Fréttablaðið - 14.06.2012, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 14.06.2012, Blaðsíða 1
veðrið í dag MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* Sími: 512 5000 *Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012 Fimmtudagur skoðun 20 2 SÉRBLÖÐ í Fréttablaðinu Fólk Konur 50 plús veðrið í dag 14. júní 2012 138. tölublað 12. árgangur HVÍTT Í SUMARVEISLUStella McCartney bauð nokkrum stjörnum í veislu í New York á þriðjudag þar sem hún kynnti hönnun sína fyrir 2013. Mikið bar á hvítum klæðnaði hjá gestum. Meðal þeirra voru Anne Hathaway, Jim Carrey, Lauren Hutton og Greta Gerwig ásamt mörgum fleirum. Ferskjulitt og köflótt var áberandi fyrir næsta ár. V erslunin Dorma opnaði haustið 2008 rétt eftir að kreppan skall á. Reksturinn hefur gengið vel og sífellt fleiri aðilar leita til fyrirtækisins. „Það er nokkurs konar vertíð hjá okkur núna. Frá apríl og fram í september er vanalega brjálað að gera í að þjónusta þá sem reka hvers konar gistiaðstöðu fyrir ferðamenn,“ segir Garðar. Dorma býður allflest sem þarf fyrir gistiheimili; handklæðasett, sængur-verasett, rúm, sængur og allt þar á milli. „Ferðamannastraumurinn til landsins hef-ur aukist gríðarlega undanfarin misseri og við finnum fyrir því, enda búin að selja um 700 rúm á þessu ári. Svo þarf regllega að end ý vefnaðarvöru en áður. Margir þeirra sem versla hjá okkur koma aftur og aftur sem lýsir ánægju viðskiptavinanna, enda erum við með vandaðar vörur á mjög hagstæðu verði.“ Dorma er staðsett á efri hæðinni í verslunarkjarnanum í Holtagörðum. Þar er að finna einn stærsta sýningar-sal landsins með fjölbreyttu vöruúrvali og faglegri þjónustu. „Hjá okkur vinnur fólk með reynslu sem veit hvað það er að höndla með og veitir góða og faglega þjónustu, sem skiptir miklu upp á að velja rétta vöru hverju sinni.“ Garðar hefur verið viðloðandi rúm-bransann síðustu fi BRJÁLAÐ AÐ GERA Í DORMA DORMA KYNNIR Garðar Guðmundsson, verslunarstjóri Dorma í Holtagörð- um, hefur verið önnum kafinn við að þjónusta hótel og gistiheimili. Verslunin er með fjölbreytt vöruúrval fyrir aðila sem reka gistiþjónustu. ALLT FYRIR HÓTEL OG GISTIHEIMILI Dorma býður all-flest sem þarf fyrir gistiheimili; hand-klæðasett, sæng-ur MARGRA ÁRA REYNSLABræðurnir Garðar Haukur og Guð-mundur Helgi Guðmundssynir hafa starfað lengi í þessum bransa. „Margir viðskiptavinir koma aftur og aftur sem lýsir ánægju þeirra, enda erum við með vandaðar vörur á mjög hagstæðu verði.“ MYND/ANTON BRINK SCHMENGERSCHUHMANUFAKTUR KENNEL teg 3371 - nett fylling, mjúkur og fæst í stærðum 70B, 75B, 80B,75C, 80C, 85C VERÐ KR. 2.750.