Fréttablaðið


Fréttablaðið - 13.06.2012, Qupperneq 15

Fréttablaðið - 13.06.2012, Qupperneq 15
MIÐVIKUDAGUR 13. júní 2012 15 Mikil hreyfing er nú meðal manna að gefa forseta Íslands heimild til þess að neita að undirrita lög frá Alþingi og gera hann þannig pólitískan. Þetta gera menn þvert gegn þeim skilningi á stjórnarskránni, sem verið hefur í gildi frá lýðveldis- stofnun, að forseti sé, þrátt fyrir mikil formleg völd, efnislega með öllu valdalaus og ábyrgðar- laus á öllum stjórnarathöfnum. Sú túlkun byggir á skýrum og óum- deilanlegum ákvæðum stjórnar- skrárinnar, eins og sýnt hefur verið fram á hér í blaðinu. Ekki verður þess vart að stuðnings- menn pólitísks forseta ætli sér að breyta stjórnarskránni með þeim hætti sem lögboðinn er, heldur eiga yfirlýsingar og end- urtekningar í fjölmiðlum að duga og forseti að hrifsa völdin sjálf- ur í kjölfarið, eftir því sem hann telur henta. Mikill vandi steðjar að þessu góða fólki, því nú hafa runnið upp fyrir því djúpstæðir ann- markar málstaðarins, sem greini- lega var ekki hugsað fyrir í upp- hafi. Ef forsetanum eru játuð völd til þess að neita að skrifa undir lög frá Alþingi þá hlýtur hann einnig að mega neita að skipa ráðherra, setja embættismenn í stöður, gera samninga við erlend ríki og margt fleira, sem upp er talið í stjórnarskránni, eftir því sem honum hentar. Eins og skýrt hefur verið frá hér í blaðinu er það einkum með 11. gr. 13. gr og 14. gr. stjskr., sem öll efnis- leg völd eru tekin af forseta og færð öðrum. Menn hafa þegar talað sig upp í það, að framan- greind ákvæði gildi ekki um 26.gr stjskr., sem fjallar um málsskots- rétt. Þá hlýtur sú spurning að fylgja hvort ekki sé rétt að tala sig upp í það líka, að víkja grein- unum þremur til hliðar hvað varðar allar aðrar starfsskyld- ur forsetans. Ræða menn það nú í fullri alvöru hvort forseti geti ekki sniðgengið þingræðisreglu og rofið þing að vild sinni . Einn ágætur háskólakennari skrifaði um þessi efni nýlega og reynir að koma fótum undir halt- an málstað. Hann segir meðal annars: „Hins vegar gildir regl- an (þ.e. 14.gr. stjskr., innskot und- irritaðs) ekki um synjunarvald forseta skv. 26. gr. stjskr. Forseti getur því synjað lögum Alþing- is staðfestingar án atbeina ráð- herra …“ Háskólakennarinn rök- styður þessa skoðun ekki einu orði og vitnar ekki í neinar rétt- arheimildir eða lagarök máli sínu til stuðnings. Fullyrðingin ein er látin duga. Efnislega samhljóða fullyrðing hefur dunið á eyrum landsmanna um nokkra hríð og eftir því sem best er vitað alltaf án rökstuðnings. Hér er þeirri aðferð fylgt að láta endurtekn- inguna undirbyggja sannfær- inguna og bæta það upp sem á skortir í rökum. Það er gömul aðferð og hefur orðið mönnum til mikils tjóns og vandræða um langan aldur. Því næst heldur háskólakenn- arinn því fram að forsetinn hafi samkvæmt stjskr. „neikvæðar valdheimildir“. Hann verði ekki þvingaður til að staðfesta tillög- ur ráðherra um ýmis mál. Sam- kvæmt þessu á forseti að hafa um það frjálst val hvort hann uppfyll- ir þær ýmsu skyldur embættisins sem á hann eru lagðar í stjórnar- skránni. Þetta er frumleg kenn- ing. Gaman væri að vita hvort kennarinn telur þetta valkvæði geta náð til annarra greina rétt- arins og hvort almenningur geti líka notið góðs af kenningunni og menn ráði því sjálfir að hve miklu leyti þeir hlýða lögum. Það gildir um þessa kenningu eins og staðhæfinguna um mál- skotsrétt forsetans, að engin til- raun er gerð til þess að rökstyðja hana, því síður er borið við að finna henni staðfestingu í lögum eða öðrum réttarheimildum. Hér er um að hreina hugarsmíð að ræða, sem er sett fram að því er virðist í þeirri von að hún fái hljómgrunn í fjölmiðlum og verði endurtekin nógu oft til þess að verða á endanum samþykkt sem gildur réttur á Íslandi. Þess verð- ur oft vart að fræðimenn setji fram skoðanir og fullyrðingar með þessum hætti. Sá andi svíf- ur yfir vötnum að menn þurfi ekki lengur að aga hugsun sína eftir akademískum venjum eða að fara eftir lögum. Hroki og sjálfs- ánægja bólunnar lifir enn. Það er að sönnu furðulegt að heyra lög- lærða menn tala og skrifa í þeim dúr að unnt sé að breyta stjórnar- skrá með því að brjóta hana fyrst og ná síðan samstöðu um brotið í fjölmiðlaumræðu. Hér