Fréttablaðið - 14.06.2012, Blaðsíða 32
FÓLK|TÍSKA
Elísabet Ormslev hefur á síðustu árum reynt fyrir sér í förðun og söng. Hún
fylgist vel með hvað er að gerast
í tískuheiminum og er óhrædd
að prófa sig áfram, vera öðru-
vísi þegar kemur að förðun
og tísku. „Ég hef alltaf haft
áhuga á förðun en síð-
ustu tvö ár hef ég verið
að grúska í „special
effects“-förðun, það er
að segja vinnu með
latex, vax, gerviblóð og
fleira,“ segir Elísabet.
Hún hefur aflað sér
upplýsinga á netinu
og prófað sig áfram
að búa til sár, skurði,
marbletti og fleira
en þannig hefur hún
kennt sér sjálf, Hún
stefnir þó að því að
fá diplóma í förðun
næsta haust.
Elísabetu finnst best
að versla í Bandaríkj-
unum og það fyrsta sem
hún hugsar um þegar
hún velur sér föt er
hvernig förðun passar
best við. Hún segist ekki
eiga neina tískufyrir-
mynd heldur fylgi eigin
sannfæringu, stíllinn ein-
kennist af rokkuðum flíkum
í bland við notaðar flíkur. Á
myndinni klæðist hún jakka
úr Zöru, bol úr H&M, legg-
ings frá Spiral og skóm úr
Kúltúr.
Elísabet söng bakrödd
á Whitney Houston minn-
ingartónleikunum í Austurbæ
og forkeppni Eurovision en
einnig kemur hún fram í einka-
samkvæmum. Hún hefur hug á að
sinna söngnum og tónlistinni í
framtíðinni ásamt því að fikta við
förðunina. Í sumar ætlar hún að
semja eigin tónlist, rifja upp gamla
fiðlutakta, vinna í Make Up Store
og fara til Berlínar. „Síðan ætla ég
að drífa mig að taka þetta blessaða
bílpróf svo að vinkonur mínar hætti
að stríða mér. Líka til að koma mér á
milli staða en þó aðallega út af vin-
konunum“. ■ gunnhildur@365.is
FJÖLHÆFUR SÖNGFUGL
LIFIR FYRIR TÓNLISTINA Elísabet Ormslev, 19 ára, á framtíðina fyrir sér í
tónlist og förðun. Hún fylgist þar fyrir utan vel með í tískuheiminum.
TÍSKA OG FÖRÐUN
Elísabet hefur áhuga
á tísku og förðun en á
milli þess syngur hún
bakrödd. MYND/ANTON
ÖÐRUVÍSI FÖRÐUN
Elísabet prófar sig áfram
með listræna förðun.
UPPRUNASTAÐUR G-STRENGSINS
Einhvers konar lendaskýlur voru notaðar allt frá tímum Forn-Egypta
fram á miðaldir. G-strengurinn í núverandi mynd er talinn hafa fyrst
komið fram í New York í lok kreppunnar miklu. Árið 1939 skipaði þá-
verandi borgarstjóri New York, Fiorello LaGuardia, erótískum döns-
urum borgarinnar að vera betur huldir í tilefni af heimssýningunni
sem fór fram þar á þeim tíma. Og með það sama kom strengurinn til
sögunnar. Ef einhver er í vafa um hvers konar klæðnað um er að ræða
þá er G-strengur nærbuxur sem eru afskaplega efnislitlar að aftan og
hylja ekki rasskinnar notandans.
EKKI TAKA ÞÁTT
Í NEINU Á NETINU
SEM ÞÚ VEIST
EKKI HVAÐ ER!
www.saft.is
■ HATTAHEFÐ Ef einhver
hefur furðað sig á þeirri
bresku hefð að bera hatta við
flest formleg tilefni er tími
kominn til að hætta því. Þessa
hefð má að mestu leyti þakka
Elísabetu fyrstu Englands-
drottningu.
Árið 1571 voru sett lög, að
hennar skipan, sem fólu í sér
að allir þeir sem voru eldri
en sjö ára áttu að bera hatt á
sunnudögum. Þrátt fyrir að
lögin séu löngu afnumin eru í
gildi nokkurs konar óskrifuð
lög á nokkrum viðburðum í
skemmtanalífi Breta, þar sem
allir eiga að vera með hatt.
Þessir viðburðir eru til dæmis
hestaveðhlaup, garðveislur og
konungleg brúðkaup.
ÁBYRG FYRIR
HATTAÆÐINU
Í öllum breskum konung-
legum veislum má sjá
fólk með hatta.
Skipholti 29b • S. 551 0770
ÚTSALA
HAFIN!
Brúðkaups og útskriftarkjólar
Ný sending
20% afsl.
af öllum vörum
Nýtt kortatímabil
Kíktu á En Gedi Ísland
EN GEDI Náttúrulegar
Húð- og Hárvörur
Vörurnar innihalda náttúrulegt Dauðahafssalt, steinefni
og fyrsta flokks ilmkjarnaolíur og jurtakraft.
Allar vörurnar eru án parabena og formalíns.
Sölustaðir: www.femin.is og heilsubúðin Góð Heilsa
Gulli Betri, Njálsgötu 1.
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ
sem býður auglýsendum að
kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum
auglýsingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu
daglega.
Útgefandi: 365 miðlar
Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Sölumenn:
Jónína María Hafsteinsdóttir
jmh@365.is s 512 5473
Sverrir Birgir Sverrisson
sverrirbs@365.is, s 512 5432
Elsa Jensdóttir
elsaj@365.is s. 512-5427