- buxur fást í stíl í nokkrum stærðum á AÐEINS KR. 1.000,- TILBOÐ - 50% AF - aðeins fram að helgi eða meðan birgðir endast Laugavegi 178 - Sími: 551 3366Þú mætir - við mælum og aðstoðumwww.misty.isOpið frá 10-18 virka daga.10-14 laugardaga Opið virka daga í sumar frá kl. 9 -18 • Stórhöfða 25 • 569 3100 • eirberg.is Verð: 9.750 kr. NálastungudýBætir svefn og dregur úr verkjum KONUR 50 PLÚS FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2012 Kynningarblað Mataræði, æskuljómi, hreyfing, hreinlætisvörur og kvennahlaup Gott umtal, orðspor og frábær reynsla hafa breitt út vinsældir EGF-húðlín-unnar. Konur um víða veröld hafa prófað þær á eigin skinni og í kjölfarið sagt hvor annarri frá einstökum árangri,“ segir Eiríkur Sigurðsson upplýsingafulltrúi og vörumerkjastjóri hjá Sif Cosmetics sem framleiðir EGF-húðvörurnar. Niðurstöður nýrrar könnunar Capacent Gallup sýna að 34 prósent íslenskra kvenna yfir fimmtugu nota EGF-húðvörur með undraverðum árangri. „Flestar tala um aukinn æskuljóma, stinnari og sterkari húð, betri raka og jafnt og betra litarhaft. Þá heyr- um við iðulega ánægjuradd- ir kvenna sem hafa upplifað hrós vina og kunningja um hvað þær líta vel út,“ segir Ei- ríkur. Hróður varanna frá Sif Cosmetics berst víða og vin- sældir þeirra eru miklar og vaxandi. Til dæmis eru húð- droparnir mest selda snyrti- varan um borð í f lugvélum Lufthansa en þær fást einn- ig um borð í vélum KLM og Swiss Air. „Fólk treystir hreinleika vörunnar og kann að meta að hún er framleidd á Ís-landi. Í EFG-vörunum eru engin paraben, litarefni né önnur aukefni og hún er því laus við skaðleg efnasambönd sem fyrirfinnast í mörgum þekktum snyrtivörum ð „Margir frumuvakar gegna lykilhlutverki í líffræði húðar og þótt rannsóknir ORF hafi fyrst og fremst snúið að framleiðslu frumu- vaka fyrir læknisfræðirannsóknir varð þess f ljótt vart að erlend snyrtivörufyrirtæki ásældust frumuvakana í snyrtivörur sínar. Fyrst stóð til að selja þá utan en vankunn- átta erlendu fyrirtækjanna hefði senni- lega eyðilagt virkni þeirra. Fljótlega var því tekin ákvörðun um að sérhanna nýja húð- vöru sem viðhéldi virkni frumuvakanna,“ útskýrir Eiríkur um tilurð hinna einstöku EGF-húðdropa. EGF-húðlínan inniheldur EGF-frumu- vaka sem framleiddur er með erfðatækni í íslensku byggi. „Við leggjum mikið upp úr raunverulegum vísind- um á bak við virkni EGF- línunnar, gerum á þeim tvíblindar prófanir og ná- kvæma greiningu á húð með nýju og fullkomnu óm- skoðunartæki,“ upplýsir Ei- ríkur. „Ómskoðun á húðinni sýnir að EGF styrkir kolla- gen í undirlagi húðar, gerir hana stinnari og vinnur gegn sýnilegum áhrifum öldrunar,“ segir Eiríkur. Á dögunum birti Dr. Ronald Moy, fráfar- andi formaður Bandarísku húðlæknasam- takanna, niðurstöður rannsókna á virknihú Uppgötvuðu óvart æskubrunnÍ nýlegri könnun Capacent Gallup kemur fram að 34 prósent íslenskra kvenna yfir fimmtugu nota EGF-húðvörur að staðaldri. Árangurinn er undraverður. Húðin endurheimtir æskuljóma, hún verður stinnari og litaraftið jafnara og betra. Eiríkur Sigurðsson, upplýsingafulltrúi og vörumerkjastjóri Sif Cosmetics, segir fyrirtækið leggja mikið upp úr raunverulegum vísindum á bak við virkni EGF-húðvaranna. Þær innihalda EGF-frumuvaka sem framleiddur er með erfðatækni í íslensku byggi. MYND/STEFÁN Ómskoðun á húðinni sýnir að EGF styrkir kollagen í undirlagi húðar, gerir hana stinnari og vinnur gegn sýnilegum áhrifum öldrunar. Býr til sár og marbletti Elísabet Ormslev vinnur með latex, vax og gerviblóð þegar hún farðar sár, skurði og marbletti. Þar fyrir utan syngur hún á tónleikum. BIÐIN ER Á ENDA! HUNGURLEIKARNIR HALDA ÁFRAM Fjölskylduhátíð 14.