Fréttablaðið - 13.06.2012, Side 19
FORÐAST LONDON
Venjulegir ferðamenn halda sig fjarri London á
meðan á Ólympíuleikunum stendur. Um þriðjungur
hótelherbergja er enn óseldur. Ástæðan er sögð
umtalsverð hækkun á verði eða allt að 104%.
Talið er að ferðamenn fari fremur til Berlínar og
Barcelona á meðan á leikunum stendur.
Heimasíðan hjolreidar.is er hugar-fóstur Páls Guðjónssonar og er unnin í nánu samstarfi við
Landssamtök hjólreiðamanna og Ís-
lenska fjallahjólaklúbbinn. Páll er bæði
ritstjóri og ljósmyndari síðunnar og
er einnig hjólreiðamaður sjálfur. „Til-
gangurinn með heimasíðunni er að
sýna fram á að hjólreiðar eru fyrir alla,“
segir Páll.
Á síðunni má finna mikinn fjölda
mynda af Íslendingum að hjóla. „Með
myndunum viljum við breyta ásýnd
hjólreiða og sýna fram á að það er hægt
að hjóla með stæl. Það er alls konar
fólk sem hjólar, hvort heldur er í jakka-
fötum, í hælaskóm eða hvernig sem er.
Þetta er ekkert jaðarsport og það þarf
engan sérstakan útbúnað. Fólk þarf alls
ekki að klæða sig eins og gangbrautar-
verðir til að fara á hjólið, maður getur
verið smart á hjóli,“ segir Páll.
Á síðunni er einnig kynnt tækni sam-
gönguhjólreiða sem auka öryggi hjól-
reiðamanna og efla sjálfsöryggi þeirra.
„Við gefum bæði hjólreiðamönnum og
bílstjórum góð ráð og ráðleggjum öllum
að lesa þau til að verða öruggari í um-
ferðinni. Við viljum fá fleiri til að hjóla
því öryggið eykst með auknum fjölda
hjólreiðamanna.“
Upphafið að verkefninu hjolreidar.is
var þegar bæklingur um hjólreiðar var
gefinn út árið 2010 samhliða átakinu
Hjólað í vinnuna. „Við vildum hjálpa
fólki við það verkefni og vildum mæla
með hjólreiðum. Við hvetjum fólk til að
prófa að hjóla og viljum fá sem flesta
til að nota hjólreiðar sem samgöngu-
máta. Það er mýta að það sé hættulegt
að hjóla. Það hættulegasta við það að
hjóla er í raun að hjóla ekki. Það lengir
lífið að hjóla og hreyfa sig,“ segir hann.
■lilja.bjork@365.is
SMART Á HJÓLI
HOLL HREYFING Á vefsíðunni hjolreidar.is má finna mikið af upplýsingum
um hjólreiðar. Þar eru fjölmargar myndir af flottu hjólandi fólki og þar að
auki eins konar tískublogg fyrir hjólafólk.
ÖRUGGT AÐ HJÓLA
Markmiðið með vefsíð-
unni hjolreidar.is er að fá
sem flesta til að fara út
að hjóla. „Hjólreiðar eru
holl og örugg hreyfing,“
segir Páll, ritstjóri og
ljósmyndari síðunnar.
Öll brúðhjón fá glæsilega
svuntu með nöfnum sínum og
brúðkaupsdegi ísaumuðum.
Íslensk kennslubók í matreiðslu fylgir.
Gildir um KitchenAid hrærivélar
FOR THE WAY IT´S MADE
MIKIÐ ÚRVAL BRÚÐARGJAFA
BRÚÐKAUPSGJAFIR
Laugaveg i 178 - S ím i : 568 9955
www.tk.is
- mikið af frábærum tilboðum
10% afsláttur
DALVEGI 16c · 201 KÓPAVOGI
SÍMI 568 6411 · WWW.RAFVORUR.IS
Taka 12 Kg · Hljóðlát
Stórt op > auðvelt að hlaða
Sparneytin amerísk tæki.
<Þvottvélin tekur
heitt og kalt vatn Afkastamikill
þurrkari >
Þvottavél Þurrkari12 kg
Amerísk
gæðavara
Amerísk
gæðavara
Grandagarði 3, 101 Reykjavík, Sími 552 9940 | Opið mán.–fös. kl. 9–18. Laugard. kl. 9–16 | Opið á sunnudögum í júní, júlí og ágúst.
ÚT Á GRANDA ÚT Á GRANDA
VEID
IPOR
TID.
IS
NÝ V
EFV
ERS
LUN
Jaxon slöngubátar 290 cm og 320 cm
3 Hólfa bátar sem auðvelt er að pakka saman. Pumpa, taska, árar.
FRÍR RAFMAGNSMÓTOR AÐ VERÐMÆTI 47.900,- FYLGIR MEÐ
ÖLLUM BÁTUM MEÐAN BYRGÐIR ENDAST.
Verð frá 249.000 kr. Nánari upplýsingar á veidiportid.is
rafmagnsmótor
Vertu vinur
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.mistyskor.is
Vandaðir þýskir herraskór í úrvali
Léttir og þægilegir herra-sumarskór úr leðri,
skinnfóðraðir. Litir: cognac og svart -
Stærðir: 40 - 46 - Verð: 14.700.-
Sími 551 2070
Opið mán.-fös. 10-18.
Laugardag 10-14.