er komið að grundvelli réttarríkisins. Vilja menn fara eftir lögum eða ekki. Þá heggur sá er hlífa skyldi ef kennarar Lagadeildar HÍ styðja stjórnarskrárbreytingar án laga. Íslensk stjórnskipun er ekki losaralegur samtíningur held- ur heilsteypt smíð. Hún er eins og hús sem hrynur til grunna ef einni meginstoð er kippt undan henni. Málsskotsréttur er nú efnislega í höndum ráðherra. Það má vel vera að gott sé fyrir stjórnarfarið að hafa víðtækari málskotsrétt en það. Hins vegar stríðir það gegn grunnhugsun stjórnarskrár- innar að forseti hafi slíkt vald. Hann hefur öðrum hlutverkum að gegna, m.a. þeim að stuðla að samstöðu þjóðarinnar og virð- ingu manna fyrir lögum, rétti og stjórnarfari. Oft var þörf á slíku og nú er það nauðsyn. Hvaða leið sem menn vilja fara í þessu efni ætti það að vera yfir deilur hafið, að stjórnarskránni verður ekki breytt með öðrum hætti en þeim sem mælt er fyrir um í lögum. Fjölmiðlaskrumið eitt getur þar aldrei dugað. Enn um vald forseta Nú er til umfjöllunar tillaga til þingsályktunar um áætlun um vernd og orkunýtingu land- svæða, svokölluð Rammaáætlun. Miklar líkur eru á að þarna sé verið að keyra gegnum Alþingi að nánast banna alla frekari virkjun á vatnsafli. Efnahagslegar afleið- ingar af þessari stefnu eiga eftir að verða hræðilegar. Neðri-Þjórsá þurrkuð út Í þingsályktunartillögunni voru virkjanir í Neðri-Þjórsá eini bitastæði kosturinn í nýtingar- flokki. Undirbúningi þeirra er nánast lokið og álfyrirtækin bíða eftir meiri orku. Þetta eru þrjár virkjanir og er Urriðafoss- virkjun þeirra stærst. Menn töldu sig hafa sátt um að halda mætti áfram með þessar virkjanir, en nú hefur komið í ljós að svokallað „náttúruverndarlið“ – sem með réttu ættu að heita andvirkjunar- sinnar – ætlar sér að stöðva þetta eftir pólitískum leiðum, hvað sem „faglegri“ umfjöllun annars líður. Skelfilegar afleiðingar Allir eru sammála um að hér vanti fyrst og fremst meiri fjár- festingar til að atvinnulífið kom- ist á skrið og almannahagur vænkist. En í hverju á að fjár- festa? Genginu er haldið uppi með höftum svo öll nýsköpun á mjög erfitt uppdráttar og allir hefðbundnir atvinnuvegir eru í einhvers konar kreppu; í sjávar- útvegi kvótakreppa, í landbún- aði markaðskreppa og í orkuiðn- aði pólitísk bannkreppa. Það sem menn eru helst að vonast eftir eru framkvæmdir í mannvirkja- gerð, en það eru sterk takmörk fyrir hvað Íslendingar geta lifað góðu lífi af að byggja yfir sjálfa sig. Hér þarf gjaldeyrisskap- andi iðnað til að rétta af gengið, borga skuldir og auka velmeg- un. Ákvörðunin að banna vatns- afl keyrir landið niður í stöðnun. Ofvirkjun á jarðhita kemur ekki í staðinn fyrir vatnsafl. Hvað á þessi kjánaskapur að ganga langt? Andvirkjunarstefnan á ekkert skylt við náttúruvernd, þetta er pólitísk andstaða við áliðnaðinn, baráttuaðferð sem gripið var til þegar ljóst var að allar sögur um mengunarhættuna af álverunum voru stórlega ýktar. Andvirkjun- arstefnan siglir því undir fölsku flaggi náttúruverndar. Framleitt hefur verið heilt safn af slagorð- um sem sýna eiga náttúruspjöll af virkjunum. Þekktast þeirra er „umhverfisáhrif“ og svo hið enn sterkara „óafturkræf umhverf- isáhrif“ sem á að vera afgerandi ástæða til að segja nei. Auðvitað verður landið fyrir áhrifum af virkjunum, en í flestum tilfellum eru þau jákvæð eins og þeir sem ferðast um Langadal hafa sann- reynt, en sá dalur er að gróa upp á fljúgandi ferð og Blanda orðin að einni bestu laxveiðiá landsins, allt vegna Blönduvirkjunar. Í öllum þessum andvirkjunaráróðri eru aldrei tekin nein dæmi um nátt- úruspjöll af virkjunum sem búið er að byggja, enda eru þau nán- ast ekki til. Þvert á móti, virkj- anir hemja eyðingarmátt straum- vatna, stuðla að uppgræðslu lands og laða að ferðamenn. Og það er ekki meiri eftirsjá að botninum á Hálslóni en að botninum á Þing- vallavatni og Mývatni. Hve lengi á þessi kjánaskapur að halda áfram, að láta pólitíska mótmæl- endur stöðva heilan atvinnuveg án þess að hafa eitt einasta dæmi máli sínu til stuðnings? Rammáætlun um að gera ekki neittForsetaembættið Finnur Torfi Stefánsson lögfræðingur Rammaáætlun Jónas Elíasson fv. prófessor í m. a. virkjunarfræðum

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.