Gunnar
Þórðarson tekur Blackbird og Oh!
Darling og Labbi í Mánum syng-
ur Let It Be, Twist and Shout og
Ob-La-Di,Ob-La-Da. Þá munu
Eyþór Ingi Gunnlaugsson og
Andrea Gylfadóttir syngja Live
and Let Die og Helter Skelter,
Baddi í Jeff Who? syngja
Back in the USSR og
Eyjólfur Kristjánsson
mætir einnig á svæðið
og syngur I´ll Follow
the Sun og With a
Little Luck.
Með tónleikunum
vilja listamennirnir
þakka McCartney
fyrir innblásturinn,
brautryðjandastarfið
sem hann vann með Bítl-
unum og fyrir alla tón-
listina sem hann hefur
sent frá sér. -fb
Egill Ólafs syngur
Yesterday í Hörpu
HEIÐURSTÓN-
LEIKAR Egill Ólafsson
syngur Yesterday á
tónleikum til heiðurs
Paul McCartney.
Retro Stefson Þessi vinsæla hljómsveit hefur verið að hasla
sér völl erlendis að undanförnu. Tvö ár eru liðin frá hinni vel
heppnuðu Kimbabwe með smellinum Mama Angola. Platan er
væntanleg á menningarnótt og skartar hinu eldhressa Qween.
Moses Hightower Mjúkpoppararnir í Moses Hightower vöktu mikla athygli fyrir tveimur árum
með sinni fyrstu plötu, Búum til börn. Sú næsta sem kemur út í júlí á vafalítið eftir að falla vel í kramið.
Elíza Newman Elíza úr Kolrassa Krókríð-
andi mætir í ágúst með sína þriðju sólóplötu
og í þetta sinn eru öll lögin á íslensku. Sem
fyrr en léttleikinn í fyrirrúmi hjá Elízu.
Mannakorn Platan heitir Í blómabrekkunni
og kemur út síðar í mánuðinum. Átta ár eru
liðin frá því síðasta plata Magga Eiríks og föru-
neytis með nýju eðalpoppi leit dagsins ljós.
Klassart Þriðja útgáfan frá þessari systkinasveit frá Sandgerði
kemur út í júlí eða ágúst. Hljómsveitin hefur breytt nokkuð
um stefnu. Tónlistin er orðin hressari og hreinræktað popp er
orðið meira áberandi eins og lagið Smástirni ber vott um.
Friðrik Dór Tvö ár eru liðin síðan fyrsta plata
Friðriks Dórs, Allt sem þú átt, blés ferskum
vindum inn í íslenskt tónlistarlíf. Búast má við
grípandi íslensku R&B-poppi Friðriks í júlí.
Þórunn Antonía Söngkonan er að senda
frá sér sína aðra sólóplötu núna í júní en sú
fyrsta, Those Little Things, kom út fyrir áratug.
Á meðal laga eru Too Late og For Your Love.
SÓLRÍKT SUMARPOPP
Frá kr. 69.900 með fullu fæði
Heimsferðir bjóða frábært tilboð í 7 nátta ferð til Benidorm þann
12 júní. Í boði er m.a. Hotel Park hótelið *** og Hotel Melia ****
með fullu fæði Gríptu þetta frábæra tækifæri og njóttu lífsins í
sumarbyrjun á Benidorm á ótrúlegum kjörum.
Hotel Mont Park ***
Kr. 69.900 - með fullu fæði.
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 1 barn, 2-11 ára, í herbergi með
fullu fæði í viku. Verð m.v. gistingu í tvíbýli með fullu fæði kr. 89.900.
Aukagjald fyrir einbýli kr. 11.000.
Hotel Melia ****
Verð frá kr. 79.900 - með fullu fæði.
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 1 barn, 2-11 ára, í herbergi með
fullu fæði í viku. Verð m.v. gistingu í tvíbýli með fullu fæði kr. 99.900.
Aukagjald fyrir einbýli kr. 19.000.
Allra s
íðustu
sætin
Benidorm
Allra síðustu sætin 12. júní
7 nátta ferð – einstakt tækifæri