Fréttablaðið - 14.06.2012, Blaðsíða 33

Fréttablaðið - 14.06.2012, Blaðsíða 33
| FÓLK | 3TÍSKA Íris Ólöf Sigurjónsdóttir textílhönn-uður hefur verið að skapa og hanna frá því hún var á unglingsaldri. „Ég sá mjög snemma að það lægi fyrir mér að vinna í textíl, ég hef lifað og hrærst í textíl alla mína tíð. Ég er menntaður textílkennari, lærði í Ósló og fór svo að læra textílforvörslu í Bretlandi,“ segir Íris Ólöf. Ásamt því að starfa við textíl- hönnun vinnur hún sem forstöðumað- ur Byggðasafnsins á Dalvík. Íris Ólöf opnaði nýlega sýningu á Heimilisiðnaðarsafninu á Blönduósi, Bútar úr fortíð. „Á sýningunni vinn ég með efnisbúta héðan og þaðan sem all- ir eiga sér þó fjölskyldusögulega fortíð í öðru samhengi, ýmist úr mínu eigin búi eða frá móður minni, formæðrum og frænkum. Þessum konum tileinka ég sýninguna Bútar úr fortíð.“ Áður fyrr vann Íris efnin frá grunni og spann en gerir það ekki í dag. „Nú vinn ég mest með náttúruleg efni og perlur. Einnig nota ég mikið pappír og víra. Ég hef alltaf endurnýtt hluti og það er ekki tilkomið vegna kreppunnar, ég hef gert það meðvitað alla tíð frá því ég var unglingur,“ segir hún. Íris Ólöf gerir mikið af hálsfestum, armböndum, húfum, handsmokkum, skyrtubrjóstum og svifléttum pappírs- fígúrum. „Mér finnst gaman að gera allt þetta, sérstaklega finnst mér notalegt að gera litlu dúkkurnar og ég get al- gjörlega gleymt mér við að útbúa hið smáa.“ Hún er þó lítið í því að skreyta heimili sitt eða sig sjálfa með eigin hönnun. „Ég sauma reyndar svolítið af fötum á sjálfa mig og áður fyrr hannaði ég mikið af barnakjólum og öðru sem tilheyrir börnum. Nú held ég hins vegar vinnunni minni á vinnu- stofunni alveg aðskildri frá sjálfri mér. Það sem ég vinn þar fer almennt á sýn- ingar og í sölu. Það sem ég dútla við heima hjá mér hefur annað gildi hjá mér. Þrátt fyrir það finnst mér allt sem ég geri fallegt og finnst mjög gaman að sjá annað fólk með eitthvað sem ég hef hannað og ég virðist eiga mér minn kúnnahóp.“ Íris Ólöf sér það fyrir sér að einbeita sér að textíl sem listformi frekar en hönnun í framtíðinni. „Ég mun þó alltaf gera skart- ið áfram og eitthvað meira mun ég halda áfram að gera við dúkk- urnar,“ segir Íris Ólöf. ■ lilja.bjork@365.is LIFAÐ OG HRÆRST Í TEXTÍL ALLA TÍÐ BÚTAR ÚR FORTÍÐ Íris Ólöf Sigurjónsdóttir opnaði nýlega sumarsýningu á Heimilisiðnaðarsafninu. Sýningin er tileinkuð móður hennar og formæðrum. SKRAUTLEGT Skyrtubrjóst sem Íris Ólöf hannaði. Hún notar mest náttúruleg efni og perlur í hönnun sína. SUMARSÝNING Íris Ólöf opnaði nýlega sumarsýningu á verkum sínum á Heimilisiðnað- arsafninu á Blönduósi. LITRÍKT Írisi finnst notalegt að dunda sér við að búa til þessar fallegu og lit- ríku dúkkur og segist geta gleymt sér við að útbúa hið smáa. MYND/GVA Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517-6460 www.belladonna.is Verslunin Belladonna á Facebook Erum að taka upp nýja kjólasendingu frá Stærðir 40-56 OUTLET-SKÓR | FISKISLÓÐ 75 | 101 REYKJAVÍK Opið: mán-fös 13-18 & lau 12-16 sími: 514 4407 psShape U órdömu sk St. 36–41 Stráka skór St. 21–26 elpu skórSt t. 21–26S aðeins kr.7.900 Dömu skór St. 36–41 Herra skór S 4 45t. 1– kr.8.500 aðeins aðeins 4.900 kr. aðeins kr.9.900 aðeins 4.900kr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.