–16.júní Opið til 21 í kvöld Hoppukastalar, candyfloss, andlitsmálun og blöðrur fyrir alla Enginn göngugarpur Reynir Ingibjartsson skrifar um gönguleiðir á Reykjanesskaga. tímamót 30 í kvöld Opið til 21 E N N E M M / S ÍA / N M 5 2 9 2 5 Ódýr laxveiðileyfi Hvar er hægt að fá laxveiðileyfi fyrir minna en 20 þúsund krónur? veiði 54 Flengt í fjölda ára Nýliðar í íslensku íþróttalífi hafa svo árum skiptir verið rassskelltir. sport 32 LITLAR BREYTINGAR Í dag má áfram búast við hægum vindi eða hafgolu. Bjart með köflum og horfur á skúrum síðdegis, einkum SV-til og allra austast. Hiti 7-15°C, hlýjast í innsveitum Vestanlands. VEÐUR 4 13 9 10 9 10 EFNAHAGSMÁL Sparisjóðurinn í Keflavík (SpKef) jók innlán sín um 8,5 milljarða króna á árinu 2009. Áður höfðu þau aukist um 9,8 milljarða króna á síðustu mán- uðum ársins 2008. Alls jukust þau um tæp 30 prósent frá því skömmu fyrir bankahrun og fram til loka árs 2009. Á þeim tíma uppfyllti sjóðurinn ekki lágmarkskröfur Fjármálaeftirlitsins (FME) um eigið fé og starfaði því á undan- þágu. Kostnaður vegna innlána- söfnunarinnar lendir á skattgreið- endum. Alls tapaði SpKef 46,6 milljörðum króna á árunum 2008 til 2010. Þetta kemur fram í áður óbirtum drögum að ársreikning- um SpKef sem Fréttablaðið hefur undir höndum. Í drögum að ársreikningi SpKef fyrir árið 2009 kemur fram að inn- lán hans hafi verið orðin 63,2 millj- arðar króna í lok þess árs. Þau voru 44,9 milljarðar króna um mitt ár 2008. Á sama tíma og sjóðurinn jók við innlán sín rýrnaði virði eigna hans um 17 milljarða króna auk þess sem hann greiddi um 2,3 milljarða króna í laun, launatengd gjöld og „annan rekstrarkostnað“. SpKef starfaði fram í apríl 2010 þegar nýr SpKef var settur á fót. Samkvæmt drögum að ársreikn- ingi hans fyrir það ár tapaði sjóð- urinn 11,9 milljörðum króna á því ári. Þar kemur einnig fram að allar eignir sjóðsins, „að undanskildum 100 milljónum króna, [voru] fluttar yfir til SpKef sparisjóðs“. Hann tók auk þess yfir „öll almenn innlán auk skulda við Seðlabanka vegna daglána og endurhverfra viðskipta og önnur lán sem voru tryggð með veðum í yfirteknum eignum“. Nýja SpKef var síðan rennt inn í Lands- bankann í mars 2011. Úrskurðarnefnd komst að þeirri niðurstöðu í síðustu viku að íslenska ríkið eigi að greiða Landsbankanum 19,2 milljarða króna vegna yfirtöku hans á SpKef. Til viðbótar er áætl- aður vaxtakostnaður vegna greiðsl- unnar um sex milljarðar króna auk þess sem ríkið hafði þegar lagt hinum fallna sjóði til 900 milljón- ir króna í eiginfjárframlag