Fréttablaðið - 14.06.2012, Blaðsíða 62
14. júní 2012 FIMMTUDAGUR50
sport@frettabladid.is
PEPSI-DEILD KARLA fer aftur af stað í kvöld. Sjöunda umferðin hefst þá með leik
Fylkis og Fram klukkan 19.15. Á morgun fara síðan fram tveir leikir og verður leikur Stjörnunnar
og Vals sýndur beint á Stöð 2 Sport. Umferðinni lýkur svo með þrem leikjum á laugardag.
EM í knattspyrnu:
Portúgal-Danmörk 3-2
1-0 Pepe (24.), 2-0 Helder Postiga (36.), 2-1
Nicklas Bendtner (41.), 2-2 Nicklas Bendtner (80.),
3-2 Varela (87.).
Holland-Þýskaland 1-2
0-1 Mario Gomez (24.), 0-2 Mario Gomez (38.),
1-2 Robin van Persie (73.)
STAÐAN:
Þýskaland 2 2 0 0 3-1 6
Portúgal 2 1 0 1 3-3 3
Danmörk 2 1 0 1 3-3 3
Holland 2 0 0 2 1-3 0
LEIKIR DAGSINS:
Ítalía - Króatía kl. 16.00
Spánn - Írland kl. 18.45
ÚRSLIT
FÓTBOLTI Ummæli sem sóknarmað-
urinn Antonio Cassano lét falla á
þriðjudag hefur valdið mikilli
reiði á Ítalíu og reyndar víðar.
Sagðist hann þá vonast til þess að
það væru engir hommar í ítalska
landsliðinu.
„Ég vil biðjast innilegrar afsök-
unar á ummælum mínum sem hafa
verið gagnrýnd af réttindasamtök-
um samkynhneigðra,“ sagði í yfir-
lýsingu sem birtist á heimasíðu
ítalska knattspyrnusambandsins
í gær.
„Ég er sjálfur ekki haldinn for-
dómum gagnvart samkynhneigð-
um. Ég vildi ekki móðga neinn.
Það eina sem ég sagði var að
þetta væri vandamál sem snerti
mig ekki enda er það ekki mitt að
dæma aðra.“
Ummælin lét hann falla á blaða-
mannafundi ítalska liðsins.
„Landsliðsþjálfarinn var búinn
að vara mig við að þú myndir
spyrja mig þessarar spurningar,“
sagði hann þá við blaðamanninn.
„Ef ég á að segja eins og er þá
vona ég að það séu engir samkyn-
hneigðir í liðinu. En ef það er til-
fallið þá er það þeirra mál.“
- esá
Antonio Cassano dregur í land með ummæli:
Ég hef ekkert á móti
samkynhneigðum
CASSANO Ekki alveg nógu hress á
blaðamannafundinum. NORDICPHOTOS/GETTY
FRJÁLSAR Sjö íslenskir frjálsíþrótta-
menn verða meðal þátttakenda á
Norðurlandamóti unglinga í fjöl-
þrautum í Sandnes í Noregi um
helgina. Þeirra á meðal er Helga
Margrét Þorsteinsdóttir sem
stefnir á að ná Ólympíulágmarki
í sjöþraut.
Helga Margrét á best 5.878 stig
frá því árið 2009. Lágmarkið inn
á leikana er 5.950 stig en síðasti
dagur til að ná lágmörkum fyrir
leikana er 8. júlí. Ólympíuleikarnir
hefjast þann 27. júlí.
Helga Margrét er því að renna út
á tíma og þetta mót á meðal hennar
síðustu möguleika á því að komast
til London. Auk Helgu Margrétar
verða Arna Stefanía Guðmunds-
dóttir ÍR, Ásgerður Jana Ágústs-
dóttir UFA, Ingi Rúnar Krist-
insson Breiðabliki, María Rún
Gunnlaugsdóttir Ármanni, Sindri
Hrafn Guðmundsson Breiðabliki
og Sveinbjörg Zophoníasdóttir úr
FH meðal keppenda.
Arna Stefanía, Ingi Rúnar og
María Rún stefna á að ná lágmarki
fyrir heimsmeistaramót 19 ára og
yngri sem fram fer í Barcelona um
miðjan júlí.
Síðasti dagur til að ná lágmörk-
um fyrir mótið er 2. júlí.
