Fréttablaðið - 14.06.2012, Blaðsíða 37
KYNNING − AUGLÝSING Konur 50 plús 14. JÚNÍ 2012 FIMMTUDAGUR 3
Vörulína Vivag inniheldur mjólkur-sýru og er án litarefna, rotvarnarefna og parabenefna. „Vivag eru hreinlæt-
isvörur sérhannaðar fyrir viðkvæma líkams-
hluta kvenna. Umræða um þessar vörur og
þörfina fyrir þær er viðkvæm en að sama
skapi nauðsynleg,“ segir Berglind Erna
Þórðardóttir, vörumerkjastjóri fyrir Vivag
hjá Icepharma.
Tíður þvottur á kynfærasvæði með sterk-
um sápuefnum getur leitt til ertingar, sviða
og kláða í húðinni. Því er mælt með að nota
mildar, til þess gerðar vörur sem innihelda
rétt sýrustig svo eðlilegt jafnvægi svæðisins
raskist ekki.
„Vörurnar frá Vivag eru fjölbreyttar og
henta öllum konum. Við erum með sápu til
daglegrar notkunar, rakaaukandi gel sem
einnig er hægt að nota sem sleipiefni, blaut-
klúta sem henta vel viðkvæmri húð kynfæra-
svæðisins og tryggja að húðin þorni ekki.
Einnig veita þeir hreinlætistilfinningu og
eru tilvaldir að hafa með í ferðalögin,“ segir
Berglind.
Vivag Meno er lína sem er sérstaklega
ætluð konum um og eftir breytingaskeið.
„Á því tímabili minnkar frjósemi kvenna,
blæðingar hætta og sýrustig á kynfærasvæð-
inu hækkar í um það bil 6 frá því að vera áður
í 4,6. Margar konur finna fyrir því að slímhúð
í leggöngum þynnist og verður viðkvæmari
þegar breytingaskeið hefst. Þess vegna er
nauðsynlegt að velja hreinlætisvörur með
tilliti til þess.“
Meno-línan samanstendur af sápu og
kremi. „Sápan er mild,
eykur raka og verndar húð-
ina á kynfærasvæðinu auk
þess að eyða óþægilegri
lykt. Meno sápan stuðl-
ar að því að ná upp eðli-
legu ástandi og vernda það
en hana má nota daglega.
Kremið er nokkurs konar
varnarkrem sem er verndandi
og mýkjandi krem fyrir við-
kvæma húð kynfærasvæðisins
og tryggir að húðin þorni ekki,
heldur haldist stinn. Kremið
mýkir húðina og eykur og við-
heldur raka. Kremið er vatns-
fælið og eykur með því mót-
stöðuafl húðarinnar gegn ytra
áreiti, til dæmis vegna þvagleka.
Það er borið á eftir þörfum á við-
kvæma húð á kynfærasvæðinu,
eða þar sem húðin þarfnast sér-
stakrar verndar,“ segir hún.
Vivag vörulínan á afar trygga
notendur og ættu allar konur að
finna vöru innan línunnar sem
hæfir þeirra þörfum. Vivag vör-
urnar fást í Fjarðarkaupum, Hag-
kaupi og í apótekum. „Margar
konur veigra sér við að spyrja um
vörur sem þessar í búðum þannig
að benda má á að mikið af upplýs-
ingum er á heimasíðu okkar, vivag.
is.“ Á síðunni er einnig hægt að skrá
sig og fá senda prufu af Vivag sápu.
www.vivag.is
Vörur sem henta öllum konum
Vivag eru hreinlætisvörur sérhannaðar fyrir viðkvæma líkamshluta kvenna. Vörulínan er mild en áhrifarík og hentar sérstaklega
vel fyrir þurra og viðkvæma húð.