þegar hann var settur á fót. - þsj / sjá síðu 10 SpKef tapaði 50 milljörðum Sparisjóðurinn í Keflavík tapaði 50 milljörðum króna á árunum 2008-2010. Á sama tíma jukust innlán hans um tugi milljarða. Rekstrarkostnaður sjóðsins árið 2009, meðal annars launagreiðslur, var 2,3 milljarðar. SJÓNVARP Vefþættirnir Hraðfrétt- ir, sem nutu talsverðra vinsælda á Mbl.is í vetur, verða í Kast- ljósinu á RÚV næsta vetur. Benedikt Valsson, sem stjórnar Hrað- fréttum ásamt Fannari Sveins- syni, segir að velgengni þátt- anna hafi komið sér í opna skjöldu. „Velgengnin fór fram úr öllum væntingum, svo þegar við höfð- um lokið við tíu þætti á vefnum fóru ákveðnar þreifingar af stað um framhaldið,“ segir Benedikt og viðurkennir að þeir hafi verið eftirsóttir. Það hafi samt ekki komið annað til greina en að fara til RÚV þegar Sigmar Guðmunds- son, ritstjóri Kastljóss, hafði sam- band í vor. „Það er ákveðinn draumur að rætast að komast loksins að hjá fjölmiðlahöllinni, eins og við kjósum að kalla Efstaleitið,“ segir Benedikt og bætir við að hann hlakki til að hefjast handa og útbúa Hraðfréttir fyrir RÚV. - áp / sjá síðu 58 Af vefnum í sjónvarpið: RÚV nælir í Hraðfréttirnar BENEDIKT VALSSON milljarðar fóru í laun, launatengd gjöld og „annan rekstrarkostnað“ árið 2009. 2,3 STRANDVEIÐUM LOKIÐ Hjónin Grétar Reynisson og Konný Breiðfjörð Leifsdóttir lönduðu afla sínum á Arnarstapa um kvöldmatarleytið í gær. Þau höfðu þá verið úti allan daginn á báti sínum Brimsvölu. Síðasti dagur strandveiðanna gekk ekkert sérstaklega vel fyrir þau enda þurftu þau að róa alla leið inn á Breiðafjörð til að finna fisk. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN SÝRLAND Radhika Coomaraswamy, fulltrúi framkvæmdastjóra SÞ í málefnum barna í hernaðarátök- um, segir í samtali við Fréttablað- ið að mikil ógn steðji að börnum í Sýrlandi og brýnt að bætt verði úr sem fyrst. Skýrsla sem birt var í vikunni varpar ljósi á grimmdarverk stjórnarliða gegn börnum. „Stöðu barna í Sýrlandi nú má líkja við það sem konur þurftu að þola í Bosníustríðinu á sínum tíma,“ segir Coomaraswamy en bætir því við að flestir ættu að sjá hvernig ástandið í Sýrlandi er orðið nú. „Allir hljóta að átta sig á því að eitthvað verður að gera í málunum og draga verður þá til ábyrgðar sem standa fyrir voðaverkunum.“ Össur Skarphéðinsson utanrík- isráðherra tekur í sama streng og segist hafa hvatt til þess að Örygg- isráð SÞ vísi brotum stjórnarhers- ins í Sýrlandi til Alþjóðadómstóls- ins í Haag. Coomaraswamy segir starf stofnunarinnar erfitt að mörgu leyti en árangur sé þó að nást. „Við höfum þó náð nokkru fram þar sem sautján lönd á lista okkar hafa lagt fram áætlanir til úrbóta. Þetta er takmarkaður árangur og skrefin stutt, en í rétta átt þó.“ - þj / sjá síðu 4 Fulltrúi Sameinuðu þjóðanna um mál stríðshrjáðra barna í Sýrlandi: Illvirkjarnir verði dregnir til ábyrgðar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.