Fréttablaðið - 14.06.2012, Blaðsíða 30
14. júní 2012 FIMMTUDAGUR30
„Það má segja að Reykjanesið hafið
opnast enn betur fyrir göngufólk á
undanförnum árum. Í fyrsta lagi er
búið að malbika Suðurstrandarveg og
þar með gera hann miklu greiðfærari.
Í öðru lagi hefur opnast mjög spenn-
andi leið um Básenda á milli Sand-
gerðis og Hafna, vestast á Reykjanes-
inu. Þar hafði bandaríski herinn mikil
mannvirki og var svæðið lokað,“ segir
Reynir Ingibjartsson höfundur bókar-
innar 25 gönguleiðir á Reykjanesskaga
sem nýverið kom út.
Þetta er þriðja bókin í bókaflokki
um gönguleiðir í nágrenni höfuðborg-
arinnar. Áður hafa komið út bækur um
gönguleiðir í nágrenni höfuðborgarinn-
ar og gönguleiðir í Hvalfirði. En hvern-
ig komu göngubókaskrif til hjá Reyni?
„Það var nú bara haft samband við mig
þegar vantaði texta í fyrstu bókina.
Svo leiddi eitt af öðru og það æxlaðist
nú þannig á endanum að ég á líka allar
myndir í nýju bókinni,“ segir Reynir
sem þrátt fyrir skrifin þvertekur fyrir
að vera göngugarpur.
„Göngugarpur er hálfgert bann-
orð hjá mér. Ég er bara mikill áhuga-
timamot@frettabladid.is
Innilegar þakkir til allra er sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför föður
okkar, tengdaföður, afa, sonar og bróður,
HAUKS RICHARDSSONAR
Sandra Hauksdóttir
Magnús Ólafsson
Saga, Dagur og Mirra
Tinna Gallagher
David Gallagher
Richard H. Ólsen Felixson Erna Petrea Þórarinsdóttir
systkini, makar og börn.
Hjartans þakkir sendum við öllum þeim
sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu
við andlát og útför ástkærrar móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
ÓLAFAR KARVELSDÓTTUR
frá Hnífsdal.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólkinu á
Hrafnistu í Hafnarfirði, deild 4b, fyrir hlýhug
og góða umönnun.
Kristján Pálsson Sóley Halla Þórhallsdóttir
Ólafur Karvel Pálsson Svandís Bjarnadóttir
Guðrún Helga Pálsdóttir
Ólafía Guðfinna Pálsdóttir Arnar Guðjónsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartans þakkir til þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát elsku
eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður og afa,
ÓLAFS S. OTTÓSSONAR.
Innilegar þakkir færum við starfsfólki
11-E Landspítala, Heimahlynningar og
líknardeildar Landspítalans í Kópavogi.
Steinunn Árnadóttir
Ingibjörg Ólafsdóttir Helgi Rafn Jósteinsson
Kristín Ólafsdóttir Davíð Sigurjónsson
Erna Ólafsdóttir Helgi Arnarson
og barnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð
og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns,
föður okkur, tengdaföður, afa, langafa og bróður,
GARÐARS ÁSBJÖRNSSONAR
Túngötu 3, Vestmannaeyjum.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk Heilbrigðisstofnunar
Vestmannaeyja fyrir einstaka umönnun og Ísfélag Vestmannaeyja
fyrir trygga og góða vináttu.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Ásta Sigurðardóttir
Útför ástkærrar móður okkar,
ÖNNU SIGRÍÐAR BJARNADÓTTUR
Hvammi, heimili aldraðra,
fer fram frá Húsavíkurkirkju föstudaginn
15. júní kl. 11.00.
Elín Sigtryggsdóttir
Guðrún Sigtryggsdóttir
Sigtryggur Albertsson
Bjarni Sveinsson
og fjölskyldur.
Elskuleg systir okkar, frænka og mágkona,
ÓLAFÍA KRISTÍN HANNESDÓTTIR
Drekavöllum 26, Hafnarfirði,
áður Bólstaðarhlíð 33, Reykjavík,
andaðist í faðmi fjölskyldunnar á
Landspítalanum í Fossvogi 10. júní sl.
Fyrir okkar hönd og annarra vandamanna,
Auðlín Hanna Hannesdóttir og Þorsteinn Óli Hannesson
Elsku móðir okkar,
ÁSA SOFÍA FJALLSTEIN
lést á Borgarspítalanum þann 21. apríl
síðastliðinn. Útför hennar fór fram í Leirvík í
Færeyjum 30. apríl. Innilegar þakkir til allra
er sýndu okkur samúð og sérstakar þakkir
fær starfsfólk lungnadeildar Borgarspítalans
og Heimahlynningar Reykjavíkur fyrir hlýhug
og góða umönnun.
