Fréttablaðið - 13.06.2012, Qupperneq 1
veðrið í dag
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
Sími: 512 5000
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012
Miðvikudagur
skoðun 14
SÉRBLAÐ
í Fréttablaðinu
Fólk
13. júní 2012
137. tölublað 12. árgangur
FORÐAST LONDONVenjulegir ferðamenn halda sig fjarri London á
meðan á Ólympíuleikunum stendur. Um þriðjungur
hótelherbergja er enn óseldur. Ástæðan er sögð
umtalsverð hækkun á verði eða allt að 104%.
Talið er að ferðamenn fari fremur til Berlínar og
Barcelona á meðan á leikunum stendur.
H i
SMART Á HJÓLIHOLL HREYFING Á vefsíðunni hjolreidar.is má finna mikið af upplýsingum
um hjólreiðar. Þar eru fjölmargar myndir af flottu hjólandi fólki og þar að
auki eins konar tískublogg fyrir hjólafólk.
BRÚÐKAUPSGJAFIR
Laugaveg i 178 - S ím i : 568 9955
www.tk.is
- mikið af frábærum tilboðum
10% afsláttur
Taka 12 Kg · HljóðlátStórt op > auðvelt að hlaðaSparneytin amerísk tæki.<Þvottvélin tekur heitt og kalt vatn Afkastamikill
þurrkari >
Þvottavél Þurrkari12 kg
Amerísk
Vertu vinurGóð þjónusta - fagleg ráðgjöf.www.mistyskor.is
Vandaðir þýskir herraskór í úrvaliLéttir og þægilegir herra-sumarskór úr leðri, skinnfóðraðir. Litir: cognac og svart - Stærðir: 40 - 46 - Verð: 14.700.-
Sími 551 2070Opið mán.-fös. 10-18.Laugardag 10-14.
Gildir til 17. júní 2012.
NETTILBOÐ
VIKUNNAR!
BUBBI - ÞORPIÐ
Nýi diskurinn með Bubba áritaður
og sendur beint heim að dyrum!
& SENDUR FRÍTT HEIM
ÁRITAÐUR
2.999kr
3.299kr 600kr
verð áður sendingarkostnaður
Nýr tilboðsbæklingur í dag
Betri frá ári til árs
Tónlistarhátíðin Við Djúpið
á Ísafirði í tíunda sinn.
menning 24
Verður Íslendingur
Ramune Pekarskyte gæti
reynst landsliðinu mikill
styrkur á komandi árum.
sport 30
Vinsæll Kiss-klúbbur
Hátt í tvö hundruð
manns eru í nýstofnuðum
aðdáendaklúbbi Kiss.
popp 34
TÓNLIST Upptökur eru hafnar á
fjórðu hestamannaplötu Helga
Björnssonar og Reiðmanna vind-
anna. Hinar
þrjár hafa notið
gífurlegra
vinsælda og
samanlagt selst
í um 32 þúsund
eintökum.
„Ég fékk
hvatningu úr
mörgum áttum
um að smella
einni Reið-
mannaplötu í viðbót og ég varð
við þeim óskum,“ segir Helgi.
Meðal laga á plötunni verða
Íslenskur kindreki, sem er ný
útgáfa af lagi Spilverks þjóðanna,
Icelandic Cowboy. „Það er búið
að vera ótrúlegt gengi á þessum
plötum, fólk virðist ekkert fá
nóg,“ segir Helgi. - fb / sjá síðu 34
Helgi Björnsson í hljóðveri:
Fjórða hesta-
platan tekin upp
BJART MEÐ KÖFLUM en bjartara
inn til landsins. Lítilsháttar skúrir
einkum síðdegis sunnanlands.
Hægur vindur eða hafgola. Hiti á
bilinu 4 til 16 stig.
VEÐUR 4
11
12
9
10
8
HELGI BJÖRNSSON
ALÞINGI Greidd verða atkvæði í dag
um hvort fjármálaráðherra fái
heimild til að ábyrgjast 8,7 millj-
arða króna lán vegna Vaðlaheiðar-
ganga. Umræðum um málið lauk í
gær, en andstaða við það er í öllum
flokkum.
Þrátt fyrir stíf fundahöld í gær
hefur enn ekki náðst samkomulag
um þinglok. Eins og Fréttablaðið
greindi frá í gær hefur meðal
annars verið rætt um að fresta
afgreiðslu frumvarps um stjórnun
fiskveiða, gegn því að frumvarp
um veiðigjöld verði afgreitt.
Stjórnarand-
staðan hefur
kallað eftir því
að veiðigjöldin
verði lækkuð
en stjórnar liðar
eru ófúsir til
þess. Milljarð-
arnir fimmtán,
sem gert er ráð
fyrir að gjöld-
in skili, hafa
verið eyrnamerktir ýmsum fram-
kvæmdum.
Fjölmörg frumvörp hafa orðið
að lögum síðustu tvo daga. Þar
má nefna frumvarp um barna-
lög, en samkvæmt því fá dómarar
heimild til að dæma sameiginlega
forsjá, en það ákvæði var í óþökk
Ögmundar Jónassonar innanríkis-
ráðherra.