- ktd
Helga Margrét Þorsteinsdóttir á leiðinni til Noregs:
Reynir við lágmarkið
Seafolly línan er ko
min í verslanir CINTAMA
NI í
Austurhrauni 3 og
Bankastræti 7
Flipflops 3.900
Töskur frá 6.900
Cintamani Austurhraun 3
mán-fös. 10- 18
lau. 11 -14
S. 533 3805
Cintamani Bankastræti 7
alla daga 9-22
S. 533 3390
HETJAN Varela fagnar sigurmarki sínu
gegn Dönum. NORDICPHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Það þarf ansi mikið til
að Þýskaland fari ekki í átta liða
úrslit eftir sigurinn á Hollandi í
gær. Stig gegn Dönum dugir til
að gulltryggja farseðilinn áfram.
Holland þarf aftur á móti að vinna
Portúgal og treysta á þýskan sigur
til að eygja von um að komast
áfram.
Þá eru þrjú lið með þrjú stig og
þá ræðst allt á innbyrðismarka-
tölu. Ef Þjóðverjar tapa og Portú-
gal vinnur Holland verða að sama
skapi þrjú lið með sex stig. Bar-
áttan í dauðariðlinum er því ekki
búin.
Eftir frekar rólegar upphafs-
mínútur braut Mario Gomez
ísinn. Fékk sendingu í teiginn frá
Schweinsteiger, sneri sér við og
kláraði færið vel. Korteri síðar
fékk hann boltann hægra megin
í teignum og lyfti yfir Steke-
lenburg sem var lagstur allt of
snemma. Frábært mark. Hollend-
ingar algjörlega heillum horfnir
og máttu þakka fyrir að vera ekki
fleiri mörkum undir í hálfleik.
Rafael van der Vaart og Klaas-
Jan Huntelaar komu inn hjá Hol-
landi í hálfleik og áttu að hressa
upp á spilið. Það gerðist heldur
betur.
Hollendingar fóru loks að spila
fótbolta, skapa sér færi og 17
mínútum fyrir leikslok minnkaði
Robin van Persie metin með góðu
skoti. Leikurinn allt í einu galop-
inn.
Hollendingar höfðu ekki kraft-
inn til þess að bæta við öðru marki
og Þjóðverjar sigldu sanngjörnum
þremur stigum í hús.
„Tíminn var lengi að líða í lokin.
Hollendingar settu okkur í pressu
en sem betur fer hafðist það. Við
erum komnir með sex stig og telj-
um okkur vera til alls líklega,”
sagði Gomez.
Leikur Portúgals og Danmerk-
ur var bráðskemmtilegur. Portú-
galar komust í 2-0 og virtust ætla
að keyra yfir Danina þangað til
Nicklas Bendtner minnkaði mun-
inn fyrir hlé og kom Dönum inn í
leikinn.
Portúgalar héldu áfram að
sækja og Cristiano Ronaldo fékk
gullin tækifæri til þess að klára
leikinn. Honum voru mislagðir
fætur eins og áður í þessu móti.
Bendtner þakkaði fyrir með því að
jafna skömmu fyrir leikslok.
„Ég var mjög ósáttur við sjálf-
an mig og veit að ég átti að gera
betur,“ sagði Ronaldo eftir leik.
Það stefndi í jafntefli þegar
varamaðurinn Varela kláraði leik-
inn fyrir Portúgal. Hann var þá
nýkominn af bekknum og skoraði
með fínu skoti í teignum. Mögnuð
innkoma og góður sigur hjá Portú-
gal.
„Lukkan sem var ekki með
okkur gegn Þjóðverjum var með
okkur núna. Þó svo ég hafi ekki
spilað vel var fyrir öllu að við
skyldum vinna og halda okkur
á lífi í mótinu,“ sagði Cristiano
Ronaldo. henry@frettabladid.is
HOLLENDINGAR Í VONDUM MÁLUM
Þjóðverjar eru komnir með rúmlega annan fótinn í átta liða úrslit á EM eftir flottan 2-1 sigur á Hollend-
ingum. Markahrókurinn Mario Gomez skoraði bæði mörk þýska liðsins sem var mun sterkara í leiknum.
Varamaðurinn Varela kom Portúgölum til bjargar og hélt vonum þeirra til að komast áfram á lífi.
SJÓÐHEITUR Mario Gomez skoraði tvö mörk í gær en fagnaði ekkert mjög mikið.
Mesu Özil fagnar hér með honum í gær. NORDICPHOTOS/GETTY