Fréttablaðið - 14.06.2012, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 14.06.2012, Blaðsíða 12
14. júní 2012 FIMMTUDAGUR12 Íslenskar gullauga kartöflur Íslensk hreindýrasteik úr læri 120 gr Hamborgarar • Gott verð FLOTTUR STÓR HUMAR 5.500 kr.kg ( 1 kg. í öskju ) Heitur matur frá 11.30 - 13.30 og 17.00 - 19.00 Góð Laxaflök Fisksteikur í úrvali Fiskur á grillið eða í ofninn Grillsagað lambakjöt 1.100 kr.kg ( 6-8 kg. í poka ) Örugglega bestu kaupin Beinlaus Lambasteik, kryddaðar rúllur beint í ofninn 1.390 kr.kg Heimir & Kolla vakna með þér í bítið Fréttir, fróðleikur og frábær tónlist alla virka morgna kl. 6.50 – 9.00 Vatnsafl sstöðvar breyta fallþunga vatns í hreina, stöðuga og umhverfisvæna raforku. Í gestastofu Landsvirkjunar í Végarði við Fljótsdalsstöð er áhugaverð sýning um framkvæmdirnar við Kárahnjúka með fj ölbreyttum fróðleik um svæðið allt. Frá Végarði eru kynnisferðir í Fljótsdalsstöð og tvisvar í viku er boðið upp á leiðsögn við Kárahnjúkastífl u og Hálslón. gestir.landsvirkjun.is Við virkjum þyngdarafl ið Landsvirkjun býður gesti velkomna í þrjár aflstöðvar í sumar: Búrfell - Gagnvirk orkusýning Opið kl. 10-18, júní-ágúst. Kröfl ustöð - Gestastofa Opið kl. 10-16, júní-ágúst. Fljótsdalsstöð - Gestastofa Opið kl. 10-17, júní-ágúst. FRÉTTASKÝRING Hvernig er ástandið í Búrma? Sérstakur erindreki Sameinuðu þjóðanna í málefnum Búrma, einnig þekkt sem Mjanmar, kom til lands- ins í gær til að kynna sér ástandið í Rakhine-héraði, þar sem blóðug átök trúarhópa hafa geisað síðustu daga. Sagt er að 21 hafi látið lífið í átökum þar síðan á föstudag. Rólegra var um að litast í hér- aðinu í gær en dagana þar á undan. Það helgaðist af mikilli rigningu, sem stöðvaði átökin að minnsta kosti tímabundið. Frá því á föstu- dag hefur 21 látið lífið í átökum og yfir 1.500 heimili hafa verið brennd. Mikill fjöldi fólks er því heimilis- laus í héraðinu. Vegna ótta við áframhaldandi átök hefur rútu- og ferjuflutningum verið hætt frá höfuðborginni Yan- gon til héraðsins. Þetta hefur vald- ið því að mat og aðra hluti er farið að skorta í héraðinu. Búðir, bankar, skólar og markaðir eru að mestu leyti lokaðir. Átökin eru á milli búddatrúar- manna og svokallaðra Rohingya- múslima í héraðinu og eiga upptök sín að rekja til þess að ungri búdda- trúarkonu var nauðgað og hún myrt í maí. Þrír múslimar eru sagðir hafa framið verknaðinn. Múslimar í Rakhine-héraði eru ekki með ríkisborgararétt í Búrma, þar sem stjórnvöld telja þá ólög- lega innflytjendur frá Bangladess. Stjórnvöld í Bangladess eru ekki sammála því. Þúsundir múslim- anna hafa þó reynt að flýja yfir til Bangladess en öllum hefur verið snúið við. Stjórnvöld þar segjast ekki hafa burði til að taka við flótta- fólki, en mannréttindasamtök hafa gagnrýnt mjög að landamærunum skuli hafa verið lokað fyrir þessu fólki. Með því sé verið að leggja líf fólksins í mikla hættu. Thein Sein forsætisráðherra landsins lýsti yfir neyðarástandi í héraðinu á sunnudag. Hann sagði Rigningin stöðvaði átökin tímabundið 21 hefur látið lífið og mikill fjöldi er heimilislaus eftir átök í Búrma undan- farna daga. Birgðir er farið að skorta í Rakhine-héraði, en mikil rigning stöðv- aði átökin tímabundið í gær. Stjórnarandstöðuleiðtogi heldur til Evrópu í dag. Stjórnarandstöðuleiðtoginn Aung San Suu Kyi kemur í dag til Genfar í Sviss, í fyrstu ferð sinni til Evrópu í 24 ár. Ferð hennar mun vekja mikla athygli og mögulega jafnframt beina athygli manna að ástandinu í heimalandi hennar. Hún var sem kunnugt er í stofufangelsi í Búrma um árabil en losnaði úr því árið 2010. Hún var svo kjörin á þing fyrr á árinu. Hún mun ávarpa þing Alþjóðavinnumálastofnunar- innar í Genf í dag, en stofnunin hefur vakið athygli á þrælkun og barnaþrælkun í Búrma. Hún flýgur svo til Óslóar þar sem hún mun á morgun taka við Friðarverð- launum Nóbels 21 ári eftir að hún hlaut þau upphaflega fyrir baráttu sína. Frakkland og Írland verða einnig á dagskránni en í næstu viku heldur Suu Kyi svo til Bretlands og mun sú heimsókn væntanlega vekja mikla athygli. Suu Kyi lærði í Bretlandi og bjó þar í mörg ár. Hún fór frá eiginmanni og sonum í Bretlandi til Búrma árið 1988 til þess að annast veika móður sína. Hún komst aldrei aftur til Bretlands, en eiginmaður hennar, Michael Aris, lést árið 1999. Í Bretlandi mun Suu Kyi taka við heiðursdoktorsnafnbót við Oxfordháskóla og ávarpa báðar deildir breska þingsins. Hún snýr svo aftur til Búrma í lok júní en þingið kemur saman þann 4. júlí. Tekur loks við Nóbelsverðlaununum ATHVARF Í KLAUSTRI Margir hafa orðið heimilislausir vegna átakanna og þessi fjölskylda er þeirra á meðal. Hún dvelst nú í klaustri sem hefur tímabundið verið breytt í athvarf fyrir heimilislausa. NORDICPHOTOS/AFP jafnframt að ofbeldið þar geti ógnað þeim lýðræðisumbótum sem unnið sé að í landinu, eftir hálfrar aldar valdasetu hersins. Þrátt fyrir að herinn stjórni ekki að nafninu til hefur hann enn mikil ítök í land- inu og hefur Sein verið gagnrýndur fyrir að lýsa yfir neyðarástandi þar sem það veiti hernum völdin í hér- aðinu. thorunn@frettabladid.is AUNG SAN SUU KYI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.