Vaðlaheiðargöngin eru eitt
þeirra mála sem stjórnin lagði
áherslu á að klára. Það þykir gefa
von um samkomulag að málið
kemur til atkvæða í dag. Heimild-
armenn Fréttablaðsins voru enda
bjartsýnir á að samkomulag um
þinglok næðist í dag. - kóp / sjá síðu 8
Enn hefur ekki verið samið um þinglok þrátt fyrir stíf fundahöld í gær:
Kosið um Vaðlaheiðargöng í dag
ÖGMUNDUR
JÓNASSON
MENNING Ljóðaþingi Kínversk-
íslenska menningarsjóðsins, sem
halda átti í bænum Kirkenes í
Norður-Noregi í sumar, hefur
verið aflýst í ár þar sem kínversk
ljóðskáld sem boðin voru til þings-
ins fengu ekki leyfi til að ferðast
til Noregs.
Hjörleifur Sveinbjörnsson,
stjórnarformaður sjóðsins, segir
málið tengjast gremju kínverskra
stjórnvalda með að andófsmaður-
inn Liu Xiaobo hafi verið sæmd-
ur friðarverðlaunum Nóbels árið
2010. Nefndin sem velur verð-
launahafa er skipuð af norska
þinginu og hafa samskipti milli
ríkjanna verið í uppnámi síðan.
„Við undirbúning þriðja
ljóðaþings sjóðsins datt okkur
Kirkenes í hug sem skemmti-
leg staðsetning,“ segir Hjörleif-
ur í samtali við Fréttablaðið, en
skipulagning var komin vel á
veg. Meðal annars átti yfirskrift
þingsins að vera „ljóð án landa-
mæra“.
„Fyrir skemmstu fengum við
hins vegar skilaboð frá bak-
hjarli okkar, fyrirtækinu Zhong-
kun [sem er í eigu Huangs Nubo]
um að ekki væri hægt að halda
ljóðaþingið í Kirkenes þar sem
kínversk yfirvöld hefðu nýlega
ítrekað að ekkert hefði breyst í
samskiptum Kína við Noreg.“
Hjörleifur segir þetta hafa
komið skipuleggjendum í opna
skjöldu.
„Það hvarflaði ekki að okkur að
þessi deila milli Kína og Noregs
myndi setja strik í reikninginn,
enda kemur hún okkur ekkert við,
en veruleikinn er svona. Við erum
auðvitað hundsvekkt, sérstaklega
vegna listafólksins sem við höfð-
um þegar boðið.“
Hvað varðar listamennina sjálfa
segir Hjörleifur að ekki sé ljóst
hvort þeim hafi beinlínis verið
bannað að fara til Noregs eða ekki.
„Okkur skilst að ekki hafi verið
tekið vel í beiðni skáldanna og
ljóst er að samskipti ríkjanna eru
með þeim hætti um þessar mundir
að staðan fer ekkert á milli mála.“
Hjörleifur segir málið vand-
ræðalegt en stjórn sjóðsins hafi
þó tekið þann pól í hæðina að færa
þingið ekki til annars lands í ár.
„Okkur fannst að það myndi
gefa röng skilaboð. Við stöldr-
um nú við og skoðum framhald-
ið, en erum þó ákveðin í að halda
ljóðaþing í Kirkenes þegar fram
í sækir. Okkur finnst við skuld-
bundin hinu ágæta fólki í Kirke-
nes og viljum fyrir alla muni
koma aftur síðar.“
Sjóðurinn er stofnaður til tíu
ára og segir Hjörleifur að stjórnin
vonist til að halda sínu striki í efl-
ingu menningarsamskipta milli
Kína og Íslands. - þj
Kínverjar stöðva ljóðaþing
Ljóðaþingi Kínversk-íslenska menningarsjóðsins var aflýst því kínverskir þátttakendur fengu ekki leyfi til
Noregsfarar. Stjórnarformaður sjóðsins er ákveðinn í að halda ljóðaþing í Noregi þótt síðar verði.
Samskipti Kína og Noregs eru við alkul
Lýsandi dæmi um kuldann í samskiptum milli Kína og Noregs er að nýlega
var Kjell Magne Bondevik, fyrrverandi forsætisráðherra, synjað um vega-
bréfsáritun til Kína. Samkvæmt frétt Aftenposten hefur fjölmörgum Norð-
mönnum verið synjað um vegabréfsáritun síðustu mánuði. Jonas Gahr
Störe, utanríkisráðherra Noregs, sagði nýlega í útvarpsviðtali að Kína fengi
ekki áheyrnaraðild að Norðurheimskautsráðinu við núverandi aðstæður
eins og vonir þeirra standa til. Samskipti milli ríkja séu lykilatriði í ráðinu og
sniðganga Kína á Noregi sé „ekki okkar val, heldur þeirra“.
UPPSKERUTÍMI Í garðyrkjustöðinni í Silfurtúni á Flúðum er uppskerutíminn á jarðarberjum að ná
hámarki, en Silfurtún er stærsta jarðarberjabú landsins. Guðmundur Karl Eiríksson, sonur eigendanna, sést hér
tína sæt og safarík ber af stilkum en þau eru send samdægurs í verslanir um land allt. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM