Fréttablaðið - 13.06.2012, Side 10
13. júní 2012 MIÐVIKUDAGUR10
Gríðarleg hungursneyð
vofir yfir Vestur-Afríku, en
þar hafa rigningar brugð-
ist, miklir þurrkar herjað
á íbúa og ítrekaður upp-
skerubrestur fylgt í kjölfar-
ið. Héðinn Halldórsson er á
svæðinu og segir viðbrögð
við ástandinu langt frá því
að vera nógu hröð.
„Þetta er eiginlega tifandi tíma-
sprengja. Næstu tveir mánuðir
eru afgerandi. Þetta getur ekki
annað en versnað. Við erum núna
mitt á milli uppskera, þetta er
það sem kallað er „magurt” tíma-
bil,“ segir Héðinn Halldórsson,
fjölmiðlatengill fyrir samtökin
Barnaheill.
Hann segir eina milljón manna
standa frammi fyrir alvarlegri
vannæringu í níu löndum Vestur-
Afríku. Verst telur hann ástandið í
Níger og Búrkína Fasó, en Héðinn
er staðsettur í Búrkína Fasó þessa
stundina.
Héðinn segist afar sleginn yfir
ástandinu. Hann bendir á að eitt
barn af hverjum tíu sem búi á
svæðinu, sé nú þegar alvarlega
vannært og fólk orðið verulega
örvæntingarfullt.
„Ég hef séð að fólk er að bregða
á algjör neyðarráð. Það er verið að
taka börn úr skólum svo þau geti
aflað tekna eða matar. Fólk borðar
einu sinni á dag, mjög næringar-
lítinn mat, af því að það reynir að
þrauka þetta tímabil og sker við
nögl þann litla mat sem það hefur.
Fólk reynir líka að selja kindur
og geitur, sem er mjög neikvæð
aðferð til að komast af. Það er
skammtímalausn, því þegar búið
er að selja allan stofninn er ekk-
ert eftir. Hvorki matur, peningar
né bústofn. Þá er það bara dauði
sem blasir við.“
Héðinn segir alvarlegt hversu
lengi umheimurinn og hjálpar-
samtök voru að taka við sér.
„Viðbrögðin hafa verið ein-
hver en þau hafa ekki verið nógu
hröð. Það sem þarf að gerast er
að fá aukið fjármagn og það þarf
athygli í fjölmiðlum. Fólk bregst
ekki við fyrr en það sér lík á sjón-
varpsskjá.“
Fréttaviðtal: Yfirvofandi hungursneyð í Vestur-Afríku
Katrín Tinna
Gauksdóttir
katrin@frettabladid.is
„Fólk bregst ekki við fyrr en það sér lík“
NEMATA, FJÖGURRA ÁRA Nemata fær tvær máltíðir á dag, sem báðar
samanstanda af sorghum (í ætt við kúskús) með sósu gerðri úr
baobab-laufum. Búrkína Fasó er eitt af fátækustu löndum heims og
á næstu tveimur mánuðum er líklegt að eitt af hverjum tíu börnum
muni þjást af alvarlegri vannæringu.
ABDOLAYE, TÓLF ÁRA Abdolaye ásamt fjölda kvenna og barna að leita að gulli á árbakka í Kaya-héraði. „Það er ekki til nægur
matur heima,“ sagði Abdoulaye, einn fimm bræðra, en ein afleiðing yfirvofandi hungursneyðar er að börn neyðast til að hætta
að stunda skóla, til að vinna fyrir sér fyrir mat. BARNAHEILL/HÉÐINN HALLDÓRSSON
ZALISSA, Á SJÚKRAHÚSINU Í KAYA Á dýnu á gólfinu liggur ellefu daga
gömul, vannærð dóttir Zalissu.
PORE YALMA ÁSAMT DÓTTUR SINNI, NAFORÉ, FJÖGURRA ÁRA Naforé
var lögð inn á sjúkrahúsið í Kaya fyrir ellefu dögum, alvarlega van-
nærð. Barnaheill greiða fyrir lækniskostnað Naforé, eins og allra
annarra barna undir fimm ára aldri í Búrkína Fasó.
Til viðbótar við ríkulegan staðalbúnað
í Volkswagen Passat Comfortline Plus
er nú fullkomið leiðsögukerfi með
Íslandskorti ásamt bakkmyndavél.
www.volkswagen.is
Ratvís og
víðsýnn
Volkswagen Passat EcoFuel
Komdu og reynsluaktu Volkswagen Passat
Passat Comfortline Plus
sjálfskiptur kostar aðeins
4.590.000 kr.