Anleyg F. Petersen
Magni F. Petersen
Esmar F. Petersen
Niclas M. F. Petersen
Elskuleg móðir okkar og tengdamóðir,
GUÐNÝ BERGRÓS JÓNASDÓTTIR
fyrrum húsfreyja
í Norður-Hvammi í Mýrdal,
síðar Smáratúni 20, Selfossi,
sem lést á Hjallatúni í Vík 8. júní sl. verður
jarðsungin frá Selfosskirkju
laugardaginn 16. júní kl. 11.00.
Erla Eyþórsdóttir Brynjólfur Ámundason
Gísli Sævar Hermannson Hólmfríður Sigurðardóttir
Sjöfn Hermannsdóttir
Jónas Smári Hermannsson Anna Droplaug Erlingsdóttir
Hreiðar Hermannsson Ágústa Jónsdóttir
Svanhvít Hermannsdóttir Almar Sigurðsson
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
KJARTAN HELGI SUMARLIÐASON
Viðarholti, Akureyri,
lést laugardaginn 9. júní á Dvalarheimilinu
Hlíð, Akureyri. Útförin fer fram frá
Glerárkirkju mánudaginn 18. júní kl 10.30.
Stella Jónsdóttir
Ingibjörg Kjartansdóttir Gestur Björnsson
Kjartan F. Kjartansson Dýrleif Ingvarsdóttir
Sumarliði Már Kjartansson Björg Hjörleifsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug
vegna andláts og útfarar sambýliskonu
minnar, móður, tengdamóður,
ömmu og langömmu
SIGRÚNAR ÁRSÆLSDÓTTUR,
Drekavöllum 18
221 Hafnarfirði
Sigurður Björgvin Viggósson
Ársæll Þorleifsson Kristín Geirsdóttir
Hákon Þorleifsson Oddný Kristín Oddsdóttir
barnabörn og barnabarnabarn.
NÁTTÚRAN VIÐ BÆJARVEGGINN: NÝ GÖNGULEIÐABÓK UM REYKJANESIÐ
Göngugarpur hálfgert bannorð
REYNIR INGIBJARTSSON Áhugamaður um útivist sem nú hefur samið sína þriðju bók um gönguleiðir í nágrenni höfuðborgarinnar.
FRÉTTABLAÐIIÐ/ANTON
Njósnakapall hindraði för
MONIKA ABENDROTH hörpuleikari á afmæli í dag
„Þegar veðrið er gott á Íslandi er það besta veðrið í heiminum.“
Í viðtali við Fréttablaðið 14. júní 2002.
68
maður um útivist. Og læt öðrum eftir
tindana. Leiðirnar í bókinni eru allar
á láglendi.“
Reynir segir Reykjanes mikla nátt-
úruperlu þar sem sé að finna fjölmargar
áhugaverðar gönguleiðir. „Náttúrufar á
þessum slóðum er afar fjölbreytilegt og
gönguleiðirnar því afar margbreytileg-
ar. Í bókinni bendi ég á gönguleiðir á
öllum Reykjanesskaganum frá Reykja-
nestá að Þrengslasvæðinu. Það má
segja að þetta svæði skiptist gróflega
í þrennt. Einn hluti er vestan Grinda-
víkurvegar, annar frá Grindavíkur-
vegi að Kleifarvatni og sá þriðji austan
þess. Gönguleiðirnar eru hringferðir að
mestu leyti, þannig nær göngufólk að
ferðast um enn meira svæði.“
Reynir segir forréttindi að skrifa
gönguleiðabækurnar og hann er hvergi
nærri hættur. „Ég var einmitt á Snæ-
fellsnesinu en næsta bók mun fjalla um
það svæði. Draumurinn er að skrifa
bækur sem spanna allt Suðvestur- og
Vesturland,“ segir Reynir að lokum.
sigridur@frettabladid.is
„Um langt skeið var ekki hægt að komast með ströndinni
frá Sandgerði til Hafna vegna hernaðarmannvirkja. Þarna lá
í sjó njósnakapall sem bandaríski herinn lagði líklega alla
leið til Grænlands til að fylgjast með skipa- og kafbáta-
ferðum um Grænlandssund.“ Svo segir í upphafi kafla um
Básenda í bókinni 25 gönguleiðir á Reykjanesskaga. Þar er
lýst gönguleið frá Gálgaklettum um Básenda og Stafnes.
Margvíslegir fróðleiksmolar fylgja hverri leiðarlýsingu og
sömuleiðis kort. Meðal annarra leiða sem er lýst er göngu-
leið í kringum Helgafell, gönguferð um Sog, Grænavatn og
Djúpavatn og í Herdísarvík. Bókin er gefin út af Sölku.